Fjarðarpósturinn - 26.03.2015, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
Finndu
okkur á
Mikið hefur verið deilt um
húsnæðisvanda Áslandsskóla
sem virðist eftir nánari skoðun
ekki vera stór vandi eftir allt.
Áætlanir um fjölgun í hverfinu
hafa breyst og ekki er búist við
eins mörgum í skólann og áður
var talið. Taka þarf þó tillit til
þess að fjöldi nemenda er við
þanmörk og m.a. verður tölvu
stofa lögð af og nemendur í
5.10. bekk fá spjaldtölvur í
staðinn. Ekki kemur fram hvern
ig þjálfun í innslætti með réttri
fingrasetningu verður kennd við
skólann.
Skólastjóri hefur leitað lausna
varðandi skipulag varðandi
fyrirkomulag kennslu næsta
vetur, einkum um það sem snýr
að 7. og 10. bekk. Sú hugmund
sem unnið er eftir fellst í því að
áfram verða þrjár bekkjardeildir í
báðum þessum árgöngum eins
og verið hefur en 10. bekk verður
skipt upp í fjóra námshópa.
Þetta kom m.a. fram þegar
fræðsluráði var kynnt niðurstaða
sem fengist hefur í húsnæðis
málum Áslandsskóla í samráði
við skólastjórnendur og foreldra
barna í skólanum.
Samkvæmt henni er nægt rými
í núverandi húsnæði skólans
fyrir þann fjölda nemenda sem
spár um íbúaþróun gefa til kynna
að verði á komandi árum. Á
fundi fræðsluráð i nóvember
2014 var ákveðið á falla frá því
að byggja við skólann eins og
áform höfðu verið uppi um. Þess
í stað verði fjárfest í innra starfi
skólans sem um leið taki forystu
í innleiðingu upplýsingatækni í
hafnfirsku skólastarfi. Bæjar
stjórn staðfest síðan tillöguna og
í framhaldinu hefur verið fundað
með skólastjórnendum, foreldr
um og foreldraráði skólans þar
sem farið hefur verið ítarlega yfir
útfærslu og forsendur ákvörð
unar innar.
Leysa spjaldtölvur vanda?
Kennarar hafa þegar fengið
spjaldtölvur afhentar og undirbúa
þeir nú að taka upplýsingatækn
ina af fullum krafti inn í skóla
starfið á komandi hausti.
„Við ætlum að vera leiðandi í
notkun spjaldtölva í skólastarfi
og það er mikill áhugi til staðar
meðal kennara og nemanda í
skólanum,“ segir Leifur Garðars
son skólastjóri Áslandsskóla.
„Við sjáum ótal möguleika og
leiðir til samvinnu milli nemanda
og kennara. Kennarar hafa
faglega þekkingu á náminu en
nemendur eru sumir með góða
tækniþekkingu. Þannig getum
við eflt samvinnunám enn
frekar,“ segir Leifur.
Miklar efasemdir komu fram á
fjölmennum foreldrafundi um
húsnæðismálin en skv. minnis
blaði sem starfsmenn bæjarins
hafa unnið er ekkert því til
fyrirstöðu að taka við þeim
fjölda nemenda sem áætlað er að
verði í skólanum
Hressir nemendur Áslandsskóla.
Enginn húsnæðisvandi í Áslandsskóla
Hópastarf í stað þess að sameina bekkjardeildir
Skapandi Hafnarfjörður
Hafnarfjörður er skemmtilegur
bær og skemmtilegt er að búa
hér. Þó er eitt af markmiðum
núverandi bæjaryfirvalda að
„Skemmtilegri Hafnarfjörður“
verði að veruleika á næstu
vikum, mánuðum og
árum. Því er það
ánægju legt að íþrótta
og tómstundanefnd
Hafnarfjarðar sam
þykkti á fundi sínum
þann 16. mars síðast
liðinn að Vinnuskóli
Hafnarfjarðar muni
standa fyrir þeirri nýj
ung í sumar að bjóða
upp á Skapandi sumar
störf sumarið 2015 fyrir ungt
fólk á aldrinum 17 20 ára sem
hafa lögheimili í Hafnarfirði.
