Fréttablaðið - 10.08.2015, Page 6
10. ágúst 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
GRJÓNAGRAUTUR
alveg mátulegur
Nú einnig í litlum umbúðum– fullkominn skammtur fyrir einn
TILBÚINN TIL NEYSLU
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-1
3
9
7
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
GIRÐINGAR!
Leitið tilboða!
Vinnustaðagirðingar
330cm x 200cm.
Steyptar undirstöður
og samtengingar.
LÖGREGLUMÁL Fræðslufundur um
mansal á Vestfjörðum varð til þess
að formaður verkalýðsfélags í Bol-
ungarvík ákvað að kalla þyrfti til
mansalsteymi að sunnan vegna
máls sem hafði verið rannsakað
sem fjárkúgun í heilt ár.
„Við höfum lært heilmikið af
þessu. Ég fór fyrst á námskeið um
mansal á formannafundi á Ísafirði
og þetta mál kom upp í kjölfarið,“
segir Lárus Benediktsson, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Bolungarvíkur, um meint
mansalsmál er varðar fiskvinnslu
í Bolungarvík og lögreglan á Vest-
fjörðum rannsakar.
Lárus fékk, í kjölfar fræðsluer-
indisins sem var haldið í septem-
ber fyrir ári, erindi frá Pólverj-
um sem störfuðu í fiskvinnslu í
Bolungarvík. Lögreglan hafði þá
rannsakað meinta fjárkúgun verk-
stjóra í fiskvinnslunni á tuttugu
Pólverjum sem
þar störfuðu í
nærri því eitt ár.
Lárus óskaði
svo eftir því að
kallað yrði til
mansalsteymi
lögreglunnar
á höfuðborgar-
svæðinu til að
aðstoða við rann-
sóknina. Hann segir alla þá sem
hafa aðkomu að verkalýðsmálum
og vinnueftirliti hafi lært af mál-
inu og segir mansalsmál falin, en
þau verði að koma upp á yfirborðið.
„Því miður þá virðist þetta vera
voðalega falið, þetta eru hlutir sem
verða að koma upp á yfirborðið og
ég hvet alla sem verða varir við
eitthvað svona, að gera viðvart og
gera eitthvað í þessum málum því
það er kominn tími til. Það er of
mikið af þessu í samfélaginu, ég
er sannfærður um það og þetta á
ekki að líðast.“
Lárus segist trúa því að aðkoma
mansalsteymisins hafi komið að
gagni. „Samkvæmt skýringum í
bréfum þá fannst manni svona eins
og að þarna væri eitthvað grugg-
ugt á seyði.“
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu sinnir fræðslu sem þessari í
grasrótarstarfi. Fræðslunni fylgir
engin fjárveiting. Íslensk stjórn-
völd eru gagnrýnd fyrir slaka lög-
gæslu þegar kemur að baráttunni
gegn mansali í nýlegri skýrslu
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
sagðist í vetur munu leggja sitt af
mörkum til að leita eftir fjármun-
um til framkvæmdar aðgerða sem
miða að því að sporna gegn man-
sali. Enn bólar ekkert á því fé.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Fá ekki peninga til
fræðslu um mansal
Lögreglumenn verja frítíma sínum í að fræða fólk um mansal. Ekkert fjármagn
fylgir aðgerðaáætlun gegn mansali. Lögreglurannsókn hófst eftir fræðslufund.
BOLUNGARVÍK Umfangsmikil rannsókn á mansali hefur staðið yfir að undanförnu vegna fiskvinnslufyrirtækis sem er starfandi
í Bolungarvík. Upphaflega var málið rannsakað sem fjárkúgun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÁRUS
BENEDIKTSSON
KJARAMÁL „Við höfum verið að
hitta gerðardóm núna reglulega
síðustu vikurnar og farið yfir
okkar kröfur. Samninganefndin
hefur verið á þeim fundum líka,“
segir Ólafur G. Skúlason, formað-
ur Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga.
Hjúkrunarfræðingar felldu í
júlí kjarasamning og hefur deilu
þeirra verið vísað í gerðardóm.
Félagið hefur stefnt ríkinu vegna
laga sem sett voru á verkfall
þeirra.
„Við höfum ekkert hitt samn-
inganefndina á sérstökum fund-
um, þetta hefur allt farið í gegnum
gerðardóm,“ segir Ólafur.
Gerðardómur hefur samkvæmt
lögunum vikufrest, til 15. ágúst,
til að skila niðurstöðu sinni um
kaup og kjör félagsmanna í Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga sem
og BHM.
