Fréttablaðið - 10.08.2015, Síða 46

Fréttablaðið - 10.08.2015, Síða 46
10. ágúst 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26 MORGUNMATURINN SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Vertu eins og heima hjá þér KENYA Fáir sitja betur. Háir armar og stutt sessa veita einstök þægindi. Fáðu þér sæti og hann fer með þér heim. Stærð: 69 × 70 × 86 cm 39.990 kr. 49.990 kr. MARIBOWL Vatnsgræn, græn og skógargræn. Stærð: 15,5 cm 5.190 kr. 6.390 kr. www.husgagnahollin.is 558 1100 Stórhljómsveitin Kings of Leon spilar í Nýju-Laugardalshöllinni á fimmtudaginn. Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins munu tæp- lega 70 manns koma með henni til landsins til þess að vinna í kring- um tónleikana. Nokkrir Íslending- ar verða líka að vinna með hljóm- sveitinni. Tónleikarnir verða þeir fyrstu á þessum legg tónleika- ferðalagsins en hljómsveitarmeð- limir hafa verið í pásu frá tón- leikahaldi til þess að eiga tíma með fjölskyldum sínum. Það er aldrei að vita nema fjölskyldurnar ferð- ist með þeim, en eiginkona Calebs Followill, aðalsöngvarans, er engin önnur en Lily Aldridge ofurfyrir- sæta. Hljómsveitameðlimirnir fjórir eru nátengdir, þrír þeirra eru bræð- ur og einn frændi. Þeir hafa spilað saman í 15 ár. Búist er við að félag- arnir komi með einka- flugvél á miðvikudaginn svo að líkur eru á að ein- hverjir rekist á þá á rölti um Reykjavík. Þeir fara svo af landi brott daginn eftir tónleikana og spila í Búdapest 15. ágúst. Við komuna til landsins krefj- ast hljómsveitarmeðlimir þess að fá fjóra stóra jeppa með dökkum rúðum til þess að skutla þeim á hótelið. Kröfur hljómsveitarinnar um búningsherbergin eru ekki mikl- ar eða óvenjulegar. Herbergin þurfa að vera eins heimilisleg og hægt er með leðursófum, plöntum og ísskápum. Við komu sveitar- innar í búningsherbergin þarf að vera stútfullur ísskáp- ur af bjór, Coca cola, Gatorade, Red bull ásamt gvakamóle og salsasósu. Þeir biðja einnig um rauðvín, flösku af Absolut vodka, Jameson viskí, margar tegundir af kartöflu- flögum, hnetu-M&M, hreinsiklúta og margt fleira. Tækjabúnaður sveitarinnar kom til landsins fyrir helgi með Nor- rænu á Seyðisfjörð. Mörg tonn af búnaði eru nú á leiðinni til Reykja- víkur í rólegheitunum í þremur vörubílum, en bílstjórarnir skoða sig um á leiðinni og sofa í bílun- um. Þegar þeir koma til borgarinn- ar verður bílunum lagt fyrir utan Laugardalshöllina og í þeim sofa bílstjórarnir. Tækin munu síðan fara með flugi til Ungverjalands en bílstjórarnir keyra aftur til Seyðisfjarðar með bílana. Eins og margar stjörnur sem koma hingað til lands munu hljómsveitarmeðlimirnir gista á Hilton-hótelinu. Talið er að ástæðan fyrir því að Hilton-hót- elið er vinsælt hjá fræga fólkinu sé góð staðsetning, auðvelt að kom- ast að því og frá, stór og rúmgóð móttaka og svíturnar þar eru með þeim flottustu sem finnast á land- inu. Tónleikar Kings of Leon verða á fimmtudaginn og það eru enn til örfáir miðar á tix.is. Þetta verður ein stærsta tónlistarveislan í ár en sveitin er ein sú frægasta í heim- inum í dag. gunnhildur@frettabladid.is Kings of Leon mætir í einkaþotu til Íslands Á fi mmtudaginn mun Kings of Leon halda sína fyrstu tónleika hér á landi í Nýju- Laugardalshöllinni. Hljómsveitin hefur ýmsar sérþarfi r varðandi búningsherbergin. Ljósmyndarinn Snorri Björnsson hefur verið að gera það gott sem íþróttaljósmyndari en það vakti athygli þegar snap-sögurnar hans slógu í gegn á meðan hann var á cross- fit-leikunum. Hann heldur uppi Insta- gram-aðganginum Berserkur þar sem hann birtir myndir af okkar fremstu íþróttakonum. „Þetta sameinar í raun helstu áhugamálin, crossfit og ljósmyndun. Ég fór til Mallorca í sumar þar sem þjálfari nokkurra þeirra Íslendinga sem voru að fara á heimsleikana bað mig um að fara með þeim út og mynda þau. Það voru æfingar fjórum sinnum á dag. Hann borgaði fyrir mig flug- ið og gistinguna en svo voru íþrótta- mennirnir sponsaðir af SciTec og borguðu undir mig í Bandaríkjunum í skiptum fyrir myndir,“ segir Snorri, en það sem hann hefur fram yfir aðra íþróttaljósmyndara var að hann bjó með þeim og náði einstökum mynd- um. Eftir leikana hefur Snorri náð að koma sér á framfæri erlendis og er hann með nokkur járn í eldinum eins og stendur. Snap-sögur Snorra vöktu mikla athygli fyrir að vera hnitmið- aðar, vel gerðar og spennandi. Á þess- ari einu helgi byrjuðu 3.800 manns að fylgja honum á Snapchat. „Ég var búinn að vera að sýna frá leikunum í einn dag þegar ég fékk tölvupóst frá Nova og þeir báðu mig um að sjá um aðganginn þeirra á lokadeginum. Það eina sem ég bað um í staðinn var 4G- inneign og batterípakki. Ég varð að hlaða símann tíu sinnum á dag.“ - gj Tekur einstakar myndir af íþróttafólki Snorri Björnsson heldur uppi Instagram-síðunni Berserkur þar sem hann deilir myndum af afreksíþróttakon- um. Hann sló í gegn á Snapchat á crossfi t-leikunum þar sem hann lýsti æsispennandi keppninni í beinni. MÆTA Á MIÐVIKUDAGINN Kings of Leon er ein vinsælasta hljómsveitin í heiminum í dag. MYND/GETTY EINSTAKUR LJÓSMYNDARI Snorri sameinar áhugamálin í íþróttaljósmynd- unum. MYND/SINDRI JENSSON „Ég fæ mér alltaf bara gott kaffi og sleppi morgunmatnum.“ Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmda- stjóri Já. 0 9 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :1 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 A F -1 8 6 4 1 5 A F -1 7 2 8 1 5 A F -1 5 E C 1 5 A F -1 4 B 0 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.