Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2015, Side 2
SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ - október 20152
Ágætu félagar.
Núna er vetrarstarf Siglfirðinga-
félagsins að hefjast, alltaf tilhlökkun til
vetrarins með félaginu, skemmtilegur
félagsskapur og nóg um að vera.
Aðalfundur félagsins verður haldinn
á Lækjarbrekku (Kornhlöðunni)
þriðjudaginn 3. nóvember kl. 20:00.
Þann 12. nóvember verður svo
haldið hið vinsæla mynda- og upplestrarkvöld félagsins í
Breiðfirðingabúð. Upplestur verður úr tveimur bókum. Ragnar
Jónasson er með nýja bók fyrir þessi jól sem heitir Dimma og
Rakel F. Björnsdóttir, formaður félagsins, þýddi snilldarbók
sem heitir Þarmar með sjarma. Gunnar Trausti stýrir svo
myndasýningu af sinni alkunnu snilld. Aðalbakarí á Siglufirði
sendir okkur sírópskökur eins og undanfarin ár.
Jólaballið verður, eins og venjulega, í KFUM&K salnum við
Holtaveg klukkan 16:00 þann 27. desember.
Stjórnin hefur ákveðið að bæta inn viðburði, kaffisamsæti
fyrir heldrafólk í félaginu (50+) eða eins og segir í auglýsingunni
Heldrafólksfélag. Að þessum viðburði standa formaður félagsins,
Rakel F. Björnsdóttir, og hinn ástsæli Siglfirðingur og danskennari
Heiðar Ástvaldsson. Samkoman verður á Café Catalínu í Kópavogi
þriðjudaginn 12. janúar 2016. Þar verður einnig ljósmyndasýning
Jóns Steinars Ragnarssonar sem á forsíðumyndina á blaðinu
að þessu sinni. Tekið skal fram að myndin er samþykkt af
auglýsingahönnuði hótelsins, Önnu Margréti Sigurðardóttur.
Pub-quiz Siglfirðingafélagsins verður í mars 2016.
Fjölskyldudagurinn verður svo haldinn í maí að venju í
Grafarvogskirkju.
Undirrituð skoðaði nýja hótelið á Siglufirði sl. sumar og frómt
frá sagt er þetta glæsilegt hótel, allur aðbúnaður og umhverfi til
fyrirmyndar.
Árgangsmót voru á Siglufirði í sumar, veit undirrituð af 1945,
1955 og 1965 árgangi, og eru myndir og greinar með tveimur hér
í blaðinu.
Siglfirskir golfarar komu saman í ágúst sl. og héldu golfmót
á Leirdalsvelli GKG, mótið var vel sótt af Siglfirðingum og
velunnurum.
Þar sem þetta er síðasta blaðið sem ég sé um fyrir Siglfirð-
ingafélagið vil ég þakka öllum lesendum kærlega fyrir mörg mörg
undanfarin ár. S. Jóna Hilmarsdóttir
ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ: SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
RITSTJÓRI:
S. JÓNA HILMARSDÓTTIR
SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ
FR
Á
R
IT
ST
JÓ
RA
FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS
Aðalfundur 3. nóvember 2015
Siglfirðingafélagið heldur sinn árlega aðalfund á Lækjarbrekku
(Kornhlöðunni) þriðjudaginn 3. nóvember nk. kl. 20:00.
Siglfirðingafélagið hvetur alla velunnara félagsins til að mæta.
Verður í sal KFUM&KFUK við Holtaveg
sunnudaginn 27. desember 2015 kl. 16.00.
Jólasveinninn kemur og gleður börnin.
Fjörkálfarnir spila undir dansi
kringum jólatréð og allir fá glaðning.
Aðalfundur í Kornhlöðunni
(Lækjarbrekku) þriðjudaginn
3. nóvember kl. 20:00
Upplestrar- og myndakvöld í
Breiðfirðingabúð
12. nóvember kl. 20:00
Jólaball í KFUM&K sunnudaginn
27. desember kl. 16:00
Heldrafólkskaffi á Café
Catalínu í Kópavogi
þriðjudaginn 12. janúar 2016
Pub-quiz undir stjórn Þóris
Hákonarsonar í mars 2016.
Fjölskyldudagurinn
í Grafarvogskirkju 22. maí 2016
Jólaball
Viðburða
dagatal
l
l
l
l
l
l