Fréttablaðið - 10.08.2015, Side 4
10. ágúst 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LÖGREGLUMÁL Íslendingar skrifa
ummæli undir nafninu Huldumað-
ur á íslensku spjallborði, hýstu á
bandarískri síðu, þar sem haturs-
áróðri er dreift. Skrifað er um
hatur á útlendingum, múslimum,
konum, hinsegin fólki, gyðingum,
Pólverjum og blökkumönnum svo
fátt eitt sé talið.
Síðan er virk enn í dag og skipt-
ust gestir meðal annars á skoð-
unum um HIV-smitaða hælis-
leitandann sem fjallað var um í
Fréttablaðinu í júlí. Einn Huldu-
mannanna á spjallborðinu velti til
dæmis fyrir sér hugsunarhætti
íslenskra kvenna. „Ég ætla að sofa
hjá negra og ekkert slæmt mun
gerast,“ skrifaði nafnleysinginn.
Einnig virtist íslam spjall-
borðsgestum hugleikið. Mörg
ummæli hvöttu til útrýmingar
múslima og vildu margir hverjir
láta banna trúna í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Huldumennirnir svoköll-
uðu deildu einnig fæðingarárum
sínum í spjallþræði. Þar kom í ljós
að meðal aldurinn er frekar ungur
og eru þar margir undir átján ára
aldri. Sá yngsti sem lét aldurs síns
getið sagðist vera fæddur árið
1999.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn á höfuðborgar-
svæðinu, segir lögreglu ekki hafa
frétt af síðunni áður en Frétta-
blaðið benti á hana. „Við munum
væntan lega kíkja á þetta og hvers
eðlis þetta er,“ segir Friðrik.
„Ef það er hægt að rekja
ummælin til einstaklinga og færa
sönnur á að þetta sé frá þeim og
þess eðlis að þau brjóti í bága við
lög eru væntanlega einhver úrræði
fyrir hendi,“ segir Friðrik. Hann
segir enn fremur þurfa að skoða
hvort hægt sé að loka síðunni en
ekki er víst hvort það er lagalega
framkvæmanlegt.
„Það hafa komið upp dæmi um
síður og dæmi um erlendar síður
þar sem ekki er hægt að rekja
ummæli til tiltekinna einstak-
linga. Það er erfitt að eiga við
þetta.“
Síðan er ekki fyrsta síðan
þar sem Íslendingar dreifa hat-
ursáróðri. Fréttastofa Stöðvar 2
greindi frá því í apríl síðastliðnum
að Bandaríkjamaðurinn Donald
Pauly héldi úti kynþáttaníðssíð-
unni bardaga.org þar sem tveir
ungir drengir, búsettir á Íslandi,
eru níddir. Síðan er hýst í Banda-
ríkjunum. Auk þess greindi DV frá
íslenskri hatursáróðurssíðu árið
2012. thorgnyr@frettabladid.is
BROT AF ÞEIM UMMÆLUM SEM FINNA MÁ Á SPJALLBORÐINU
SPURNING DAGSINS
Viltu meðhöndla liðverkinn
án þess að taka töflur?
150g50%
meira m
ag
n!
Prófaðu að meðhöndla liðverkina
með Voltaren geli.
Lyfjaauglýsing
Baldur, er forsetinn ekki nógu
hýr?
„Með örgum forseta myndi sannar-
lega hýrna yfir Bessastöðum.“
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur
sagði frá því í helgarblaði Fréttablaðsins að
það væri kominn tími á samkynhneigðan
forseta á Íslandi.
MANNLÍF „Ég á svolítið erfitt með
að tala núna þar sem munnur-
inn á mér allur í salti en ég geri
mitt besta,“ segir Sigrún Þuríður
Geirsdóttir, en hún varð aðfara-
nótt sunnudags fyrsta íslenska
konan til að synda einsömul yfir
Ermarsund. Sundið tók Sigrúnu 23
klukkustundir og 30 mínútur.
