Fréttablaðið - 12.10.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 12.10.2015, Síða 6
Búist til loftárása á skógarelda StjórnSýSla Ef ákvörðun um skipan dómara á að vera í höndum annarra en ráðherra væri eðlilegast að stjórnarskrárbreyting kæmi til. Enda ber ráðherra ábyrgð á stjórn­ arframkvæmdum öllum samkvæmt stjórnarskrá. Þetta segir Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. „Ef fólk kemst að þeirri niðurstöðu að þessi ákvörð­ un eigi ekki að vera í höndum póli­ tíkusa, að ráðherra eigi ekki að vera að vasast í þessu, þá verða menn að gera miklu meiri grundvallarbreyt­ ingar,“ segir Hafsteinn. Karl Axelsson hefur verið skip­ aður hæstaréttardómari. Dómnefnd mat Karl hæfastan en aðrir umsækj­ endur voru Ingveldur Einarsdóttir, starfandi hæstaréttardómari, og Davíð Þór Björgvinsson, fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu. Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði á Alþingi í síðustu viku að fullt tilefni væri til að endurskoða reglur um skipan dómara. Hafsteinn Þór sat í nefnd um nýtt millidómsstig. Hann segir að nefndin hafi einnig kynnt ráðherra tillögu að reglum um skipan dómara, bæði  á nýju millidómsstigi en líka á öðrum stigum. Sú tillaga felur í sér að nefnd skili umsögn um hæfi umsækjenda svo ráðherra geti tekið upplýsta ákvörðun. Ráðherrann ákveður svo hver hlýtur skipun og í tilfelli hæstaréttardómara skal bera þá ákvörðun undir Alþingi. „Í rauninni kæmu þá báðir handhafar ríkis­ valdsins, aðrir en dómsvaldið sjálft, að skipun í dómaraembættið,“ segir Hafsteinn. Hann segir ástæðulaust að vantreysta Alþingi. Til dæmis sé reynslan af því að Alþingi kjósi umboðsmann Alþingis góð. Í núverandi kerfi skilar nefndin umsögn um það hver hæfasti ein­ staklingurinn í embættið er. Ráð­ herra er bundinn af ákvörðun nefndarinnar nema að hann fái stuðning þingsins til að breyta henni. „Við töldum eðlilegast að valdið til að taka ákvörðun um það hverjir taka sæti í dóminum væri í höndum þess sem ber ábyrgð á ákvörðuninni, þannig að ekki sé skilið á milli ábyrgðar og valds. Núverandi kerfi gerir það í raun,“ segir Hafsteinn. Nefndin bindi hendur ráðherrans, en ráðherrann beri ábyrgðina, bæði lagalega og pólitíska. Skúli Magnússon, formaður Dóm­ arafélags Íslands, segir það afstöðu félagsins að ef gerðar verði breyting­ ar á kerfinu þurfi að vanda til verka. Slíkar breytingar krefjist umræðu og samráðs. Hann segir að skoða megi aukna aðkomu þingsins að þessum ákvörðunum. „En ef þingið á að hafa meira um skipun dómara að segja þá verður að hugsa það mál mjög vandlega, hvernig sú aðkoma á að vera og hvernig þingið ætlar að taka á því máli. Vegna þess að auð­ vitað er mikil hætta á að sú umræða myndi fara um víðan völl og myndi hafa neikvæð áhrif á ásýnd og trú­ verðugleika dómskerfisins.“ jonhakon@frettabladid.is Vald og ábyrgð á skipaninni fari saman Dósent í lögfræði vill að ráðherra og Alþingi komi saman að skipan dómara. Eigi valdið við skipan dómara að vera hjá nefnd en ekki hjá ráðherra þá þurfi stjórnarskrárbreyting að koma til. Ráðherra hefur sagt fullt tilefni til að endurskoða reglur um skipan dómara. Ef þingið á að hafa meira um skipun dómara að segja þá verður að hugsa það mál mjög vandlega, hvern- ig sú aðkoma á að vera. Skúli Magnússon, formaður Dómara- félags Íslands ViðSkipti Stjórn Volkswagen hélt fyrir helgi krísufund þar sem rætt var um