Fréttablaðið - 10.08.2015, Side 16

Fréttablaðið - 10.08.2015, Side 16
FÓLK| verslun með antík og notuð húsgögn. Borðstofusettið var sagt vera frá fjórða áratug síðustu aldar og þar sem húsið sem ég bý í er byggt árin 1932-3 fannst mér það virkilega eiga heima í íbúðinni. Það er hægt að stækka borðið nánast endalaust og við það hefur verið setið í mörgum matarboðum í gegnum tíðina. EF PENINGAR VÆRU ENGIN FYRIR- STAÐA, HVAÐ VÆRI ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ MUNDIR KAUPA INN Á HEIMILIÐ? Ég myndi helst kaupa eitthvað „utan á heimilið“, það er að segja svalir, en það er það eina sem ég sakna að vera ekki með í þessari íbúð. Það væri mjög ljúft að geta stigið út á svalirnar á góðviðris- dögum. HVAÐ ER HELST FRAM UNDAN HJÁ ÞÉR Í SUMAR OG NÆSTA VETUR? Ég er að hefja fjórða árið mitt sem skólastjóri Listdansskóla Íslands og þar er alltaf nóg um að vera. Starfið er mjög krefjandi en um leið gefandi þegar mað- ur sér nemendur skólans ná mjög góð- um árangri, fara í virta skóla til fram- haldsnáms eða bara beint í störf sem dansarar. Sjálfur sé ég ekki eftir að hafa valið þennan starfsvettvang og í raun er dansinn eitthvað sem strákar ættu að íhuga alvarlega því það vantar alltaf góða og sterka karldansara. Við bjóðum upp á sérstaka strákatíma í skólanum þar sem við gerum það sem við köllum „strákastöff“. Þetta eru skemmtilegir tímar þar sem þeir fá mikla útrás. Við erum með nemendur frá 9 ára aldri og upp í tvítugt og með grunn- og fram- haldsdeild með fjölbreyttu og skemmti- legu námi. Við hvetjum alla sem hafa gaman af því að dansa til að skoða list- dansnámið. NÝTT OG GAMALT Fyrsti og síðasti hluturinn sem Guðmundur smíðaði: rammi utan um spegil og kerta-arinn. MYND/GVA FALLEGIR LITIR Málverkið var keypt af götumálara í Kaupmannahöfn en gólf- lampinn er heimasmíðaður. Hillurnar eru keyptar í IKEA. MYND/GVA UPPÁHALDIÐ Guðmundur situr hér við borðstofusettið góða en næst á dagskrá er að skipta um áklæði á stólunum. MYND/GVA MINNINGAR Nokkrir minjagripir frá ferðalögum erlendis. MYND/GVA VEL NÝTT Það má sauma púða úr gömlum efnisafgöngum og peysum. MYND/GVA HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Lofthradi.is Sími 1817 MEIRI HRAÐI Í BÚSTAÐINN MEIRI HRAÐI STÖÐUGRA SAMBAND INNLENT NIÐURHAL INNIFALIÐ Athugaðu hvort að þú getir fengið Lofthraða í bústaðinn þinn, kynntu þér málið á lofthradi.is ULTIMA THULE Mikið úr val af Iittala vörum í verslun okkar. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 0 9 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :1 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 A F -2 7 3 4 1 5 A F -2 5 F 8 1 5 A F -2 4 B C 1 5 A F -2 3 8 0 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.