Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.12.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.12.2014, Blaðsíða 44
Stjörnukortið GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON www.islenskstjornuspeki.is Talar við alla um allt milli himins og jarðar Dagur B. Eggertsson er með eindæmum ljúfur og yfirvegaður maður. Ég efast um að til sé svo mikið sem eitt slæmt bein í honum. Það eru engin óheilindi í honum. Hann er Tvíburi í grunneðli sínu. Einkenni þessa ágæta merkis er að miðla upplýsingum, vera á ferðinni og ræða við alla sem á vegi hans verða. Að sumu leyti er Dagur B. sérkennilegur. Hann er opinn og vinsamlegur, félagslyndur, en samt sem áður frekar ópersónulegur. Hann talar við alla um allt milli himins og jarð- ar, hleypir gestum og gangandi heim til sín á menningarnótt, en er samt sem áður lítið fyrir að tala um sjálfan sig og tilfinningar sínar. Af hverju er Dagur B., menntaður læknir, að þvælast í stjórnmálum? Ég tel að stór ástæða liggi í þörf Tvíburans fyrir hreyfingu og tilbreytingu. Það er oft sagt um Tvíbur- ann, og ég biðst afsökunar á orðalaginu, að hann hafi njálg í rassinum. Ég held að þar liggi stór skýring. Vitsmunalegt eirðarleysi ásamt félagslyndi þýðir að hann nennir ekki að vinna sem læknir, sitja inni við og fást við sömu verkefnin alla daga. Auðvitað svarar Dagur B. þessu á þann hátt að hann hafi áhuga á skipulagsmálum og vilji leggja sitt af mörkum til hins stóra samfélags. Nokkuð sem er auðvitað rétt, en er aðeins hluti af sög- unni. Brokkgeng máltjáning Dagur B. er með hugsun og máltjáningu í Krabbamerkinu. Slík hugsun er myndræn og tilfinningatengd. Þar tel ég að helsti veikleiki hans liggi. Það er oft á tíðum erfitt að skilja hvað hann er að fara. Fjölmiðlamaður er með Dag B. í viðtali. Hann stendur fyrir framan ráðhúsið, gullfallegur maður, hárið blæs til í vindinum, hann réttir út höndina og reynir að hafa stjórn á óstýrilátum lokkum, og orðin bögglast einhvern veginn út úr honum. Já, það er stundum erfitt að vita hvað hann er að segja og hvert hann er að fara. Dagur B. er íhaldssamur í hugsun, en jafnframt því framfarasinnaður. Hann hefur lúmskt gaman af því sem er öðruvísi. Það sést á hrifningu hans á Jóni Gnarr og því að hann gat unnið með Besta flokknum. Um leið sýndi það samstarf hversu lítil óheilindi eru í sál Dags B. Einhver lymskari og eigingjarnari stjórnmálamaður hefði stungið hníf- um í bakið á einhverjum í slíku hjónabandi. Málefnalegur en kannski flatur? Dagur B. er Tvíburi (Venus) og Vog (Tungl) á tilfinningasviðinu. Skyn- semi og rök stjórna tilfinningum. Hann bregst við á vitrænan hátt. Það þýðir að Dagur er ekki maður sem æsir sig eða missir stjórn á sér. Hann er geðgóður og ljúfur. Hann er málefnalegur. Hann talar við fólk. Hann stjórnar ekki með því að skapa ótta. Hann kúgar fólk ekki tilfinn- ingalega. Að mörgu leyti veit hann ekki hvað tilfinningar eru eða þekkir a.m.k. ekki dekkri og grimmari hliðar þeirra. Og þá er komið að neikvæðu hliðinni. Dagur B. á til að vera eilítið flatur. Góður og þægilegur maður, en er hann skemmtilegur? Nei, ekki í þeirri merkingu að hann hoppi upp á vörubílspalla og sé með einhverja stæla. Til þess er hann alltof kurteis. En til að auðsýna fulla sanngirni, þá skiptir þetta nákvæmlega engu máli. Stjórnmálamenn þurfa ekki að vera skemmtikraftar. Dagur B. er heiðarlegur. Það skiptir öllu. Tími til að breytast? Ég hef ekki mörg ráð að gefa þér, Dagur. Þú ert einn af þessum farsælu mönnum sem eru sáttir í eigin skinni. Málefnalegur félagshyggjumaður. Ég tel að þú þurfir helst að huga að talandanum. Þjálfa þig betur í því að koma boðskap til skila. Nota myndræn hjálpartæki. Ef þér tekst að verða beinskeyttari í miðlun hins talaða orðs, þá tel ég að þú hafir alla burði til