Fjarðarpósturinn - 26.03.2015, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
Það þótti mikið framfaraskref
að einsetja alla grunnskóla. Það
kom til eftir að grunnskólar voru
færðir yfir til sveitarfélaganna
og settu mörg sveitarfélög sig í
skuldir til að byggja stærri skóla
sem þurfti þegar skólarnir urðu
einsetnir. Það voru margir augljósir gallar við
einsetninguna sem mönnum horfðist yfir eða neituðu
hreinlega að sjá. Nú voru öll börn í skólanum á
morgnana og jafnvel fram yfir hádegi. Þetta þýddi
m.a. annars að nemendur í tónlistarskólum gátu ekki
stundað nám fyrr en eftir hádegi og þar að leiðandi
gátu tónlistaskólakennarar ekki hafið störf fyrr en
eftir hádegi. Foreldrar sem vildu vinna hálfa vinnu á
meðan börnin voru í skóla höfðu þá aðeins möguleika
að vinna fyrir hádegi en það gátu ekki allir
hálfsdagsstarfsmenn unnið fyrir hádegi. Trekk í trekk
lenda skólar í húsnæðisvanda vegna tímabundinnar
fjölgunar í hverfum og maður spyr sig stundum hvort
ekki mætti taka upp tvísetningu í skólum á ný –
a.m.k. í einhverjum tilfellum.
Þegar foreldrar vinna úti er sjaldnast nokkur til að
taka við börnunum þegar skóla lýkur. Því er boðið
upp á frístundaheimili í skólum sem eru misáhuga
verð fyrir nemendurna. Í upphafi var draumastaðan
að börnin gætu helst stundað allt sitt tómstundastarf í
skólanum, hvort sem það væri borðtennis, kirkjulegt
starf, skátastarf eða íþróttir. Sennilega hefur enginn
hugsað það til enda og líklega fáir foreldrar sem vildu
stunda sitt frístundastarf á sínum vinnustað að
loknum vinnudegi. Leiðbeinendur, þjálfarar og
skátaforingjar voru heldur ekki endilega á lausu á
miðjum degi, ekki síst þar sem sjálfboðastarf var
ríkjandi.
Nú á að reyna að skapa meiri fjölbreytni fyrir
hafnfirska nemendur og leitað er eftir samstarfi við
tómstundafélögin. Þannig er nú þess vænst að stærstu
íþróttafélögin a.m.k. geti boðið upp á fjölbreytt
frístundastarf ásamt æfingum strax eftir skóla, til
jafns við frístundaheimilin í skólunum. Fyrstu tillögur
hafa verið lagðar fram og eru áhugaverðar þó ljóst sé
að það ræðst eðlilega af áhuga krakkanna hvernig til
tekst. Á kynningarfundi sl. þriðjudag var lögð rík
áhersla á að með slíkum frístundaheimilum væri ekki
verið að loka á þá sem ekki eru í stóru félögunum eða
taka þátt í starfi félaga sem ekki hafa kost á að bjóða
upp á starf á þessum tíma. Það verður áhugavert að
fylgjast með hvernig til tekst.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 29. mars
Fermingarmessur
kl. 11 og kl. 13.30
Sunnudagaskóli kl. 11
verður í kapellunni Stafni.
Pálmasunnudagur til föstudagsins langa
Bæn þjóðar
Passíusálmarnir sungnir kl. 17 - 19
frá pálmasunnudegi til föstudagsins langa
Fólk getur komið og farið að vild
Einstök upplifun.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 29. mars
Fermingarmessur
kl. 11 og 13
Sunnudagaskólinn fellur niður.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudaginn 29. mars
Sunnudagskóli kl. 11
Páskaföndur.
Rokkmessa Ástjarnarkirkju
í Víðistaðakirkju kl. 20
Þekktir listamenn koma fram.
Miðvikudagur kl. 13.30-15.30
Starf eldri borgara
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 29. mars
Fermingarmessa
kl. 10.30
Kór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar.
Halldór Reynisson þjónar.
www.vidistadakirkja.is
Valgerður t.v. og systir hennar Hafdís.
Ný barnafataverslun
opnaði við Dalshraun
Með mikið úrval af Carter‘s fatnaði
Valgerður O. Hlöðversdóttir hefur opnað nýja
barnafataverslun að Dalshrauni 5, í gamla
Glerborgarhúsinu. Segir hún viðtökurnar hafa verið mjög
góðar en verslunin var opnuð sl. föstudag. Segir hún að
sérlega hafi vantað barnafataverslun í Hafnarfjörð.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Körfubolti karla, 8 liða úrslit
Komnir upp að vegg
Haukar hafa tapað naumlega fyrstu tveimur
leikjunum í úrslitakeppni í körfuknattleik karla. Fyrri
leiknum á Ásvöllum eftir framlengdan leik og seinni
leiknum í Keflavík með 2 stigum. Þriðji leikurinn er
annað kvöld, föstudag kl. 19,15 á Ásvöllum og þann
leik verða Haukar að vinna til að eiga möguleika. Það
stefnir því í hörku spennandi leik á Ásvöllum sem
enginn körfuknattleiksunnandi ætti að missa af.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n