Fjarðarpósturinn - 15.01.2015, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Hún er undarleg friðarumræðan
hér á landi. Þegar reynt var að safna
sem flestum til friðargöngu í París
heltu Íslendingar sér í ófrið vegna
þess að forsætisráðherra sá sér ekki
fært að fara. Á sama tíma og
fjölmiðlar eru uppfullir af fréttum af
stríði sem oftar en ekki er kennt við trúarskoðanir verður
allt vitlaust ef einhver álpar klaufalega út úr sér að við
þurfum víst að fara varlega. Fólki er mismunað hér á landi
vegna þjóðernis. Það gerist strax í vegabréfaskoðun.
Öfgamenn sem oftar en ekki kenna sig við trú hafa fært sig
upp á skaftið í löndum þar sem þeir eiga ekki uppruna sinn.
Auðvitað er fólk áhyggjufullt. Áhyggjufullt yfir þeim
breytingum sem geta orðið. Það er hægt að tala fallega og
segja að við eigum öll að vera jöfn og það segi ég líka. En
það er draumsýn því miður. Við þurfum hins vegar að
forðast öfgar, jafnt í verkum sem orðum. Ef blessaður
þingmaðurinn hefur sýnt af sér fordóma þá hafa margir
þeir sem hneykslast hafa á hans orðum verið mjög
fordómafullir. Þeir hafa í raun sýnt að það er ekki einu sinni
skoðanafrelsi á Íslandi. Skoðanafrelsi er ekki það að líða
aðeins þær skoðanir sem meirihlutinn samþykkir.
Skoðanafrelsi fylgir óhjákvæmilega umburðarlyndi. Við
þurfum að umbera skoðanir annarra þó þær fari þvert á
okkar gildismat. Við gerum hins vegar þá kröfu að þeir sem
hafa þær skoðanir umberi okkar skoðanir. Umræðan
undanfarna daga hefur hvorkiz sýnt fram á umburðarlyndi
né skoðanafrelsi. Skoðanir fólks eru oft sprottnar af
umhverfinu og án þess að fólk hafi leitað sérstaklega eftir
mismundandi sjónarmiðum eða að fólk hafi kynnt sér
málefni vel. Skoðanir endurspegla oft tilfinningar fólks og
því breytast skoðanir fólks einnig. Upplýst fordómalaus
umræða, fræðsla og eðlileg mannleg samskipti hafa áhrif á
skoðanir fólks og þannig minnkum við fordóma sem
sprottnir eru af fákunnáttu. Það að einhver hafi aðra skoðun
en ég og jafnvel þvert á almennan skilning þýðir ekki
endilega að hann sé fordómafullur. Horfum okkur nær áður
en við æsumst yfir heimsetu forsætisráðherra eða klaufa
legum skrifum þingmanns. Það er svo auðvelt að misskilja
ritað mál, ekki síst þegar menn skrifa hraðar en þeir hugsa
og gefa sér lítinn tíma til að ígrunda sín skrif.
Það er mikill munur á menningu mismunandi landa og
þennan mun eiga allir að virða. Auðvitað berjumst við fyrir
almennum mannréttindum þó við séum með því jafnvel að
hlutast til um menningu viðkomandi landa. Látum ekki
öfgahópa kasta rýrð á mismunandi trúarskoðanir sem hafa
manngæsku og umburðarlyndi að leiðarljósi. Fjölkirkju
legar athafnir og samstarf mismunandi trúfélaga auka á
skilning manna á milli í stað þess að alið sé á þeim mismun
sem er milli hinna mismunandi trúarskoðana.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 18. janúar
Messa kl. 11
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Sunnudagaskóli kl. 11
í Hásölum Strandbergs safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju.
Leiðtogi er Anna Elísa Gunnarsdóttir, henni til
aðstoðar eru Margrét Heba og Ingeborg.
Kaffi og kex í Ljósbroti Strandbergs
Miðvikudagur 21. janúar
Morgunmessa kl. 8.15
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Morgunverður í Odda Strandbergs eftir messu.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudaginn 18. janúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Gospelmessa kl. 20
Kór kirkjunnar syngur við undirleik húsbandsins
undir stjórn Stefáns H. Henrýssonar.
www.astjarnarkirkja.is
Sunnudagurinn 18. janúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 18. janúar
Sunnudagaskóli og
tónlistarguðsþjónusta kl. 11
Siggi og María sjá um sunnudagaskólann
og Karlakórinn Þrestir
sér um tónlistina í guðsþjónustunni
undir stjórn Jóns Kristins Cortes.
Sr.
Halldór Reynisson þjónar.
Molasopi á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Kúluhús víkur
fyrir parhúsi
Fjarðarsmíði ehf. hefur sótt um að breyta
deiliskipulagi Setbergs fyrir lóð nr. 15 við Lyngberg. Í
stað einbýlishúss verði byggt parhús á lóðinni. Þarna
stendur í dag kúluhús en á tímabili stóð til að lóðin yrði
tekin undir gatnamót Reykjanesbrautar og Fjarðar
hrauns. Skipulags og byggingarráð hefur samþykkt að
auglýsa deiliskipulagsbreytinguna.
Enn fæst ekki að
opna bílaþvottastöð
Íbúðarblokkir í iðnaðarhverfi
Eftir að fleiri íbúðarblokkir voru byggðar í
iðnaðarhverfinu við Reykjavíkurveg hafa umhverfis
þættir haft meiri áhrif á iðnaðar og þjónustustarfsemi en
áður. Eins og kunnugt var varð Löður að loka
bílaþvottastöð sinni aftan við bensínstöð N1 eftir mótmæli
íbúa í nýbyggðri blokk við hlið bensínstöðvarinnar.
Löður sótti á síðasta ári um að opna bílaþvottastöð í
húsnæðinu á ný þar sem ekki væri lengur gegnumakstur
og opum að íbúðarblokkunum yrði lokað. Hafði
skipulags og byggingarráð tekið jákvætt í erindið en í
ljósi svara sem hafa borist frá heilbrigðisfulltrúa
Hafnarfjarðar og Kópavogs hefur skipulags og
byggingarráð tekið til endurskoðunar ákvörðun sína frá 2.
des. sl. um að „mæla með fyrirspurn um að breyta
núverandi þvottastöð“, eins og það er orðað í fundargerð
ráðsins.
Ekki hefur verið sýnt fram á að loftborin mengun berist
ekki til nálægra fyrirtækja og íbúðarhúsa. Skipulags og
byggingingarráð óskar eftir nánari gögnum um það og
hvernig það mál verði leyst.
Á meðan hafa íbúar í Hafnarfirði enga aðstöðu til að
þrífa bíla sína sjálfir yfir vetrarmánuðina. Aðeins ein
bílaþvottastöð er í bænum en margir kjósa að fara ekki
með bíla sína í slíkar stöðvar.
www.facebook.com/fjardarposturinn