Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2015, Blaðsíða 3
3
Haldið var fjölmennt skíðagöngumót
í Fljótum sl. páska með nærri
90 keppendum og er þetta næst
fjölmennasta skíðagöngumót á
landinu.
Þetta er í annað skiptið sem mótið
er haldið og verður það örugglega
árlegur viðburður hér eftir, svo góðar
voru viðtökur keppenda og gesta.
Fljótamenn hafa komið myndarlega
að þessu móti með ýmsum stuðningi
og sjálfboðavinnu, að ógleymdu kaffi-
samsætinu á lokahófi mótsins.
Á þessu móti er lögð áhersla á að
fá alla fjölskylduna til þátttöku og
ekki síst börn. Aldur þátttakenda var
frá 3ja- 83ja ára. Gestir komu víða að
ekki aðeins frá Siglufirði, Fljótum og
Ólafsfirði.
Mótið fór fram í blíðskaparveðri
eins og venja er í Fljótum. Genginn
var 1km hjá yngstu börnunum og 5,
10, og 20 km í aldursflokkum kvenna
og karla. Rásmarkið var rétt ofan við
Ketilás og lágu brautirnar þar fyrir
ofan út undir Lambanesás og inn í
Holtsdal og síðan útundir Stórholt
og Minnaholt áður en komið var í
markið.
Eftir göngu var keppendum
boðið upp á veglegt kaffisamsæti
Skíðagöngumót í Fljótum
Skíðakempur: Trausti Sveinsson, Valtýr Sigurðsson og Sævar Birgisson.
Lokahóf í Ketilási.
Föngulegur hópur sigraði í 5 km göngu kvenna.
Startið.
Hart barist
í lokahófi á Ketilási. Þar fór fram
verðlaunaafhending og að auki
veglegt happdrætti þar sem dregið
var úr rásnúmerum keppenda.
BZÁ