að verða yfirburðamaður í stjórnmálum. Ná alla leið eins og þar stendur. Það kann að hljóma einkennilega, en ég tel að það vanti smá kvikindi og húmor í þig. Ég man þegar Ingibjörg Sólrún og hinn bláeygi Árni Sigfússon voru að berjast um borg- ina. Árni var eins og saklaust barn í höndunum á hinni hvössu Ingibjörgu. Það býr ákveðin illkvittni í Íslendingum. Þú virkar svolítið barnalegur við hliðina á sumum af stærstu leiðtogum okkar. En kannski er tíminn að breytast? Hin nýja kynslóð Íslendinga vill kannski mann eins og þig. Málefnalegan og kurteisan stjórnmálamann. Stjórnmálamenn þurfa eigi að síður að hafa bein í nefinu. Spurningin, Dagur, er þessi: Ert þú átakafælinn? Þorir þú og getur tekið menn á beinið, þ.e.a.s. þá sem eru ekki að standa sína plikt? Leiðtogar þurfa að sjá til þess að vélin gangi smurt. Hreinlega reka þá sem ekki standa sig. Mitt ráð er að þú þróir með þér málefnalega ákveðni. Talir við menn, endilega, en grípir í taumana þegar nóg er komið. Að lokum, ráð til þín sem um leið er ráð til allra Tvíbura. Þú þarft að hafa marga bolta á loft, mörg járn í eldinum. Boltarnir mega hvorki vera of fáir né of margir. Þú þarft sem sagt að forgangsraða verkefnum þínum, þannig að of mikið af tíma þínum fari ekki í mas um allt og ekkert. Félagslyndur en ópersónulegur DAGUR B. EGGERTSSON ER FÆDDUR 19. JÚNÍ 1972, KL. 23.50 Í ÓSLÓ, NOREGI. SÓL (GRUNNEÐLI OG LÍFSORKA) OG VENUS (SAMSKIPTI) ERU Í HINUM FÉLAGSLYNDA OG EIRÐARLAUSA TVÍBURA, TUNGL (TILFINNINGAR OG VANAHEGÐUN) Í HINNI LJÚFU OG FÉLAGSLYNDU VOG, MERKÚR (HUGSUN) OG MARS (BARÁTTUORKA) Í HINUM UMHYGGJUSAMA KRABBA, RÍSANDI MERKI (FRAMKOMA) Í HINUM SVALA OG YFIRVEGAÐA VATNSBERA OG MIÐHIMINN (MARKMIÐ) Í HINUM FRJÁLSLYNDA BOGMANNI. ÕGrunneðli ] Vitsmunir Y Tilfinningar — Ráðleggingar Morgunblaðið/Ómar Tvíburinn 21. maí 20. júní Tvíburinn er síðasta vormerkið. Lok maí og júní er tími heimsókna og ferðalaga, því ófærð og kyrr- staða vetrarins er að baki. Sumarið er handan við hornið og góðviðri ríkjandi. Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni eru einkennandi, en jafnframt því hreyfanleiki og félagslyndi. Tvíburinn þarf fjölbreytni til að viðhalda lífsorku sinni og líður hvað best þegar hann þarf að sinna mörgum verkefnum á sama tíma. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, enda er „Ég þarf aðeins að skreppa“ ein af uppáhaldssetningum hans. o  Dagur Bergþóruson Eggertsson fæddist í Osló 19. júní 1972.  Hann er uppalinn í Árbæjarhverfi, sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Berg- þóru Jónsdóttur lífefnafræðings. Maki Dags er Arna Dögg Einarsdóttir læknir á Land- spítalanum – háskólasjúkrahúsi. Þau eiga dæturnar Ragnheiði Huldu og Móeiði og synina Steinar Gauta og Eggert.  Dagur lauk embættis- prófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1999 og meistaraprófi í mannréttindum og al- þjóðalögum frá háskól- anum í Lundi 2005.  Dagur hefur komið víða við á sínum starfs- ferli. Hann starfaði sem læknir á ár- unum 2000-04. Hann er höfundur ævisögu Steingríms Hermannssonar, I-III (útg. 1998-2000). Frá 1995-98 var hann dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, Rás 1. 1995-1996 var Dag- ur framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna og starfandi formaður Stúd- entaráðs Háskóla Íslands frá 1994-95. Sumarið 1993 var Dagur blaðamaður á DV.  Dagur hefur setið í borg- arstjórn frá 2002. Hann var fyrst borgarstjóri frá októ- ber 2007 til janúar 2008 og aftur frá júní 2014. Dagur er eini maðurinn sem hefur gegnt embætti borgarstjóra oftar en einu sinni. Hann var varafor- maður Samfylk- ingarinnar frá 2009- 2013. DAGUR B. EGGERTSSON BORGARSTJÓRI 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.12. 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.