Áætlað er að allt að 10 manns
veljist til að taka þátt í þessu
verkefni eða 2 3 hópar og rennur
umsóknarfrestur út þann 15.
apríl n.k. Þeim sem veljast í slíkt
verkefni er ætlað að glæða bæinn
lífi, gera hann skemmtilegri,
fallegri og fjölbreyttari með
listrænum og skapandi uppá
komum. Verkefnin þurfa að vera
fjölbreytt og höfða til mis mun
andi aldurshópa og áhugasviða.
Er þetta m.a. hluti af valdeflingu
ungs fólks, að það þurfi
að skila sjálft inn
umsókn þar sem lýsa
þarf verkefninu og
markmiðum þess sem
og fjárhagsáætlun og
tíma og verkáætlun.
Þetta er eitthvað sem
hefur verið boði í ná
granna sveitarfélög
unum síðustu ár og nú
er komið að okkur í
Hafnarfirði að bjóða upp á þenn
an valkost. Vil ég nota tækifærið
og hvetja alla þá sem hafa áhuga
á því að glæða bæinn okkar lífi
og gera „Skemmtilegri Hafnar
fjörð“ að veru leika, að sækja um
til að eiga tækifæri á að láta ljós
sitt skína í sumar.
Höfundur er formaður íþrótta-
og tómstundanefndar (Æ).
Matthías Freyr
Matthíasson
Vilja Flensborg út úr
íþróttahúsinu eftir kl. 15
Að beiðni Badmintonfélags
Hafnarfjarðar hefur stjórn
Íþróttabandalags Hafnarfjarðar
ritað íþrótta og tómstundanefnd
bréf þar sem óskað er eftir að
nefndin segi upp samningi við
Flensborgarskólann um tíma í
Íþróttahúsinu við Strandgötu
frá kl. 15 á daginn frá og með
haustinu 2015. Er farið fram á
að þeir tímar verið afhentir ÍBH
til afnota. Segir í bréfinu að
Hafnarfjarðarbær sé ekki skylt
að skapa framhaldsskólum í
bænum aðstöðu fyrir lögbundna
íþróttakennslu. Eðlilegra sé að
yngri iðkendur aðildarfélaga
ÍBH geti nýtt þessa tíma.
Í bréfinu er einnig bent á að
Badmintonfélagið geri einnig
athugasemdir við útreikning
íþróttafulltrúa á húsaleigustyrk
sem reiknaður sé íþrótta félög
unum. Ekki sé farið eftir ákv. í
3. gr. samstarfssamnings Hafn
ar fjarðarbæjar og ÍBH þar sem
segir að reikna skuli ÍBH leigu
fyrir sem næst sannvirði rekstr
arkostnaðar. Tölurnar séu ekki
endurreiknaðar á milli ára og
séu því ónákvæmar. Þannig sé
rekstrarkostnaður sagður um 12
þús. kr. í Íþróttahúsinu við
Strand götu og gjaldfært á ÍBH
á meðan t.d. Flensborgarskólinn
sé rukkaður um 7 þús. kr. Þetta
ósamræmi þurfi að laga.
Hafnarfjarðarbær styrkir
íþróttafélögin með aðgangi að
tímum í íþróttahúsum og bók
færir styrk að sömu upphæð og
reiknaða leigan er.
Hafnarfjarðarkirkja
100 ára 1914-2014
©
1
50
3
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.
BÆN ÞJÓÐAR
Upprunaflutningur á öllum Passíusálmum Hallgríms
við lögin sem þjóðin kunni og söng um aldir.
Sönghópurinn Lux Aeterna syngur
alla daga dymbilviku í Hafnarfjarðarkirkju
frá pálmasunnudegi til föstudagsins langa:
Pálmasunnudagur 29. mars kl. 17-19
Mánudagur 30. mars kl. 17-19
Þriðjudagur 31. mars kl. 17-19
Miðvikudagur 1. apríl kl. 17-19
Skírdagur, 2. apríl kl. 17-19
Föstudagurinn langi, 3. apríl kl. 17-19
Einstakur viðburður!
Aðgangur ókeypis – Verið velkomin
Fólk getur komið og farið að vild.
S: 698 83 84
Öll alhliða jarðvinna
Snjómokstur | Lagnavinna
Lóðarvinna og frágangur
sími 698 384
gröfuverk@grofuverk.is
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n