Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2015, Blaðsíða 2
2
Ágætu félagar.
Alltaf mikið um að vera hjá Siglfirð-
ingafélaginu. Vetrarstarfið var bæði
fjölbreytt og fróðlegt.
Félagar í Siglfirðingafélaginu eru
alltaf að gera eitthvað skemmtilegt. Nú
síðast tóku nokkrir sig saman og eru að
safna kvikmyndum í heimildamynd af
Siglfirðingum og myndum frá Siglufirði. Vildarvinir Siglufjarðar
og Siglfirðingafélagið standa að þessu sameiginlega. Ætlunin er
að sýna myndina á Siglufirði í maí 2018. Frábært framtak.
Í vetur var haldið upplestrar- og myndakvöld og Spurninga-
keppni átthagafélaganna en þar tapaði okkar lið með einungis
einu stigi fyrir Átthagafélagi Vestmannaeyinga í Reykjavík í
úrslitum.
Nú er komið að Siglfirðingakaffinu sem haldið verður að
venju í Grafarvogskirkju 17. maí nk. og hefst með messu klukkan
14:00. Móttaka kaffibrauðs verður
í Grafarvogskirkju frá klukkan
ellefu sama dag. Hvetur félagið
alla sanna kökugerðarmenn að
vera með. Í ár hjálpa árgangarnir
1955, 1965, 1975 og 1985 við
undirbúning dagsins. Mikill
fjöldi sækir alltaf þennan viðburð félagsins.
Forsíðuljósmyndina að þessu sinni tók Arnar Ómarsson sonur
Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur listakonu á Siglufirði. Hún fylgir
myndinni úr hlaði hér á síðunni með skemmtilegri frásögn af
Bláa flyglinum.
S. Jóna Hilmarsdóttir. - vinnslan@simnet.is
ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
RITSTJÓRI:
S. JÓNA HILMARSDÓTTIR
SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ
FR
Á
R
IT
ST
JÓ
RA
FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS
Heimsmyndin kom til sjávarþorps eins og Siglufjarðar með
sögum, myndum og varningi sem sjómenn færðu heim í bú,
oftast fyrir jól.
Árið 1969 var faðir minn sjómaður á síðutogaranum
Hafliða. Vanalegt var að sigla með aflann á markaði erlendis,
og var stefnan tekin á Bremerhaven í Þýskalandi.
Við heimkomu fögnuðu fjölskyldur ekki aðeins heimilis-
föður heldur líka ilmandi rauðum eplum, dósaskinku, og
kalkún í jólamatinn. Fischerskíðum með stálköntum og vatt-
eruðum skíðagöllum, 8 mm kvikmyndum og í þetta tiltekna
skipti, litlum bláum tréflygli.
Ég var 6 ára og hafði aldrei séð eins ævintýralegan hlut.
Flygillinn var um 35 cm á breidd og hafði eina og hálfa
áttund sem hljómaði eins og í alvöru hljóðfæri. Þegar nánar
var skoðað kom í ljós gullin harpa og fóðraðir klossar tengdir
lyklaborðinu. Undir flyglinum voru fingursverir og álíka
langir viðkvæmir fætur sem lyftu hljóðfærinu aðeins frá jörðu.
Ég ákvað að verða píanóleikari
Árin liðu og þrátt fyrir píanókennslu um fjögurra ára skeið hef
ég ekki enn náð því markmiði að nota mér hljóðfærið á annan
veg en til að njóta færni annarra. En tónlist hefur gefið mér
hugarró og verið gjöful uppspretta hugmynda.
Fyrir tæpum þremur árum var ég svo heppin að eignast
yndislegan lítinn viðarlitaðan flygil, sem stendur nú á vinnu-
stofunni minni og bíður þess að fimmtug konan láti drauma
sína rætast. ASE
Blái
flygillinn
Myndin á forsíðunni
Siglfirðingakaffið 17. maí
Siglfirðingakaffið verður haldið í Grafarvogskirkju sunnudaginn 17. maí
og hefst með messu kl. 14.00. Kaffisamsætið verður síðan um kl. 15:00.
Ræðumaður verður Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi og einn af
stofnendum Siglfirðingafélagsins. Séra Vigfús Þór Árnason þjónar til
altaris ásamt Hólmfríði Ólafsdóttur djákna og Snævari Jóni Andréssyni
guðfræðinema. Einsöng syngur Fjóla Nikulásdóttir
við undirleik Gunnsteins Ólafssonar.