hvernig ætti að taka á dísilsvindl­ inu sem komst upp fyrir rúmum tveimur vikum. Volkswagen tilkynnti  á föstu­ dag innkallanir á bílum í janúar. Um er að ræða 11 milljónir dísilbifreiða. Enn er ekki vitað  hver áhrif svindlsins verða hér á landi. Þar sem ekki er um koltvísýringslosun að ræða er óvíst að tollurinn muni innheimta ógreidd bifreiðagjöld. Umboðsaðilinn Hekla vill ekki gefa upp sölutölur bifreiða frá Volks­ wagen hér á landi. Því er óljóst hvort hafi dregið úr sölu á  bílum fyrir­ tækisins hér á landi eftir að svindlið komst upp. – sg Greina ekki frá sölutölum hér umhVerfiSmál Sigrún Magnúsdótt­ ir, umhverfis­ og auðlindaráðherra, ætlar á yfirstandandi þingi að leggja fram frumvarp um stefnumótun og gerð skipulags á haf­ og strand­ svæðum við Ísland. Ástæðan er sú að eftirspurn eftir fjölbreyttri nýtingu þessara svæða fer stöðugt vaxandi. Þetta kom fram í setningarræðu Sigrúnar á Umhverfisþingi á föstu­ dag, en hún sagði að hingað til hefði skort á heildstæða sýn yfir starfsemi á haf­ og strandsvæðum við landið. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, gerði skipulag á haf­ og strand­ svæðum einnig að umtalsefni í sínu erindi. „Það er skrítið að hafa skipulag fyrir landið, þar sem sveitarfélögin þurfa að gera aðalskipulag fyrir gríðarstór landsvæði, en þú mátt ekki fara lengra en 115 metra frá stórstraumsfjöruborði. Eftir það er fjörðurinn, víkin eða flóinn einfald­ lega ekki á vegum sveitarfélagsins. Sveitarfélag getur ákveðið að fjörður skuli vera frátekinn fyrir ferðaþjón­ ustu, og þar skuli ekki vera iðnaður eða önnur starfsemi, en þá eru önnur batterí sem geta ákveðið að inni á firðinum skuli vera fiskeldiskvíar – sem eru góðar til síns brúks og mikil­ vægar í uppbyggingu í fiskeldi. En það er skrítið að það skuli ekki vera samhengi í þessum málum,“ sagði Halldór og vísaði til þess að Sam­ band sveitarfélaga hefði farið þess á leit við ráðherra umhverfismála að ríki og sveitarfélög vinni að málinu í sameiningu. – shá Vill skipulag á haf- og strandsvæðum Fiskeldisfyrirtæki getur fengið leyfi í firði sem sveitarfélag hefur ráðgert að nýta til ferðaþjónustu. Fréttablaðið/Jón Sigurður Ástralir hlaupa undir bagga vegna skógarelda á Súmötru í Indónesíu, en stjórnvöld þar kljást þessa dagana við einhverja mestu elda sem þar hafa verið kveiktir ólöglega. Ástralska sendiráðið í Djakarta birti í gær þessa mynd af flugvél sem senda á til Súmötru. Fréttablaðið/EPa Stjórnmál Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, hlaut Félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna við slit landsþings hreyfingarinnar í gær. Í ræðu Ingu Bjarkar Bjarnadóttur, málefnastýru Ungra jafnaðar­ manna, sagði hún Guðbjart meðal annars einn gegnheilasta jafnaðar­ mann sem fyrirfyndist. Hann hefði í verkum sínum, jafnt sem þingmaður og ráðherra, verið vakinn og sofinn í baráttunni fyrir félagslegu réttlæti. Guðbjartur gat vegna veikinda ekki veitt verðlaununum viðtöku, en það gerði fyrir hans hönd Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Sam­ fylkingarinnar. – ga Veittu verðlaun á landsþingi 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 m á n u D a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 0 -B E E 0 1 6 C 0 -B D A 4 1 6 C 0 -B C 6 8 1 6 C 0 -B B 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 1 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.