Fréttablaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 2
Nýr Landspítali loks í augsýn.
Málþing Spítalans okkar
þriðjudaginn 13. október 2015 frá kl. 16.00-18.00,
Icelandair Hótel Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll
Setning:
Anna Stefánsdóttir, formaður stjórnar Spítalans okkar
Nýr Landspítali – nýtt heilbrigðiskerfi
Birgir Jakobsson, landlæknir
Er ódýrara að reka spítala í nýju húsnæði? - reynsla Norðmanna
Hulda Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri, Norlandia Care Group AS
Nýr Landspítali – nauðsynleg tækniþróun.
Gísli Georgsson, verkfræðingur á Landspítala
Nýtt húsnæði – aukið öryggi sjúklinga.
Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala
Fræðasamfélagið og sérstaða háskólasjúkrahúss.
Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflækningum við Háskóla Íslands
Spítali í borg - skipulag Vatnsmýrar.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
Lokaorð – Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
Fundarstjóri:
Svana Helen Björnsdóttir , stjórnarformaður Stika
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest
Veður
Vaxandi suðaustanátt með rigningu
víða um land en þó er útlit fyrir þurrk
og sólarglennur á norðaustanverðu
landinu. Það lægir og styttir upp
vestan til í kvöld, en þá bætir í
úrkomuna SA-til. Sjá Síðu 16
Krankleikar kannaðir
Ármann Steinar, Brynhildur Katla og Hrafnhildur Irma voru í hópi fjölmargra barna sem mættu á Barnaspítala Hringsins í gær þar sem í tilefni
alþjóðlega bangsadagsins var, venju samkvæmt, starfræktur Bangsaspítali. Hér eru þau í innrituninni. Fréttablaðið/Pjetur
Þar stóðu fjölmargir
skólastjórnendur
upp og sögðu frá því að þeir
væru að íhuga uppsagnir.
Ingileif
Ástvaldsdóttir,
varaformaður
Skólastjórafélags
Íslands
Kjaramál Á ársfundi Skólastjórafé-
lags Íslands um helgina kom fram
mikil kergja meðal skólastjórnenda
og áhyggjur vegna yfirvofandi upp-
sagna. „Þar stóðu fjölmargir skóla-
stjórnendur upp og sögðu frá því að
þeir væru að íhuga uppsagnir, eða
væru hreinlega búnir að segja upp,“
segir Ingileif Ástvaldsdóttir, varafor-
maður félagsins. Algjört skilnings-
leysi Sambands sveitarfélaga ein-
kenni andrúmsloftið, þar sem ekki
virðist skilningur á þeirri ábyrgðar
sem skólastjórnendur beri. Dæmi
séu um að kennarar fái hærri laun
en stjórnendur. Stjórnendur hafi
þannig verið settir út í kuldann
meðan gengið hafi verið frá samn-
ingum við kennara.
Í ályktun félagsins segir að helsta
leið skólastjórnenda til að bæta kjör
sín virðist að segja upp og snúa aftur til
kennslu. Ingileif segir eðlilegt að skóla-
stjórnendur hugi að öðrum leiðum til
kjarabóta, enda hafi þeir ekki verk-
fallsrétt.
Náist ekki samningar segir Ingileif
að tapast gæti dýrmæt reynsla, sem
erfitt sé að bæta. Því sé mikilvægt að
Samband íslenskra sveitarfélaga átti
sig raunverulega á að skólastjórnendur
með reynslu skipti miklu máli, svo
hægt verði að koma í veg fyrir yfirvof-
andi fjöldaflótta úr stéttinni og þurfi
að bregðast við kallinu strax.
Skólastjórafélag Íslands og samn-
inganefnd sveitarfélaganna funda hjá
ríkissáttasemjara í dag. – ga
Skólastjórar
segja upp
ViðSKipti Björn Ólafsson, einn
stofnenda ferðaþjónustunnar við
Þríhnúkagíg, hefur fengið sam-
þykkt kauptilboð á 18,6 prósenta
hlut Stefnis, dótturfélags Arion
banka, í Þríhnúkum ehf.
Björn á fyrir 10,5 prósenta hlut í
félaginu sem staðið hefur að undir-
búningi fyrir hellaferðir í Þríhnúka-
gíg.
Í samþykktum Þríhnúka eru
ákvæði um að félagið sjálft og
hluthafar þessi fái forkaupsrétt að
öllum hlutabréfum í félaginu áður
en þau eru seld.
Reykjavíkurborg og Kópavogs-
bær sem bæði eiga 13,9 prósenta
hlut í félaginu hyggjast ekki nýta
sér forkaupsrétt sinn.
