Ægir - 01.04.2012, Qupperneq 57
57
N Ý T T F I S K I S K I P
Hátíð hafsins verður haldin í
Reykjavík helgina 2.-3. júní og
að vanda verður menningu
hafsins gerð góð skil, sam-
hliða hefðbundnum viðburðum
sjómannadagsins. Hátíðar-
höld fara fram á Granda og
teygja sig yfir á Ægisgarð.
Dagskráin verður fjölbreytt
sem fyrr; leikir, dorgveiði,
föndursmiðjur, fiskiveisla,
skemmtidagskrá á sviði,
furðufiskasýning og margt
fleira verður í boði fyrir alla
fjölskylduna. Í gömlu verbúð-
unum bæði á Granda og við
Geirsgötu má kynna sér fjöl-
breytta starfsemi; gallery,
vinnustofur listamanna og
hönnuða, verslanir og veit-
ingastaðir svo eitthvað sé
nefnt.
Hátíð hafsins verður í
orðsins fyllstu merkingu flaut-
uð inn með skipslúðrum kl.
10 að morgni laugardagsins
2. júní. Að því loknu tekur
við samfelld dagskrá til
sunnudagskvölds. Einn af
miðpunktum hátíðarinnar
verður í Sjóminjasafninu Vík-
inni þar sem fjórar nýjar sýn-
ingar verða opnaðar þessa
helgina. Þar má meða annars
sjá ljósmyndasýningar, út-
skurð í rekavið, auk þess em
færeyska skútan Westward
Ho verður til sýnis gestum og
gangandi. Varðskipið Óðinn
verður einnig opið og um
borð verða fyrrum skipsverjar
sem fræða gesti um tíma
þeirra um borð.
Færeyjar koma víðar við
sögu í dagskránni því Kynn-
ingarstofan í Fæeryjum verð-
ur með bás í Sjóminjasafninu
Víkinni þar sem starfsmenn
hennar fræða gesti um eyj-
arnar og hvað þar er að sjá.
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna fiskasýningu á Granda-
garði, siglingu frá Granda-
garði með gömlum eikarbát,
nýja varðskipið Þór verður til
sýnis, vísindasmiðja Hafró
fræðir gesti um makrílinn,
hægt verður að bragða á
hrefnukjöti, árlegt knatt-
spyrnumót sjómanna verður
á Þróttarvelli, dorgveiði á
Grandagarði, sjómannakaffi í
Viðey, vöfflur og kaffi í Gróu-
búð á vegum Slysavarna-
deildar kvenna í Reykjavík og
fleira og fleira.
Á sjómannadaginn sjálfan
hefst dagskráin með minning-
arathöfn í Fossvogskirkju-
garði og viðburðir á Granda-
garði taka síðan við hver af
öðrum. Á hádegi verða til að
mynda vígðir tveir nýir björg-
unarbátar Björgunarsveitar-
innar Ársæls og kl. 13.30
hefst dagskrá á sviði á
Grandagarði þar sem Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur, hefð-
bundin dagskrá Sjómanna-
dagsráðs verður flutt, ýmis
skemmtiatriði fylgja þar á eft-
ir og botninn í þann lið slær
síðan hljómsveitin Valdimar.
Dagkrá Hátíðar hafsins má
sjá í heild á heimasíðu henn-
ar, www.hatidhafsins.is
Þétt dagskrá á Hátíð hafsins
Alls kyns listasýningar koma við sögu á Hátíð hafsins. Furðufiskarnir vekja allataf áhuga.
Betra er að varast sjóræningja sem gætu skotið upp kollinum!
Grandagarður og Reykjavíkurhöfn í aðalhlutverki á Hátíð hafsins.