Þar til í gær hafði Benedikt
Hjartarson verið eini Íslending-
urinn til að ná þeim áfanga en
það gerði hann árið 2008. Stysta
leið yfir sundið er 34 kílómetrar í
beinni loftlínu en vegalengdin sem
Sigrún synti var sennilega tvöfalt
lengri þar sem straumar hafsins
báru hana af leið. - jóe
Synti ein yfir Ermarsundið:
Með munninn
fullan af salti
SUND Sigrún synti ein yfir Ermarsund-
ið, fyrst íslenskra kvenna. MYND/SIGRÚN
LÖGREGLUMÁL Íslensk kona sem
situr í fangelsi í Bretlandi getur
búist við allt að 20 ára fangelsi
fyrir aðild sína að vörslu á þrettán
kílóum að heróíni.
Hún og fjórir Bretar eru einnig
ákærð fyrir peningaþvætti. Breski
vefmiðillinn Liverpool Echo segir
að konan heiti Kolbrún Ómarsdótt-
ir. Kolbrún var handtekin í heima-
húsi í úthverfi Liverpool þann 7.
júlí síðastliðinn Auk þrettán kílóa
af heróíni fannst reiðufé að jafn-
virði 209 milljóna króna. - kbg
Íslensk kona í heróínmáli:
Gæti endað í 20
ára fangelsi
Rita hatursáróður á íslenskt
spjallborð í skjóli nafnleyndar
Íslendingar skrifa nafnlaus ummæli á spjallborði sem hýst er á erlendri síðu. Hatursáróður gegn konum, hins-
egin fólki, múslimum og fleiri hópum er áberandi á síðunni. Óljóst er hvort hægt sé að loka umræddri síðu.
LÖGREGLUMÁL „Ég fór í vinnuna á
föstudegi og sé að kötturinn minn
er eitthvað skrítinn. Er ég kom
heim í lok dags sá ég að hann var í
raun fárveikur,“ segir Aðalsteinn
Magnússon, íbúi í Hveragerði, en
annar katta hans var aflífaður í
nótt. „Ég fór með hann til dýra-
læknis og hann var greindur með
lungnabólgu. Svo frétti ég það í
gær að það hefði fundist blátt fisk-
flak hjá húsi beint á móti mér og
að fleiri kettir væru lasnir,“ segir
Aðalsteinn.
Talið er að minnst fjórir kettir
hafi drepist sökum þessa. Einn
köttur liggi veikur og sömu sögu
er að segja af hundi þar í bæ. Að
sögn Aðalsteins er einnig óvenju
margir dauðir fuglar í görðum og
á götum Hveragerðis í dag.
„Ég veit eiginlega ekki hvað ég
á að segja. Ég svo reiður og sár á
sama tíma,“ segir Aðalsteinn.
„Það er ekkert vitað hver var
að verki eða hvað honum gekk til.
Annað hvort er hér í bænum ein-
hver virkilega veikur einstakling-
ur sem er að leika sér að því að
drepa dýr eða hann hefur dreift
þessu á þök til að drepa máva og
þaðan hefur þetta dottið á jörðina.
Hvort sem það er þá er þetta ekki
gáfulegt,“ segir Aðalsteinn.
Frá lögreglunni á Suðurlandi
fengust þær upplýsingar að rann-
sókn málsins væri á frumstigi.
Ekki væri víst að eitrað hefði verið
fyrir nokkrum dýrum. Lögreglan
hefði einungis bláan fiskbita undir
höndum sem ætti eftir að efna-
greina. - ih, jóe
Talið er að fjórir kettir hafi drepist í Hveragerði um helgina auk þess sem einn köttur og hundur hafa veikst:
Grunur um að eitrað hafi verið fyrir dýrum
KÖTTURINN PÚTÍN Sviplegt fráfall
katta í Hveragerði veldur reiði.
0
9
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:1
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
F
-1
D
5
4
1
5
A
F
-1
C
1
8
1
5
A
F
-1
A
D
C
1
5
A
F
-1
9
A
0
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K