Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2015, Síða 9
9
myndir
því mikill fengur fyrir tilvonandi
mynd. Kvikmyndasafnið á í
fórum sínum 15 kvikmyndir sem
kvikmyndaklúbburinn Linsan gerði
og sýndar voru í Nýja Bíói á Siglufirði
árið 1965.
Nefndinni hafa borist margar og
hagnýtar upplýsingar um filmur sem
leynast út um allt land og víðar. Stendur
til að leita til Noregs og Svíþjóðar eftir
myndum sem þar eru til.
Hugmyndin er að gera mynd
um Siglufjörð sem lýsir atgangi í
kringum síldina, mannlífi, tónlistarlífi,
verslunum og karakterum bæjarins,
íþróttalífi, skíðaiðkun og fótboltanum.
Ætlunin er að ræða við nokkra
Siglfirðinga á efri árum og spila
viðtölin undir myndinni. Við biðjum
þá að bíða með að fara yfir móðuna
miklu, fara ekki yfir um, vera ekki
fyrir handan þegar við bönkum uppá!!
Eftir síldina komu svo árin þar
sem menn trúðu ekki að síldin
væri horfin. Árin þar sem bryggjur,
plön og braggar grotnuðu niður,
fólksfækkunin endalaus og ekkert
virtist ætla að verða Siglfirðingum til
sáluhjálpar. Og síðan uppbyggingin
með Þormóð ramma í fararbroddi,
Síldarminjasafnið og Örlyg Krist-
finnsson, Héðinsfjarðargöngin,
sameiningin við Ólafsfjörð og síðast
en ekki síst Róbert Guðfinnsson,
sem kom heim aftur og hóf þá
uppbyggingu sem enn er í gangi.
Eins og menn sjá þá er ekkert
smáræðisverkefni hér á ferðinni
sem kostar bæði vinnu og peninga.
Því biðlum við til þín elskulegi
Siglfirðingur um að hafa samband
ef þú átt í fórum þínum myndir/
kvikmyndir frá Siglufirði eða veist um
einhvern sem það gerir.
Við leitum því hjálpar þinnar
Siglfirðingur góður að styðja við
þetta verkefni sem mun halda nafni
bæjarins, sem okkur er svo kær, á lofti
um ókomnar aldir. GT
Félagar í Stúdentafélagi Siglufjarðar lyfta glösum. Sigurður Sigurðsson læknir, Hafliði Guðmundsson kennari, Aage Schiöth lyfsali,
Hinrik Aðalsteinsson kennari og Jóhann Jónsson tannlæknir. Ljósm. HG.
Siglufjörður um 1961. Ljósm. Steingrímur Kristinsson.
Hrímararnir Rúnar Egilsson og Árni Jörgensen 1970.
Böddi og Jósi fyrir utan samnefnda fiskbúð.
Ljósm. Steingrímur Kristinsson.