Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 19
Íslandsmót karla í körfubolta,
Iceland Express deildin, hófst í
síðustu viku, en KKÍ og Iceland
Express hafa skrifað undir áfram-
haldandi samning um samstarf til
tveggja ára. Um leið var birt spá
fyrir komandi tímabil en forsvars-
menn, þjálfarar og fyrirliðar allra
félaganna spáðu fyrir um í hvaða
sæti liðin yrðu í vor. Í kvenna-
flokki var Haukum spáð efsta
sætinu og Keflavík öðru. Nýliðar
Hamars/Selfoss voru aftur á móti
taldar líklegastar til þess að falla í
vor. Njarðvíkingum var spáð efsta
sætinu í karlaflokki og Keflvíking-
um öðru. Nýliðunum var einnig
spáð slæmu gengi hjá körlunum
en Þór Þorlákshöfn og Tinda-
stóll vermdu botnin samkvæmt
spánni. Það verður fróðlegt að
sjá hvort að spárnar rætast í vor
en ljóst er að það er skemmtileg
keppni framundan. Spáin í Iceland
Express deild karla:
o Njarðvík 413 stig
o Keflavík 399 stig
o KR 325 stig
o Skallagrímur 310 stig
o Snæfell 306 stig
o Grindavík 244 stig
o ÍR 218 stig
o Haukar 171 stig
o Hamar/Selfoss 127 stig
o Fjölnir 122 stig
o Tindastól 108 stig
o Þór Þorlákshöfn 67 stig
(432 stig í pottinum)
Umtalsverðar breytingar
á KR-liðinu
Hjá KR hafa orðið umtalsverðar
breytingar. Áfram eru með liðinu
Brynjar Þór Björnsson, Fannar
Ólafsson, Skarphéðinn Ingason,
Pálmi Sigurgeirsson, Ólafur Ægis-
son, Darri Hilmarsson og Ellert
Arnarson.
Nýir leikmenn eru Hafþór
Björnsson, Tyson Patterson, Jer-
emiah Sola, Peter Heizer, Gunn-
ar Stefánsson, Bjarki Oddsson og
Heiðar Lind Hansson.
Farnir eru Steinar Kaldal sem
er í fríi, Níels Dungal til Fjölnis,
Eldur Ólafsson til Hamars, Gunn-
laugur Erlendsson til Tindastóls,
Grétar Guðmundsson til Danmerk-
ur, Tómas Hermannsson til Þórs
Akureyri, Jón Hrafn Baldvinsson
til Breiðabliks, Melvin Scott til
Bandaríkjanna og Ljubodrag Boga-
vac til Serbíu.
KR hefur fengið nýjan þjálfara,
Benedikt Guðmundsson og hann
var spurður hvort ofangreind spá
hefði komið honum á óvart.
“Ég velti lítið vöngum yfir því í
hvaða sæti okkur er spáð, enda er
þetta meira til gamans gert. Þetta
er samt vísbending, en við ætlum
okkur að vera í efri hluta mótsins
í lokin, og að berjast um einhverja
titla. Við ætlum að halda hreinu
á heimavellinum í Frostaskjólinu,
leggjum metnað okkar í það að
það komi engin lið til okkar og
fari héðan með sigur, en deildin er
gríðarlega jöfn nú og mikið af góð-
um liðum í henni svo enginn leik-
ur er unninn fyrirfram. Útileikirn-
ir eru orðnir virkilega erfiðir svo
það skiptir miklu máli að klára
heimaleikina með sigri.
Íceland Express deildin er sterk,
reyndar man ég ekki eftir henni
svona sterkri, enda er mikið af
félögunum að leggja allan sinn
metnað í þetta og tjalda ýmsu til,
jafnvel meiru til en oft áður. Ég
tel að það verði mikið um óvænt
úrslit í deildinni í vetur og mikil
barátta um það hvaða 8 lið fara í
úrslitakeppnina. Það er breyting,
því oft hefur ekki mikil spenna ríkt
um það undanfarin ár. Ég held að
öll 12 liðin í deildinni muni og geti
gert tilkall til þess að komast í
úrslitakeppnina. Breytingar á KR-
liðinu eru miklar, og kannski meiri
en ég hafði vonast til, við erum
að miklum hluta með nýtt lið. KR
hefur ekki nema einn titil síðustu
15 árin, en KR varð Íslandsmeist-
ari árið 2000, og tími kominn á
annan titil. Síðast varð KR bikar-
meistari árið 1991 svo það er orð-
in þörf á að bæta við bikarsafnið
í Frostaskjólinu,” segir Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR.
