Ægir - 01.04.2012, Blaðsíða 47
47
M A K R Í L V E I Ð A R
af þeim makríl sem er í
birgðum sé ekki af ásættan-
legum gæðum, einkum vegna
átuinnihalds.“
Frystiskipin framleiddu í
fyrra nær eingöngu heilan
óslægðan makríl en land-
vinnslurnar og vinnsluskip
hausuðu og slægðu stóran
hluta aflans. Flakavinnsla var
óverulegur hluti alls útflutn-
ingsins makrílafurða eða vel
innan við 1%. Verðmæti
flakavinnslunnar árið 2011
var tæp 81 m.kr. og voru
framleidd um 184 tonn af
landfrystum og sjófrystum
flökum.
Verðhækkun um 40% milli ára
Tölur sýna að heilfrystur
makríll var seldur til 31 lands
árið 2011 en um 75% magns-
ins fóru til þriggja landa: 38%
til Rússlands, 23% til Hol-
lands og 12% til Nígeríu.
Makrílafurðum er umskipað í
Hollandi og skýrir það mikið
magn afurða sem þangað er
flutt.
Meðaltalsverðmæti alls út-
flutningsins var 220 kr/kg.
Rússlandsmarkaður skilaði að
meðaltali 250 kr/kg en Hol-
land var töluvert undir með-
altalinu eða 167 kr/kg meðan
Nígería var að skila meðaltal-
inu eða 221 kr/kg.
Mikil verðhækkun hefur
átt sé stað þegar skoðuð eru
meðalverð áranna 2010 og
2011. Heilfrystur makríll er að
skila um 40% hærra verði
2011 að meðaltali en árið á
undan. Meðalverðið, fór úr
157 kr/kg 2010 í 220 kr/kg
2011 og segir í skýrslu vinnu-
hópsins að þetta sýni öðru
fremurað mikill árangur hafi
náðst í vinnslu og markaðs-
starfi fyrirtækjanna.
Minna magn í Noregi en
verðmætisaukning
Ef horft er til Noregs dróst út-
flutningur á makrílafurðum
saman milli ára. Árið 2010 var
útflutningur 276.749 tonn en
fór niður í 244.830 tonn 2011
sem samsvarar 12% sam-
drætti. Hins vegar jókst verð-
mæti makrílafurða milli ár-
anna 2010 og 2011, fór úr
tæpum 3 milljörðum norskra
króna í 3,5 milljarða. Meðal-
verðmæti var 10,74 norskar
krónur árið 2010 en fór í
14,13 árið 2011. Það er 32%
hækkun milli ára.
Norðmenn fluttu út makríl
til 54 landa árið 2011. Lang
verðmætasti og mikilvægasti
markaður þeirra er Japan en
þangað voru flutt út 75.000
tonn eða 31% af útfluttum
makrílafurðum árið 2011. Það
gera verðmæti upp á 1,1
milljarð norskra króna eða
34% af útflutningsverðmætum
makrílafurða.
Makrílvinnslan hefur verið mikil búbót hjá landvinnslunum, líkt og í HB Granda á
Vopnafirði.