Næsta fyrirtaka í dómsmáli
félagsins gegn ríkinu er á fimmtu-
daginn í næstu viku.
„Við teljum ekki hafa verið
grundvöll fyrir því að banna verk-
föll hjúkrunarfræðinga og að gerð-
ardómur geti ekki tekið til starfa í
okkar tilfelli miðað við orðun lag-
anna,“ segir Ólafur og bætir við að
félagið og lögfræðingur þess telji
málið ólíkt öðrum verkfallsmálum.
„Verkfallið hafði aðeins stað-
ið í tvær vikur og aðeins fjórtán
fundir höfðu samtals farið fram í
öllum viðræðunum. Þannig að við
teljum að forsendurnar í okkar til-
felli séu öðruvísi en í öðrum sam-
bærilegum málum.“ - fbj
Gerðardómur hefur frest til 15. ágúst til að ákveða kjör félagsmanna BHM og hjúkrunarfræðinga:
Ekki fundað sérstaklega án gerðardóms
DÓMSMÁL
Mál BHM gegn ríkinu flutt
Mál BHM gegn íslenska ríkinu vegna
lagasetningar á verkfall BHM verður
flutt fyrir Hæstarétti klukkan níu í dag.
BHM telur að lögin á verkfallið séu
bæði brot á stjórnarskrá og Mannrétt-
indasáttmála Evrópu. Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur áður komist að þeirri
niðurstöðu að íslenska ríkinu hefði
verið heimilt að setja umrædd lög.
MENNING
Handverksmaður ársins
Þórdís Jónsdóttir er handverksmaður
ársins og verðlaun fyrir sölubás ársins
hlýtur Vagg og velta. Árlega velur
valnefnd Handverkshátíðar Eyjafjarðar
fallegasta sölubás ársins og hand-
verksmann ársins. Valnefnd veitti ein
aukaverðlaun í ár, Gleði og bjartsýnis-
verðlaunin, en þau hlaut Hildur
Harðardóttir með sölubásinn Hildur H.
List-Hönnun.
FRAMHALDIÐ ÓLJÓST Félag hjúkrun-
arfræðinga skrifaði undir kjarasamning
í júní sem síðan var hafnað í atkvæða-
greiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Hversu oft hefur fi skidagurinn
mikli verið haldinn?
2. Hvern segir Donald Trump hafa
verið skotmark sitt þegar hann kallaði
konur feit svín?
3. Hversu marga farþega fl utti Ice-
landair í júlí?
SVÖR
1. 15 sinnum 2. Rosie O‘Donnell 3. 415.000
farþega
VEISTU SVARIÐ?
BANDARÍKIN Fast var skotið á
Donald Trump, sem sækist eftir
útnefningu Repúblikanaflokks
Bandaríkjanna til forsetaframboðs,
eftir að hann sagði blóð flæða hvað-
an sem er út úr Megyn Kelly, sem
stýrði kappræðum forsetaframbjóð-
andaefna repúblikana á fimmtudag.
Carly Fiorina, meðframbjóðandi
Trumps, sagði meðal annars að
ummælin væru óafsakanleg, óvið-
eigandi og móðgandi. Hún sagði enn
fremur frá reynslu sinni af karl-
mönnum sem héldu hana óhæfa til
að taka ákvarðanir af því að hún
gæti verið á túr. Fiorina var áður
forstjóri Hewlett Packard.
Trump er ósammála túlkun Fior-
ina og annarra sem brugðust við.
„Ég ætlaði að segja að það blæddi
úr nefinu hennar eða eyrum. Það
er algengt orðasamband sem er
notað um reiði. Aðeins afbrigði-
legt fólk myndi segja að ég væri að
tala um blæðingar,“ segir Trump.
„Mér þykir vænt um konur og ég
vil hjálpa þeim.“
„Ég á frábært samband við
margar konur í viðskiptaheimin-
um. Þær eru frábærir stjórnendur,
algjörir morðingjar. Þær eru ótrú-
legar,“ segir Trump í samtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina ABC.
- þea
Segir konur algjöra morðingja í viðskiptaheiminum og frábæra stjórnendur:
Trump sver af sér túrummæli
UMDEILDUR Samkvæmt könnun ABC
þótti Trump hafa betur í kappræðum
þrátt fyrir umdeild ummæli.
NORDICPHOTOS/AFP
0
9
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:1
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
F
-3
1
1
4
1
5
A
F
-2
F
D
8
1
5
A
F
-2
E
9
C
1
5
A
F
-2
D
6
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K