Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2015, Blaðsíða 8
8
Vildarvinir Siglufjarðar og Sigl-
firðingafélagið hafa tekið höndum
saman við gerð heimildamyndar
um Siglufjörð 1918-2018. Ef öll
plön ganga eftir er ætlunin að sýna
hana á Siglufirði 20. maí 2018 en
þá verður Siglufjarðarkaupstaður
100 ára og bærinn á einnig 200 ára
verslunarafmæli.
Hugmyndin um að minnast Siglu-
fjarðar á þessum tímamótum er
búin að vera lengi á sveimi í hugum
þeirra sem standa að Vildarvinum
Siglufjarðar. Fyrst með bók en hún
þótti of dýr og tíminn of stuttur.
Þá datt mönnum í hug að safna
saman kvikmyndum þeirra sem áttu
tökuvélar á Sigló og búa til mynd úr
bútum af þessum mest filmaða bæ
Íslandssögunnar.
Skipuð var nefnd og í henni sitja
Guðmundur Stefán Jónsson, Jónas
Skúlason, Orri Vigfússon, Jónas
Ragnarsson og Gunnar Trausti til að
sjá um framkvæmdina.
Á fyrsta fundi nefndarinnar sem
haldinn var snemma árs 2014 var
ákveðið að ráða Árna Jörgensen sem
framkvæmdastjóra yfir pródúktinu.
Strax var farið í viðræður við
kvikmyndagerðarmenn sem gætu
haft yfirumsjón með framleiðslu
myndarinnar þ.á m. Dúa Landmark
og Friðrik Þór Friðriksson.
Hugmynd hópsins er í fyrsta lagi
að safna saman öllu því myndefni
sem gæti komið að notum við gerð
myndarinnar og viljum við því senda
ákall til Siglfirðinga nær og fjær um
að hafa samband við Árna (arnijorg@
gmail.com, sími 669 1327) eða
nefndina og láta okkur í té filmur eða
myndir. Við munum sjá um að skanna
þær og síðan eftir samkomulagi
skila þeim aftur ásamt myndunum
í stafrænu formi eða koma þeim í
geymslu í Kvikmyndasafni Íslands. Þar
verða þær geymdar við bestu aðstæður
og viðkomandi hefur alltaf aðgang að
þeim.
Þessi söfnun er tímafrek en við
höfum þó í höndunum nokkrar
myndir frá ættingjum þeirra sem
tóku myndir en aðrar eru í safni
Sjónvarpsins og Kvikmyndasafni
Íslands og hefur forstöðumaður þess,
Erlendur Sveinsson, verið verkefninu
hliðhollur og hvetjandi.
Til eru myndir í eigu manna sem
ferðuðust um landið, tóku myndir
og sýndu síðan afraksturinn ári
seinna á sama stað og sýna þær
bæjarbraginn. Siglufjörður var afar
tíður viðkomustaður þeirra Ósvaldar
Knudsen, Kjartans O. Bjarnasonar
og Lofts Guðmundssonar. Eru þessar
Heimildamynd um Siglufjörð
1918-2018 komin á fulla fart!
Vildarvinir Siglufjarðar og Siglfirðingafélagið
Siglfirskt verkafólk. Binna Jóns, Ingi Bald, Gunna í Leyningi, Dúddi Theu, Halla Jóhannsdóttir og Jóhannes Jósefsson. Yngri
drengurinn er Gunnlaugur Jónasson og hinn er Jón Gunnlaugsson. Ljósm. Jónas Þ. Sigurðsson.
Hugmynd hópsins er í fyrsta lagi
að safna saman öllu því myndefni
sem gæti komið að notum við gerð
myndarinnar og viljum við því
senda út ákall til Siglfirðinga nær
og fjær um að hafa samband við
Árna eða nefndina og láta okkur í
té filmur eða myndir.