19VesturbæjarblaðiðOKTÓBER 2006
KR-SÍÐAN
GETRAUNANÚMER
KR ER 107
“Fátt skemmtilegra en að
leika fyrir fullu húsi”
Körfuknattleikstímabilið sem
hófst sl. í sl. viku er það 50. í sögu
körfuknattleiksdeildar KR. Merk-
ur áfangi sem vert er að fagna og
um leið láta hugann reika aftur
í tímann og velta fyrir sér fram-
þróun íslensks körfuknattleiks og
þátt KR-inga í þeirri þróun. Spyrja
má hvort körfuknattleikur í dag
sé skemmtilegri en hann var fyrir
t.d. 10 árum síðan, hafa erlendir
leikmenn sett mestan svip á deild-
ina eða hafa íslensku leikmennirn-
ir skilað skemmtilegustu minning-
unum?
Böðvar Eggert Guðjónsson, for-
maður körfuknattleiksdeildar KR,
segir að KR-liðið mæti nokkuð
breytt til leiks í ár og nýjan þjálf-
ara meistaraflokks karla þurfi vart
að kynna.
“Benedikt Rúnar Guðmundsson
snýr aftur í okkar raðir í ár eft-
ir nokkurra ára vist í Grafarvogi.
Benedikt er snjall þjálfari og fellur
vel inn í það umhverfi sem stjórn
deildarinnar hefur skapað und-
anfarin ár. Einnig mun Benedikt
þjálfa tvo yngri flokka og stjórna
Elítu-æfingum með Inga Þór Stein-
þórssyni. Elítu-æfingar er nýtt
verkefni en í þann hóp eru vald-
ir iðkendur sem að sýna áhuga
og færni í körfuknattleik og undir
handleiðslu þessara tveggja þjálf-
ara er lögð áhersla á svokallaðir
sér-æfingar sem að leikmenn á
borð við Jón Arnór Stefánsson,
Jakob Sigurðsson og Helgi Magn-
ússon tóku þátt í á sínum tíma.
Allir þessir leikmenn eru atvinnu-
menn í dag þannig að ljóst er að
þetta verkefni er gott framtak og
eru vonandi komið til að vera.
Það er fátt skemmtilegra en að
leika fyrir fullu húsi áhorfenda
og það hefur sýnt sig að oft hafa
áhorfendur verið 6. maður liðs-
ins og drifið þá áfram með hróp-
um og köllum þegar á þarf að
halda. Nú er lag að búa til ster-
kasta heimavöll landsins og með
samtaka hjálp getur það orðið að
veruleika. Í tengslum við aukningu
áhorfenda á leiki vetrarins kynnir
deildin NBA-Lotterí. Markhópur
okkar eru iðkendur og fyrir að
mæta á leiki fá iðkendur þrjár kúl-
ur, fyrir að taka foreldra eða aðra
fjölskyldumeðlimi með á leik fá
þeir auka kúlu. Fyrstu verðlaun er
ferð á NBA leik fyrir 2 í vor þannig
að til mikils er að vinna og stuðn-
ingur foreldra skiptir máli.
Vesturbærinn er stórt hverfi
með stórt hjarta alveg eins og
félagið okkar. Með bros á vör og
gleði í hjarta eru okkur allir vegir
færir,” segir Böðvar Eggert Guð-
jónsson, formaður körfuknattleiks-
deildar KR.
Hverjir verða bestir?
Laugardaginn 4. nóvember
næstkomandi, býður Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur til KR-
þings í Frostaskjólinu þar sem
stórar spurningar um framtíð
félagsins verða til umræðu. Öll-
um KR-ingum, Vesturbæingum
og öðrum sem láta sig framtíð
KR varða, er velkomið að mæta í
stuttan eða langan tíma og koma
sínum sjónarmiðum á framfæri.
