Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.12.2014, Síða 18
Sagan af Paddington, bangs-anum sem elskar samlokurmeð appelsínumarmelaði, er
að vissu leyti jólasaga, eiginlega
er hann dálítið jólakraftaverk!
Að kvöldi aðfangadags 1956 var
Michael Bond, myndatökumaður
hjá BBC í London, á leið heim
úr vinnunni en leit inn í litla
verslun rétt hjá Paddington-
lestarstöðinni og sá þar sorg-
mæddan bangsa aleinan uppi í
hillu. Hann keypti bangsann og
gaf konunni sinni í jólagjöf en
um leið kviknaði hjá honum hug-
mynd að sögu.
Michael hafði áður skrifað smá-
sögur svo hann settist við skriftir
þessi jól og á tíu dögum lauk
hann við fyrstu bókina um Padd-
ington, einmanalegan björn frá
Perú sem Brown fjölskyldan finn-
ur á Paddington-lestarstöðinni og
tekur að sér. Fyrsta bókin kom
út í október 1958, uppfull af smá-
sögum um ævintýrin sem þessi
yfirmáta kurteisi, en oft og tíðum
seinheppni, björn lendir í þar sem
hversdagslegustu athafnir eins og
bað eða verslunarferð geta komið
bangsanum í talsvert klandur.
Paddington-bækurnar komu út
þétt og reglulega framundir lok
8. áratugarins, en eftir það var
farið að gera upp úr þeim litlar
litmyndabækur og svo sjónvarps-
þætti. Flest börn undir fimmtugu
kannast því við Paddington og
marmelaðiklístruðu loppurnar
hans.
Orðinn kvikmyndastjarna
En nú er vinalegi bangsinn orð-
inn að kvikmyndastjörnu því í lok
nóvember var myndin um hann
frumsýnd í London. Og spenning-
urinn hefur verið slíkur að öll
borgin ber þess merki. Hvorki
fleiri né færri en 50 Paddington-
styttum hefur verið komið fyrir
hér og hvar í miðborg Lundúna,
hver þeirra fagurlega skreytt af
listamönnum, hönnuðum og fræg-
um stjörnum á borð við Emmu
Watson og Benedict Cumber-
batch.
Styttan á Paddington-stöðinni
er þó eins og bangsinn hefur nær
alltaf verið, með þvældan, rauðan
hatt og í bláum ullarjakka, enda
hönnuð af Michael Bond sjálfum.
Stytturnar standa nærri áhuga-
verðum og vinsælum ferða-
mannastöðum í London, t.d. hjá
breska þinginu, Ripley‘s safninu
og á Trafalgar-torgi. Hægt er að
finna kort af styttunum á netinu
og fylgja sérstakri Paddington
slóð um London fram til áramóta.
Stór hluti styttnanna verður síðan
boðinn upp og fer allur ágóðinn
af sölu þeirra til góðgerðarmála
en flesta grunar að stytturnar
hverfi ekki allar sjónum almenn-
ings heldur muni kaup-
endur þeirra finna
þeim nýja staði.
Innsigluð með
loppufari
Allar betri bókabúð-
ir í London hafa
sett upp sérstakt
Paddington-horn þar
sem nýjar prentanir
af bókunum um hann
bíða þess að ný börn
uppgötvi þennan talandi
bangsa en einnig kom út
nýlega enn ein Padd-
ington bókin, „Love
from Paddington“ en
það er safn sendi-
bréfa sem bangsinn
hefur sent Lucy
frænku sinni í Lima
eftir komuna til London.
Og að sjálfsögðu voru
öll bréfin innsigluð með
klístrugu loppufari.
KURTEIS EN HELDUR ÓHEPPINN BANGSI MEÐ MARMELAÐIKLÍSTRAÐAR LOPPUR
Ástsælasti björn Breta
HINN BRESKI PADDINGTON BANGSI HEFUR ÁTT HUG OG HJÖRTU BRESKRA BARNA Í HÁTT Í 60 ÁR. FYRSTA BÓKIN UM
ÞENNAN TALANDI, KURTEISA BANGSA KOM ÚT ÁRIÐ 1958 EN KVIKMYND UM HANN VAR FRUMSÝND Á DÖGUNUM.
ÞÁ HEFUR 50 PADDINGTON-STYTTUM VERIÐ KOMIÐ FYRIR HÉR OG HVAR Í LUNDÚNARBORG.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com
50 styttum af Paddington bangsa
í fullri stærð hefur verið komið
fyrir víða um Lundúnaborg.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.12. 2014
Rúna Magdalena Guðmundsdóttir
er eigandi hárgreiðslustofunnar
Hárgallerí á Laugavegi 27. Hún og
eiginmaður hennar Sigurður Kaldal
eiga þrjú börn, Vilhjálm Kaldal,
Írenu Líf og Ingibjörgu Kaldal.
Fimmti fjölskyldumeðlimurinn er
hundurinn Nótt sem færir þeim
mikla gleði og kátínu. Fjölskyldan
nýtur þess að eiga sunnudaga sam-
an í notalegheitum.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Við stelpurnar erum duglegar að
horfa saman á létta þætti þar sem
mikið er hlegið svo sem Ástríði,
Stelpurnar og Modern family en
það er ansi erfitt að draga karl-
mennina frá þessu fótboltaglápi. Ef
ég fengi að ráða þá myndi ég vilja
skammta þeim minni tíma í þetta
áhorf en það gerist aðeins í
draumalandi.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum? Nýjasta æðið á heimilinu er
grillaður heill kjúklingur með soði
eins og foreldrar mínir gerðu alltaf
í gamla daga. Annars er sushi og
tacos í miklu uppáhaldi hjá öllum
og við getum ekki beðið eftir kal-
kúninum á að-
fangadag.
Skemmtilegast að
gera saman? Sunnu-
dagarnir geta verið
ansi kósý þegar við
erum öll saman og
fáum okkur brunch
og liggjum í leti.
Unglingarnir eru samt
ansi fljótir eitthvað út
eftir hádegismatinn. Það
kannast örugglega allir
við það.
Borðið þið morgunmat
saman? Það
gerist ansi
sjaldan þar
sem við þurf-
um að vera mætt á hinum
ýmsu tímum, það er þá
helst með yngstu prinsess-
unni.
Hvað gerið þið saman
heima ykkur til dægra-
styttingar? Við nýtum
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Rúna Magdalena
Guðmundsdóttir
Góðir göngutúrar í Laugardalnum
Fjölskyldan Hvar og hvenær? Heiðmörk við Elliðavatn, laugardag og sunnudag kl.11-16. Nánar: Jólamarkaður verður opinn í Heiðmörk allar aðventu-
helgarnar. Þar má finna úrval af handverki, skartgripum, fjölbreyttar ull-
ar- og leðurvörur og margt fleira sem gæti verið sniðugt í jólapakkann.
Jólamarkaður í Heiðmörk
Silfur 925, ykkar teikning.
Verð 19.800 kr.
AFP