Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2015, Qupperneq 4
4 SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ - október 2015
Árgangsmót á Siglufirði
uÓtrúlegt að þessir „krakkar“ sem
byrjuðu saman í 6 ára bekk hjá
Arnfinnu séu öll sextug á þessu ári !
Skemmtilegur hópur árgangs 1955
hittist á Siglufirði helgina 10.-12. júlí í
sumar. Góð mæting var, við töldum 45
á skólaspjaldinu og þarna voru mættir
32 af þessum hópi auk maka.
Við hittumst á föstudagskvöldinu á
myndlistarsýningu hjá einum okkar,
Ásmundi Jónssyni
(Jóns og Soffíu
á Nesi). Frábær
sýning og allir
léttir og kátir. Leó
Óla bauð í partý
á Aðalgötuna þar
sem hann á íbúð.
Þar var mikið fjör
og mikið gaman,
rifjuð upp ýmis
spellvirki frá
gömlu dögunum
og hlegið að.
Á laugar-
deginum var hist
í morgunverði í
bakaríinu. Þaðan
fór hópurinn
og skoðaði
barnaskólann.
Skólastjórinn
mætti og hringdi
inn eins og í
gamla daga, það
var skemmtilegt og allir fóru í röð.
Skrítið hvað allt hafði minnkað !!!
Leikfimisalurinn allt í einu orðinn
eitthvað svo lítill, við sem vorum
óratíma að hlaupa eftir salnum
endilöngum hérna áður fyrr.
Röltum svo í rigningunni og
skoðuðum ljósmyndavélasafn
Steingríms Kristinssonar og Beco. Þar
var vel tekið á móti okkur, fengum
við sögu safnsins og skemmtilega
myndasýningu.
Oddfríður Jónsdóttir (Jóns og Ingu
á Eyri) bauð okkur í garðinn til sín í
Eyrargötuna upp á kaffi og kruðerí. Svo
var arkað á fínasta hótel landsins, Hótel
Sigló, og það skoðað.
Um kvöldið hittust allir í sínu fínasta
pússi í Bláa húsinu á myndlistarsýningu
Ólínu Sigríðar Jóhannsdóttur (dóttir
Tótu og Jóa), frábær sýning.
Tveir myndlistarmenn sýndu þessa
sömu helgi og bæði úr árgangi 1955.
Í Bláa húsinu var snæddur
kvöldverður og gamla skólahljóm-
sveitin tróð upp. Tveir af meðlimum
hennar eru því miður látnir, þeir Óttar
Bjarnason og Þórhallur Benediktsson.
Leó og félagar, Guðni Sveinsson, Viðar
Jóhannsson og Haraldur Hjálmarsson
héldu mannskapnum í svo miklu stuði
að brúðkaupsgestir úr Rauða húsinu
voru komnir yfir til að dansa. Ýmsar
uppákomur voru um kvöldið, m.a.
stóð einn upp sem er giftur einni úr
okkar hópi og sagði frá því að þau
hjónin hefðu verið gift í 40 ár, gott
það en þá stóð annar upp úr okkar
hópi og sagðist líka hafa verið giftur
í 40 ár … bara ekki sömu konunni!
Saumaklúbburinn úr Reykjavík söng
skemmtilegar og sérsamdar vísur til
árgangsins.
Kosin var sérstök nefnd til að
undirbúa hitting eftir fimm ár.
Allir kvöddust svo um hádegi
á sunnudag með myndatöku á
kirkjutröppunum eins og siður er.
Skemmtileg helgi og skemmtilegur
félagsskapur. Takk fyrir mig. sjh
1955
Álfhildur Þormóðsdóttir og Þórður Þórðarson.
Jónína Kristín Jónsdóttir,
Halldóra Jónasdóttir og
Gunnar Trausti.
Saumaklúbburinn mætti í afmæli til Stellu Matthíasdóttur í október sl.