Bæjarlögmaður Kópavogs segir í
umsögn sinni til bæjarráðs Kópa-
vogs að vandséð sé að kaup á frek-
ari eignarhlut í Þríhnúkum stæðust
sveitarstjórnarlög þar sem fjárfest-
ing hefði ekki sama samfélagslega
gildi og hún hefði haft þegar bær-
inn keypti hlut í félaginu árið 2012.
Félagið standi nú tryggari fótum en
þegar upprunalegu kaupin áttu sér
stað.
Vika er þar til að forkaupsréttur
hluthafa rennur út, að sögn Björns.
Annað félag, 3H Travel ehf. í eigu
Björns og annarra stofnaðila Þrí-
hnúka hefur séð um hellaferðir
í Þríhnúkagíg þar sem hluthafar
Þríhnúka vildu ekki taka þá fjár-
hagslegu áhættu sem fylgdi slíkri
ferðaþjónustu.
Hins vegar sé markmiðið að Þrí-
hnúkar fái varanlegt rekstrarleyfi
fyrir hellaferðum og taki við rekstr-
inum. Þá verði farið í myndarlega
uppbyggingu á svæðinu, að sögn
Björns.
Síðustu áætlanir um uppbygg-
ingu við Þríhnúkagíg hljóðuðu
upp á fjárfestingu upp á um tvo
milljarða króna. Hins vegar hafi
það tafist þar sem svæðið sé á for-
ræði margra aðila, að sögn Björns.
Hann segir svæðið heyra undir
forsætisráðuneytið, Kópavogsbæ,
Heilbrigðiseftirlit Kópavogs og
Hafnarfjarðar auk Umhverfisstofn-
unar. Fyrst þurfi deiluskipulagslýs-
ingu fyrir svæðið og í kjölfarið að
auglýsa það til nýtingar.
Björn segir uppbygginguna hafa
tekið mun lengri tíma en hann hafi
haldið í upphafi.
„Þegar við stofnuðum þetta 2004
hélt ég kannski að það yrðu fimm
ár, en nú eru að verða komin tólf
ár,“ segir hann.
3H Travel bauð upp á hellaferðir
í fjórða sinn í sumar en Björn segir
reksturinn hafa verið viðunandi.
Félagið hagnaðist um 8,3 milljónir
króna bæði árin 2013 og 2014 sam-
kvæmt ársreikningum þess.
ingvar@frettabladid.is
Stofnandi Þríhnúka
kaupir Arion banka út
Einn stofnenda ferðaþjónustunnar við Þríhnúkagíg vill kaupa hlut Stefnis.
Þegar við stofn-
uðum þetta 2004
hélt ég kannski að það yrðu
fimm ár en nú eru að verða
komin tólf ár.
Björn Ólafsson,
einn stofnenda ferðaþjónustunnar
við Þríhnúkagíg
Þríhnúkagígur hefur verið eftirsóttur
ferðamannastaður síðustu ár.
Fréttablaðið/vilhelm
13,9%
er hlutur Reykjavíkurborgar
og Kópavogsbæjar í Þrí-
hnúkum ehf.
Veiði Bráðabirgðatölur yfir stang-
veiði á laxi sumarið 2015 sýna að alls
veiddust um 74.000 laxar. Veiði var
rúmlega tvöfalt meiri en laxveiðin
var 2014. Í heild var fjöldi stang-
veiddra laxa 2015 sú fjórða mesta frá
upphafi og um 55% yfir langtíma-
meðaltali áranna 1974-2014, segir í
frétt frá Veiðimálastofnun.
Til að fá samanburð við fyrri ár
lagði Veiðimálastofnun mat á hver
laxveiðin hefði orðið ef engu hefði
verið sleppt aftur og veiði úr slepp-
ingum gönguseiða var einnig frá
dregin. Sú niðurstaða leiðir í ljós að
stangveiði á laxi 2015 hefði verið
um 51.820 laxar, sem er litlu hærra
en var árin 2008 og 2009 en lægra en
metveiðin frá 1978 þegar afli í stang-
veiði var alls 52.597 laxar.
Aukning varð í laxveiði í öllum
landshlutum en mest þó á Norður-
landi vestra og Vestfjörðum. – shá
Fjórða besta
sumarið í laxi
1 2 . o K t ó b e r 2 0 1 5 m á N u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
B
F
-9
B
9
0
1
6
B
F
-9
A
5
4
1
6
B
F
-9
9
1
8
1
6
B
F
-9
7
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K