Fréttablaðið - 10.08.2015, Side 42

Fréttablaðið - 10.08.2015, Side 42
10. ágúst 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 22 CRÉATIVE TECHNOLOGIE Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymslu- hólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur. Brimborg er stærst í sölu atvinnubíla á Íslandi. Veldu traust umboð með einstöku þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota. KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN citroen.is • 3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI • 850 KG BURÐARGETA • 3JA MANNA • SPARNEYTINN •3 3 Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil VERÐ FRÁ: 2.379.032 KR. ÁN VSK VERÐ FRÁ: 2.950.000 KR. MEÐ VSK Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 ÚRSLIT PEPSI-DEILD KARLA LEIKNIR - ÍBV 0-2 0-1 José Enrique (12.), 0-2 Enrique (58.). STJARNAN - VÍKINGUR 1-1 1-0 Þórhallur Kári Knútsson (75.), 1-1 Vladimir Tufegdzic (83.). FÓTBOLTI Martraðarbyrjun Cech Tékkneski markvörðurinn Petr Cech fór ekki vel af stað með Arsenal þegar liðið tapaði 0-2 fyrir West Ham á heimavelli í gær. Cheikhou Kouyaté kom Hömr- unum yfir á 43. mínútu eftir slæm mistök hjá Cech sem leið heldur ekki vel í seinna marki sem West Ham sem Mauro Zárate gerði. FÓTBOLTI Swansea byrjar vel Swansea fer vel af stað í ensku úrvals- deildinni en liðið gerði 2-2 jafntefli við Englandsmeistara Chelsea á útivelli á laugardaginn. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Swansea sem var 2-1 undir í hálfleik. En Frakkinn Bafétimbi Gomis jafnaði metin á 55. mínútu úr vítaspyrnu sem dæmd var á Thibaut Courtois, markvörð Chelsea, sem fékk einnig að líta rauða spjaldið. SUND Heimsmeistaramótinu í Kazan í Rússlandi lauk í gær. Eins og fyrri daga mótsins var íslenska sundfólkið áberandi. Hrafnhildur Lúthersdóttir synti í úrslitum í 50 metra bringusundi í gær og end- aði í 7. sæti af átta keppendum en hún kom að bakkanum á 31,12 sek- úndum. „Þetta er búið að vera alveg frá- bært,“ sagði Hrafnhildur þegar Fréttablaðið náði tali af henni í gær. Hún segir árangurinn á HM hafi farið fram úr hennar björt- ustu vonum: „Ég fór inn í mótið með það að markmiði að hafa gaman af þessu, gera eins vel og ég gæti.“ Það gekk heldur betur eftir en Hrafnhildur var í miklu stuði í Kazan og setti alls fimm Íslands- met; í 50, 100 og 200 metra bringu- sundi. Hrafnhildur komst í úrslit í 50 og 100 metra bringusundi og var hársbreidd frá því að komast í úrslit í 200 metra bringusundi, en hún tapaði fyrir Jinglin Shi frá Kína í svokölluðu umsundi. Hrafnhildur endaði í 7. sæti í 50 metra bringusundinu eins og áður sagði, því sjötta í 100 metrunum og því níunda í 200 metrunum. Hrafn- hildur er því meðal þeirra tíu bestu í heiminum í þremur grein- um. Hún segir að það hafi komið skemmtilega á óvart að komast í úrslit í 50 metra bringusundinu. „Það er svo erfitt að búast við einhverju í 50 metrunum því þetta er bara ein ferð. Þetta snýst bara um það hver snertir bakkann fyrst,“ sagði Hrafnhildur sem er búin að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Ríó á næsta ári í þremur greinum; 100 og 200 metra bringusundi og 200 metra fjórsundi. Hrafnhildur synti einnig með íslensku boðsundssveitinni í 4x100 metra fjórsundi í gær. Sveitina skipuðu, auk Hrafnhildar, Bryn- dís Rún Hansen og systurnar Eygló Ósk og Jóhanna Gerða Gúst- afsdætur. Íslenska sveitin synti á 4:04,43 mínútum og sló rúmlega þriggja ára gamalt Íslandsmet í greininni. Ísland endaði í 18. sæti af 25 sveitum en tólf efstu sveitirn- ar komust inn á Ólympíuleikana. „Þetta gekk mjög vel, við náðum Íslandsmetinu og það var ótrúlega skemmtilegur andi í liðinu,“ sagði Hrafnhildur og bætti við: „Við stefndum að því að komast inn á Ólympíuleikana en við eigum enn möguleika á því.“ Fjögur sæti eru enn laus í boð- sundinu á Ólympíuleikunum en Ísland gæti tryggt sér farseðilinn þangað á EM í London á næsta ári að sögn Hrafnhildar, sem útskrif- ast frá Florida-háskólanum í des- ember. Hún mun þó halda áfram að æfa með sundliði skólans fram að Ólympíuleikunum á næsta ári. ingvithor@365.is Setti fi mm Íslandsmet Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir náði frábærum árangri á HM í Kazan. KÖRFUBOLTI Ísland tapaði fyrir Hollandi með átta stigum, 65-73,í Laugardalshöllinni í síðasta leik liðsins fyrir EuroBasket, Evrópu- mótið í körfubolta, sem hefst 5. september næstkomandi. Íslensku strákarnir unnu öruggan 25 stiga sigur á Hollandi í fyrri vináttuleik þjóðanna í Þor- lákshöfn á föstudaginn en það var ekki sami kraftur í þeim í gær. „Þessi leikur var töluverð vonbrigði, eins og sá fyrri var góður,“ sagði Hlynur Bærings- son, fyrirliði Íslands, eftir leik- inn. „Ég hefði viljað vinna þá tvisvar. Það er ansi margt sem við þurfum að laga, en við höfum ennþá einn mánuð.“ - iþs Tap í síðasta heimaleiknum FRÁBÆR ÁRANGUR Hrafnhildur Lúthersdóttir komst í undanúrslit í þremur grein- um og úrslit í tveimur, auk þess sem hún setti fimm Íslandsmet. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP ÖFLUGUR Haukur Helgi gerði 13 stig gegn Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EYJASIGUR ÍBV vann mikilvægan sigur á Leikni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SPORT 0 9 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :1 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 A F -3 1 1 4 1 5 A F -2 F D 8 1 5 A F -2 E 9 C 1 5 A F -2 D 6 0 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.