Fjarðarpósturinn - 26.03.2015, Síða 7
www.fjardarposturinn.is 7FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
Helgi hættir í Hvale yrar skóla
Stefán Ingvarsson varð um
helgina tvöfaldur Íslandsmeistari
unglinga á Íslandsmótinu í
áhalda fimleikum sem haldið var
í fimleikahúsi Ármenninga um
helgina. Stefán sigraði í úrslitum
á hringjum og á svifrá, og fékk
auk þess tvenn silfurverðlaun, á
bogahesti og á tvíslá. Stefán
keppti einnig til úrslita á stökki og
endaði í 5. sæti. Í fjölþrautar
keppninni sem fram fór á laugar
dag hafnaði þessi ungi efnilegi
fimleikamaður í 3. sæti, eftir harða
keppni við þá Aron Frey Axelsson,
Ármanni, sem varð í 1. sæti og
Martin Bjarna Guð munds son,
Gerplu, sem varð í 2. sæti.
Bjarkarpiltar fóru með ein
verðlaun til viðbótar í flokki
ungl inga frá þessu móti þar sem
Orri Geir Andrésson varð í 3.
sæti á tvíslá. Glæsilegur árangur
það hjá ungum fimleikamanni
sem á enn eftir að keppa í nokkur
ár í flokki unglinga en Orri Geir
var einnig í úrslitum á hringum
þar sem lann endaði í 5. sæti.
Bjarkarstúlkurnar Nína María
Guðnadóttir og Margrét Lea
Kristinsdóttir áttu einnig prýðis
gott mót. Margrét Lea hafnaði í
2. sæti í fjölþraut í flokki ungl
inga og Nína María í 3. sæti.
Sigur vegari í flokki unglinga í
fjölþraut varð Nanna Guðmunds
dóttir, Gróttu. Í úrslit um á áhöld
um fengu þær báðar silfur
verðlaun, Nína María á tvíslá og
Margrét Lea á slá. Þær stöllur
kepptu til úrslita á fleiri áhöldum.
Margrét Lea varð í 5. sæti á tvíslá
og Nína María varð í 5. sæti á slá
og gólfi. Aðrir keppendur frá
Björk sem stóðu sig einnig með
prýði, öll í flokki unglinga, voru
þau Breki Snorrason. 10. sæti í
fjölþraut, Fannar Logi Hann
esson, 9. sæti í fjölþraut og Sara
Mist Arnar, 13. sæti fjölþraut.
Stefán Ingvarsson, Vladimir Zaytsev þjálfari og Orri Geir
Andrésson, stoltir með árangurinn.
Stefán Íslandsmeistari unglinga
Orri Geir fékk brons á tvíslá á Íslandsmóti í áhaldafimleikum
Starfsmenn óskast í aðhlynningu
á Hrafnistu í Hafnarfirði
Óskum eftir að ráða sem fyrst starfsmenn í 80%
starfshlutfall í aðhlynningu á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Um er að ræða morgun-, kvöld- og næturvaktir. Unnið er
aðra hvora helgi.
Gefandi starf á góðum vinnustað fyrir 20 ára og eldri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Saskia Freyja Schalk,
sérfræðingur í mannauðsdeild (mannaudur@hrafnista.is).
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu hrafnistu,
www.hrafnista.is
HRAFNISTA HAFNARFIRÐI
HRAFNISTA
Reykjavík I Hafnarörður
Kópavogur I Reykjanes
www.hrafnista.is
Stimulastik
Örvun og leikfimi fyrir börn
Nýtt námskeið, Stimulastik,
var að hefjast hjá Listdansskóla
Hafnarfjarðar. Námskeiðið er
ætlað börnum frá fæðingu til 2ja
ára aldurs.
Stimulastik er hannað af
dönskum iðjuþjálfa og er orðið
samsett úr orðunum „stimu
lation“ og „gymnastik“ eða
örvun og leikfimi og mætti því
kalla Örfimi á íslensku. Tilgangur
með Stimulastik er að efla og
styrkja börn gegnum þá gleði
sem hreyfing og leikur gefa.
„Við erum að örva snerti,
jafnvægis og stöðuskyn, sem er
undirstaða allrar hreyfigetu, sem
og félagslegrar og vitrænnar
færni,“ segir Hafdís Sigríður
Sverrisdóttir, iðjuþjálfi og
vinnuvistfræðingur.
„Við viljum að börnin okkar
geti lesið, skrifað, hjólað og
klifrað án erfiðleika. Stimulastik
getur stuðlað að því að börnin
öðlist betri færni í þessu,“ segir
Hafdís sem hefur sérhæft sig í
hreyfiþroska barna. Einnig er
hún menntuð TeBa Therapeut,
en sú þekking gengur út á
tengslamyndun ungabarns og
móður. Nánari upplýsingar má
sjá á www.mommusetur.is .
Námskeiðin eru í 8 skipti og
kennt er í tveimur hópum, frá
fæðingu til 6 mánaða og 6
mánaða til 2ja ára.
Yngri en 6 mánaða verður
kennt kl. 9 en þeim eldri kl. 11 í
húsnæði Listdansskóla Hafnar
fjarðar að Bæjarhrauni 2. Kennt
verður á mánudögum og
miðvikudögum.
Næsta námskeið hefst mánu
daginn 27. apríl og er til 20. maí.
Skráning er hafin á vef List
dansskóla Hafnarfjarða www.
listdansskoli.is.
Tónleikar Lúðrasveitarinnar
Gamli slagarinn Misty í einleik
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
heldur tónleika í Hamarssal
Flens borgarskólans á laugar
daginn kl. 14.
Á efnisskránni er meðal annars
að finna verk eftir lúðra sveita
tónskáldin Philip Sparke, Jacob
de Haan og Franco Cesarini, sem
allir hafa komið við sögu á
tónleikum LH síðustu árin.
Sousa verður heldur ekki langt
undan.
Einleikari á tónleikunum er
Valgeir Geirsson, sem þenur
draglúðurinn og leikur gamla
slagarann Misty eftir Erroll
Garner. Stjórnandi Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar er Rúnar Ósk
arsson.
Aðgangur er ókeypis fyrir
börn og unglinga yngri en 16 ára.
FJÖRÐUR Páll B. Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Ársæll Ó.
sölufulltrúi
896 6076, as@remax.is
Lækjargötu 34d, Hafnarfirði
Vantar eignir á skrá
Mikil eftirspurn! Frítt söluverðmat
Helgi Arnarson hefur sagt
upp stöðu sinni sem skólastjóri
í Hvaleyrarskóla eftir 9 ára
farsælt starf. Hann hefur verið
ráðinn sem sviðsstjóri fræðslu
sviðs Reykjanesbæjar.
Sagði hann upp starfi sínu
með bréfi 18. mars og óskar
hann eftir að ljúka störfum 1.
júní nk.
Starf skólastjóra hefur þegar
verið auglýst.
Hvaleyrarskóli tók til starfa
árið 1990. Í skólanum eru
samtals 405 nemendur, 61
starfsmenn, þar af 45 kennarar.
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • 220 Hafnarrði • 555 4855 • steinmark.is • steinmark@steinmark.is
Ársskýrslur
Stafræn prentun