Ægir - 01.04.2012, Side 55
55
N Ý T T F I S K I S K I P
„Jú, heimkoma skipsins á sér langa sögu en eigum við ekki að
segja að góðir hlutir gerist hægt,“ segir Ólafur Einarsson, skip-
stjóri á Heimaey VE-1 við heimkomuna frá Chile. Á langri sigl-
ingu reyndi ögn á skipið í þungum sjó og segir Ólafur að það
hafi reynst hið besta. Nú á fyrstu vikunum eftir heimkomuna
verður allur búnaður prófaður og gert klárt fyrir fyrstu veiðiferð
á makríl.
„Fyrsta verkefnið verður makrílvertíðin en ég reikna með að
farið verði heldur seinna á þær veiðar en í fyrra. Viðbúið að
þær hefjist ekki af krafti fyrr en að áliðnum júnímánuði,“ segir
Ólafur en hann var áður skipstjóri á Álsey VE. Stór hluti áhafn-
ar Heimaeyjar VE kemur af Álsey VE. Ólafur segir að þó bún-
aður nýja skipsins sé um flest mjög þekktur þá sé allt mjög öfl-
ugt, vandað og vel frágengið.
„Það er ekki hægt að segja að eitthvað eitt einkenni skipið
öðru fremur. Umfram allt er þetta öflugt skip, vel búið tækjum
og góð vinnuaðstaða fyrir áhöfnina um borð. Einn mikilvægasti
þátturinn er hið öfluga sjókælikerfi sem er í skipinu en það
gerir okkur kleift að kæla aflann hratt og vel. Með þessu kerfi
skilum við betra hráefni til landvinnslunnar og leggjum þannig
grunn að því að hún geti skilað hámarksgæðum. Sjókælingin
nýtist okkur á öllum uppsjávarveiðum en alveg sér í lagi á
makrílnum, sem og síldinni,“ segir Ólafur en Heimaey er búin
til flottrolls- og nótaveiða.
„Núna förum við í prófanir og sjáum allan búnaðinn virka
eins og hann á að gera. Síðan tekur alvaran við á miðunum.“
Allt mjög öfl-
ugt og vandað
- segir Ólafur Einarsson, skipstjóri
Ólafur Einarsson í brúnni á Heimaey VE.
Óskum útgerð og áhöfn Heimaeyjar
til hamingju með glæsilegt skip
Í skipinu er eftirtalinn búnaður frá Brimrún:
» Furuno FAR-2x37 S-band ratsjá,
12‘ loftnet
» Furuno CU-200 kortalesari
» Furuno FAR-2x17 X-band ratsjá,
6,5‘ loftnet
» Maxsea Time Zero tölvuplotter
» Furuno GP-32 GPS, 2 stk
» Furuno RD-30 aflestrarskjáir, 6 stk
» Furuno SC-110 GPS áttaviti
» Furuno FCV-1200 dýptarmælir
» Furuno 200B-12H og 88F-126H
botnstykki
» Furuno FSV-30 lágtíðni sónar
» Furuno FSV-84 millitíðni sónar
» Furuno CI-68 straummælir
» Furuno WS-200 veðurstöð
» FM sjónvarps- og magnarakerfi
» Þráðlaust kallkerfi á dekk
» FM kerfi á millidekk og vél
» Símkerfi
» Myndavélar, CCTV
» Ýmiss tölvubúnaður