Ægir - 01.04.2012, Page 46
46
Vinnuhópur sjávarútvegsráð-
herra um makrílveiðar skilaði
greinargerð sinni fyrir
skömmu og endurspeglar hún
mjög glögglega hversu mikil
innspýting var í þjóðfélaginu í
fyrra af makrílveiðum. Milli
ára tvöfaldaðist magn makríl-
afurða milli ára á sama tíma
og verðmætin þrefölduðust.
Nær allur makrílaflinn var
hausaður og frystur.
„Lögð var mikil áhersla á
að vinna makrílinn til mann-
eldis á vertíðinni 2011. Að
vísu er ekki hægt að sjá í
gögnum hvernig makrílaflan-
um var ráðstafað, þar sem
engar upplýsingar um skipt-
ingu aflans eftir vinnslugrein-
um eru til. Þar af leiðandi er
ekki hægt að greina hvort afl-
inn er að fara í landvinnslu,
vinnslu út á sjó, frystingu,
bræðslu eða aðra vinnslu. ...
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar fyrir útflutning
2011 á makrílafurðum þá
voru flutt út 109.621.989 kg
fyrir samtals 24.125.388.401
kr. (fob). Í þessar tölur vantar
um 13 þúsund tonn af fisk-
mjölsafurðum og að verð-
mæti um 2,5 milljarða (fob).
Borið saman við 2010 þá
voru flutt út 54 þús. tonn af
frosnum afurðum fyrir um 8,5
milljarða króna þannig að
magn unninna afurða tvöfald-
aðist milli ára og verðmætin
nærri þrefölduðust.
Markaðsmönnum var mik-
ill vandi á höndum að koma
þessum afurðum í gott verð
og miðað við allt það magn
sem er farið frá landinu og
þá staðreynd að flestir mark-
aðir skiluðu hærri verðum en
áður, er ljóst að árangurinn
var nokkuð góður á síðast-
liðnu ári,“ segir í greinargerð
vinnuhópsins.
Heilfrysting nær allsráðandi
Ef marka má upplýsingar sem
vinnuhópurinn fékk frá út-
flytjendum gætir varkárni
hvað varðar spár um
verðþróun á komandi vertíð.
Jafnvel er búist við einhverj-
um verðlækkunum. „Helstu
ástæður þess munu vera tölu-
verðar birgðir erlendis af ís-
lenskum og norskum makríl.
Á vertíðinni 2011 var lögð
mikil áhersla á vinnslu og eru
áhyggjur uppi um að eitthvað
M A K R Í L V E I Ð A R
Vinnuhópur um makrílveiðar:
Makrílverðmætin þrefölduð
Blástursfrystur makríll er ein verðmætasta afurðin úr makrílnum.
Útflutningur unninna makrílafurða 2010 og 2011.