Breiðholtsblaðið - 01.10.2006, Síða 8
Í Heiðmörk við Elliðavatn
skammt ofan Breiðholtsins fer
nú fram nýjung í skólastarfi
hér á landi. Er þar um að ræða
svonefnda útikennslu á vegum
Náttúruskóla Reykjavíkur sem
er samstarfsverkefni umhverfis-
sviðs Reykjavíkurborgar, Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur og
Landverndar. Um er að ræða
þriggja ára þróunar- og samstarfs-
verkefni og gert er ráð fyrir að
formlegur samstarfsvettvangur
verði tekinn til endurskoðunar á
árinu 2007.
Frá því að Náttúruskólinn var
settur á laggirnar á síðasta ári hef-
ur umfang hans aukist jafnt og
þétt en markmið hans er að efla
útikennslu og útinám í grunn- og
leikskólum borgarinnar. Helena
Ólafsdóttir, verkefnisstjóri segir
að skólinn anni ekki þeirri eftir-
spurn sem borist hafi. Kennara-
námskeiðin séu öll fullsetin og
dagskrá haustmisserisins fullbók-
uð. Helena segir að þótt um sjálf-
sprottið verkefni sé að ræða þá
bjóði þær breytingar sem orðið
hafi á skólastarfi að undanförnu
upp á skólastarf af þessu tagi.
Með lengingu skólaársins hafi
orðið til tækifæri til þess að nýta
enda þess að vori og hausti til
kennsluverkefna af þessu tagi og
kalli þau á nokkuð ný vinnubrögð
af hálfu kennara. Helena segir að
þjóðlífsbreytingar komi þarna ein-
nig við sögu vegna þess að börn á
grunnskólaaldri séu minna úti við
en áður var. Því sé nauðsynlegt
að fyrir skólann að koma á móti
þessari þróun og geta skapa börn-
um möguleika á útivist samhliða
hinu hefðbundna skólanámi. Hún
segir þetta einnig tengjast því að
um vakandi áhuga sé í samfélag-
inu á lýðheilsu og á útiveru. Fleiri
og fleiri kennarar hafi komið auga
á möguleikana til útikennslu og
hún falli vel að markmiðum skól-
ans um einstaklingsmiðað nám.
Þótt útikennsla sér fyrst nú að líta
dagsins ljós hér á landi þá á hún
sér lengri hefð í nágrannalöndum
okkar. Talsvert er um skólastarf af
þessum toga á Norðurlöndunum
þar sem skólar fara með nemend-
ur á skógarsvæði þar sem þeir
dvelji daglangt eða jafnvel yfir
nótt. Ástæður þess að þetta fyr-
irkomulag hefur ekki þróast fyrr
hér á landi má e.t.v. rekja til þess
hversu aðgangur að skóglendi hef-
ur verið takmarkaður. Með sam-
starfi Útiskólans við Skógræktarfé-
lag Reykjavíkur hefur verið fundin
lausn á þeim vanda og skóglendið
í Heiðmörkinni fyrir ofan Elliða-
vatn er kjörin staður til verkefna
af þessum toga.
8 Breiðholtsblaðið OKTÓBER 2006
Útikennsla við Elliðavatn -
nýjung í skólastarfi
Helena Ólafsdóttir við útikennslu. Af myndinni má dæma að
námsefni sé grasafræði.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
www.heilsugaeslan.is
Inflúensubólusetning hjá
Heilsugæslunni Efra-Breiðholti
er hafin.
Vinsamlegast hafið samband við
Heilsugæsluna Efra-Breiðholti,
Hraunbergi 6,
og pantið tíma í bólusetningu.
Síminn er 594 0500.
Verð 600,- krónur auk komugjalds.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
• Öllum sem orðnir eru 60 ára.
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af
langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrar-
sjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og
öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
• Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem
daglega annast fólk með aukna áhættu.
Reykjavík 26. október 2006.
Við eigum næsta leik
Breiðhyltingar – munið prófkjör Samfylkingarinnar.
Veljum vel á S-listann!
Mörður Árnason
4.–6. sæti
www.mordur.is
Opið öllum stuðningsmönnum – kosið 11. nóvember í Þróttarheimilinu, Laugardal, kl. 10–18
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
breiðholtsbladid2x150version2.pdPage 1 23.10.2006 16:23:00
Taktu þátt og láttu sjá þig eru
einkunnarorð Félagsmiðstöðva-
dagsins sem verður miðviku-
daginn 1. nóvember n.k. en þá
verður opið hús í öllum félags-
miðstöðvum í Reykjavík frá kl.
17 til 21.
Þessi dagur er tilvalin fyrir for-
eldra, systkini, ömmur og afa,
frænkur og frænda til þess að
koma til okkar í Hólmasel eða Mið-
berg og skoða hvað unglingurinn
þinn er að gera hjá okkur. Hvaða
aðstöðu við höfum upp á að bjóða,
spjalla við allt okkar frábæra starfs-
fólk og fá tilfinningu fyrir félags-
miðstöðvarlífinu. Einnig er hægt
að spila billjard, borðtennis, taka
nokkur lög í singstar, skoða mynd-
ir úr starfinu okkar og kynna sér
það fjölbreytta starf sem við bjóð-
um uppá. En allt það starf sem við
vinnum er hugsað sem forvarnar-
starf á einn eða annan hátt. Nán-
ari dagskrá auglýst síðar en boðið
verður uppá léttar veitingar.
Félagsmiðstöðvardagurinn
1. nóv. - opið hús fyrir alla
Augl‡singasími: 511 1188 & 895 8298
borgarblod@simnet.is
borgarblod.is