Fjarðarpósturinn - 15.01.2015, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Sundfélag Hafnarfjarðar • Ásvallalaug • www.sh.is • sh@sh.is
Allar upplýsingar um námskeiðin og skráningar á þau
eru á heimasíðu SH www.sh.is
Fjölbreytt tilboð
sundnámskeiða
Sundnámskeið fyrir börn 4-6 ára og 3-4 ára
– Nýir hópar í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug
Sundkennsla og sundæfingar fyrir alla aldurshópa
Framhaldsnámskeið fyrir 3-4 ára og 5-6 ára
– Sundhöllin, Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna
– Ný námskeið hefjast 3. febrúar og 3. mars
Skráðu þig
og þína núna!
styrkir barna og unglingastarf SH
Hlauparöð FH
og Atlantsolíu
Hlaupasería FH og Atlantsolíu eru þrjú hlaup sem hlaupin
eru í janúar, febrúar og mars. Hlaupalengd er 5 km.
Hlaupið af stað kl. 19 á göngustígunum
gegnt Íþróttahúsinu v/ Strandgötu í
Hafnarfirði eftirfarandi daga:
1. fimmtudaginn 29. janúar
2. fimmtudaginn 26. febrúar
3. fimmtudaginn 26. mars.
Skráning:
Skráning klukkutíma fyrir hlaup í
Íþróttahúsinu á Strandgötu.
Verð aðeins 500 krónur.
Sjá nánar á www.hhfh.is
20
15
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. f
yr
ir
H
la
up
ah
óp
F
H
2
01
5
Kvöddu starfsmann
Gára eflist sem skipamiðlun
Báðir stofnendur Gáru skipa
miðlunar hafa nú látið af störfum
hjá félaginu vegna aldurs en sl.
föstudag kvöddu starfsmenn
Gáru Sigvalda Hrafn Jósafatsson
eftir um 22 ára starf hjá félaginu.
Gára er til húsa að Bæjarhrauni
2 hér í bæ og þjónar sífellt fleiri
skipum sem koma hingað til
landsins. Sérstaða fyrirtækisins
hefur verið móttaka á rússneskum
togurum sem hefur verið mikil
tekjulind fyrir Hafnarfjarðarhöfn.
Þá hefur Gára tekið við
skemmtiferðaskipum og hefur
þeim fjölgað mikið, ekki síst eftir
að TVG Zimsen keypti Gáru.
Sigvaldi segist hverfa ánægður
frá starfi sínu í Gáru en sam
starfsfólk og fleiri gladdi hann
með kveðjum og gjöfum.
Þorkell Jóhann Pálsson, Kári Valvesson, annar stofnandi Gáru,
Edda Geirsdóttir, Sigvaldi Hrafn Jósafatsson stofnandi Gáru
ásamt Jóhanni Bogasyni framkvæmdastjóra Gáru.
Sigvaldi Hrafn Jósafatsson.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Nýr íþróttastjóri Sörla
Sigrún Sigurðardóttir íþróttastjóri
Hestamannafélagið Sörli hefur
gert samning við Sigrúnu
Sigurðardóttur reiðkennara um
að gegna störfum íþróttastjóra
fyrir félagið út árið 2016. Sigrún
sem hefur starfað farsællega hjá
félaginu frá árinu 2012, mun
setja saman námskrá fyrir hesta
mannafélagið og hafa yfirumsjón
með öllu námskeiðshaldi og
reiðkennslu á vegum félagsins.
Sigrún er einn reynslumesti
reiðkennari landsins og hefur
stundað kennslu í rúm 30 ár. Hún
er með reiðkennararéttindi B og
landsdómararéttindi sem gæð
ingadómari. Sigrún hefur einnig
tekið þátt í ýmsu starfi reið
kennara og m.a. verið virk í
kennslu knapamerkjanna, þar
sem hún hefur kennt öll stigin
fimm. Hún hefur einnig starfað
við reiðþjálfun fatlaðra og
stundað kennslu víða um heim.
Thelma Víglundsdóttir varaformaður Sörla, Sigrún Sigurðardóttir
og Páll Ólafsson formaður Sörla við undirritun samningsins.
Um 73 milljóna kr. hagræðing
verður til á þessu ári vegna
fækkunar barna á skilgreindum
leikskólaaldri. Við fjárhags áætl
ana gerð lögðu fulltrúar Samfylk
ingar og Vinstri grænna fram
tillögu um að þessi hagræðing
verði ekki nýtt til að standa undir
nýjum útgjöldum á grunn
skólastigi, heldur til eflingar leik
skólastigsins. Kom sú tillaga til
afgreiðslu fræðsluráðs eftir að
bæjarstjórn vísaði henni þangað.
Þessi tillaga var samþykkt
samhljóða í fræðsluráði en þar
með var ekki sagt að allir væru
sammála því fulltrúar Sjálf
stæðis flokks og Bjartrar fram
tíðar lögðu fram bókun þar sem
segir að tillagan hafi verið sam
þykkt þar sem þessi hagræðing
hafi sannarlega verið nýtt til
eflingar leikskólastigsins með
því að laun til starfsmanna hækki
um tugi milljóna á milli ára
vegna áhrifa kjarasamninga. Það
sé fjárfesting í mannauð leik
skólanna.
Í bókun fulltrúa Samfylkingar
og Vinstri grænna segir að við
gerð fjárhagsáætlunar hafi
ítrekað komið fram vilji þeirra að
þessi hagræðing yrði notuð í þá
átt að brúa bilið milli fæð ingar
orlofs og leikskóla í skref um. Þar
sem þegar sé búið að samþykkja
fjárhagsáætlun skilji minni hlut
inn ekki hvers vegna tillög um
þeirra var vísað til fræðsluráðs.
„Kjarasamningar eru vissulega
fjárfesting í mannauði en við
teljum það hártoganir að líta á
aukinn launakostnað nú sem
svar við tillögu okkar sem miðar
að því að nýta það svigrúm sem
skapast hefur til að lækka í
skrefum inntökualdur á leik
skóla,“ segir í niðurlagi bókunar
minnihlutans.
Launahækkun efling leikskólastigsins
Allir flokkar sammála um tillögu en ósammála um skilninginn
Malbik hefur víða farið illa í vetur
Ekki kjöraðstæður til malbiksviðgerða
Víða hafa stórar holur myndast
í malbikið og dæmi er um
skemmd ir á bílum vegna þess.
Svo virðist sem holur sem
myndist í malbikinu verði
nokkuð djúpar og með hvössum
brúnum sem séu varasamar.
Hafnarfjarðarbær hefur fengið
verktaka til að gera við þessar
holur en aðstæður til viðgerða
eru með versta móti.
Mikilvægt er að íbúar tilkynni
strax um slíkar holur til bæjarins.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n