Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 15

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðOKTÓBER 2006 Nú hafa hvalveiðimenn tek-ið gleði sína á ný.Á sama tíma skiptast menn í tvö horn í afstöðunni til hvalveiða. Byssan var hreinsuð og fægð, hvalbáturinn gerður í stand og svo var haldið á miðin og fyrsti hvalurinn tekinn eins og í gangster í kúrekamynd: Upp með bægsli! Búmm! Og heims- byggðin fylgdist með og hneyksl- aðist. Hvalveiðar eru umdeildar og á málinu í það minnsta tvær hlið- ar. Annars vegar er um að ræða rétt okkar Íslendinga til að taka sjálfstæðar ákvarðanir og hefja veiðar á ný skv. aldagamalli hefð og hins vegar almenningsálitið úti í hinum stóra heimi. Okkur Íslendingum þykir þetta flestum ekkert tiltökumál en vitum hins vegar ekki hvenær við verðum búin að bíta úr nálinni með þessa umdeildu ákvörðun. Þessi pistill er ritaður í Skutuls- firði, nánar til tekið á skrifstofu sóknarprestsins þar. Fjörðurinn, kenndur við hvalveiðitól, blas- ir við augum úr gluggum svo og bærinn fagri Ísafjörður sem stendur á Eyri við Skutulsfjörð. Hér hljóta menn að hafa skutlað hval fyrr á öldum og nýtt úr hon- um allt, spikið, kjötið og beinin. Löngu síðar hófu menn svo veið- ar með því að skjóta skutlinum úr byssu. Á vef Hafrannsóknarstofnun- ar segir m.a. um hrefnuveiðar: „Árið 1914 er talið marka upp- haf hrefnuveiða hér við land þótt eflaust hafi stöku hrefnur verið ,,strengjárnaðar” fyrr. Það ár hóf Þorlákur Guðmundsson bóndi að Saurum, síðar kallað- ur Hrefnu-Láki, hrefnuveiðar í Ísafjarðardjúpi. Á næstu árum breiddust þessar veiðar út til nokkurra staða á Norðurlandi en umfang veiðanna var þó lítið og voru þær einkum stundaðar sem aukabúgrein með hefðbundnum fiskveiðum.” Hrefnu-Láki sem var frægur veiðimaður var hálfbróðir Bárð- ar G. Jónssonar afa míns. Til er saga af Hrefnu-Láka þegar hann lenti tvívegis í snjóflóði á Súðavík- urhlíð í einni og sömu ferðinni. Hann var með byssu í hönd og sagði eftir á eitthvað á þessa leið: Ég sleppti aldrei byssunni, hélt henni alltaf á lofti og upp úr flóðinu! Sonur hans, Karl eða Hrefnu- Kalli, eins og við kölluðum hann, kom oft með feng sinn til Ísafjarð- ar þegar ég var strákur og þá fór ég „oní bæ” eins og sagt var og niður á bæjarbryggju til að kaupa hrefnukjöt. Kalli bograði þar yfir hrefnunni, skar úr henni stykki, vigtaði á krókvog, skar síðan gat í stykkið, setti snæris- spotta í gegnum gatið og fékk mér. Síðan gekk ég með stykkið heim með blóðslóðina á eftir mér og fékk mömmu sem eldaði kjöt- ið af sinni snilld. Og enginn mót- mælti. Þá vorum við Íslendingar svo „langt frá heimsins vígaslóð” að fáir vissu hvað við vorum að gera og þótt þeir vissu það þá voru hugmyndir manna allt aðr- ar og afstaðan til lífríkisins allt önnur en nú. Nú er okkur öllum ljóst að jörðin er ekki óþrjótandi uppspretta gæða, að lífríkið er viðkvæmt og auðvelt er að skaða jafnvægið í sköpuninni. Við teljum okkur eiga rétt til hvalveiða. Og réttlætiskennd er göfug og góð. En stundum er mönnum bara ekki stætt á að standa á rétti sínum því réttur annarra kann að stangast á við rétt þeirra. Við Íslendingar erum ekki einir í heiminum og þurfum að taka tillit til annarra. Mér þykir hvalkjöt gott og hrefnuhjartað sem ég smakk- aði meðal 60 rétta á Villibráðar- kvöldi á Hótel Ísafirði á dögun- um var gómsætt og gott. En við verðum að hlusta á umheiminn, jafnvel þótt hann skilji okkur ekki og sé jafnvel illa upplýstur á köfl- um. List samræðunnar er erfið en hún er mikilvæg. Líklega mun hún skila meiri arði þegar upp verður staðið en bægslagangur þeirra sem nú vilja standa á rétti sínum til hvalveiða. Bægslagangur Námskeiðið er á fimmtudögum kl. 17-19 í fjögur skipti, haldið í Vesturgarði á Hjarðarhaga. Námskeiðið halda Helga Arnfríður sálfræðingur í Vesturgarði og Sólveig Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslustöðinni á Seltjarnarnesi. Verð 9000 kr fyrir foreldra og 6000 kr fyrir foreldri. Skráning og nánari upplýsingar í Vesturgarði í síma: 411 1700 eða sendið tölvupóst til: hrafnhildur.gisladottir@reykjavik.is

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.