Því fleiri, því betra, því fleiri
sjónarmið.
Á ríflega 100 árum hefur KR náð
að byggja upp öflugt íþróttastarf
á mörgum sviðum og náð frábær-
um árangri. Margt hefur breyst á
einni öld og því vill stjórn félags-
ins staldra við og marka stefnu til
framtíðar.
Hvernig komum við til móts við
þarfir og væntingar á 21. öldinni?
Hvað þýðir það að “verða best-
ir?” Bestir í afrekum og uppeldi?
Bestir fyrir samfélagið? Hvernig
verður KR áfram í forystu inn í
næstu öld? Hver verður stefnan í
unglingamálum?
Þessar spurningar og ýms-
ar aðrar framtíðarspurningar
verða ræddar á KR-þinginu. Þar
fer fram samræða þvert á allar
deildir og aldurshópa. Eftir því
sem næst verður komist er þetta
í fyrsta sinn sem íþróttafélag
hér á landi býður til svo opinnar
umræðu um málefni og áherslur.
Umsjón með þinginu er í höndum
ráðgjafarfyrirtækisins Alta, sem
hefur m.a. stýrt um 20 íbúaþing-
um víða um land.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, ráð-
gjafi hjá Alta, segir að aðkoma
ráðgjafafyrirtækisins felist í því
að stýra þinginu og vinna með
stýrihópnum en þingið marki upp-
haf stefnumótunarinnar. Því sé
mikilvægt að sem flestir sem láti
sér framtíð KR varða mæti á þing-
ið og taki virkan þátt í umræð-
unni. Útkoman á að gefa línuna til
framtíðar fyrir KR varðandi ýms-
ar áherslur, ákvarðanir, þjónustu
o.fl.
“Hvað þýðir það að vera bestir?
Gott er ef sem flestir veltu þeirri
spurningu fyrir sér áður en til KR-
þings er komið. Þarna er verið að
marka félaginu framtíðarstefnu.
Það er svo auðvelt þegar maður
er þiggjandi einhverrar þjónustu
eða mætir á íþróttaleik að halda
að hægt sé að ganga að þessu
öllu gefnu um aldur og ævi. KR er
yfir 100 ára gamalt félag og allar
forsendur hafa breyst umtalsvert
í þjóðfélaginu og fleiri eru fyrir-
sjáanlegar,” segir Sigurborg Kr.
Hannesdóttir.
Hvert stefnir félagið?
“Félagið er því nú á ákveðnum
krossgötum og því villl það ekki
halda áfram að óbreyttu heldur
staldra við og spyrja, hvert vilj-
um við fara? Svar við því þurfa
allir KR-ingar og Vesturbæingar
að fá.
Á þessu þingi munum við nota
aðferð sem hefur verið að ryðja
sér til rúms. Allir munu taka þátt
í umræðuhópum og skrifa niður
eða teikna það sem þar fer fram
á borðdúkinn! Síðan skiptir fólk
um borð, fær nýtt fólk til að ræða
við og þannig verður mjög mikil
blöndun sjónarmiða. En hver lota
er ekki nema 20 til 25 mínútur.
Það dregur úr líkunum á því að
einhver einn “dómíneri” umræð-
una. Oft er lögð lítil steinvala á
borðið og þá hefur sá sem heldur
á steinvölunni orðið í það skiptið,
og þannig er komið í veg fyrir að
allir við borðið tali í einu. Þannig
verður fólk líka meðvitaðra um að
hlusta líka. Fyrir hádegi munum
við fyrst og fremst beina sjónum
okkar að spurningunni: “Hvaða
spurninga ættum við að spyrja
okkur varðandi starfsemi KR á 21.
öldinni?” Inn á það fléttast raunar
allt, eins og vangaveltur um upp-
eldissjónamið, afrekssjónamið,
aðstöðu, innra starf, þjónustu við
íbúa í hverfinu, samstarf við skól-
ana og margt fleira.
Á KR-þinginu koma væntanlega
margir með mótaðar skoðanir og
upplifa sig mun frekar sem ger-
endur en t.d. þátttakendur á íbúa-
þingi sem koma í upphafi fyrst
og fremst sem þiggjendur. Virkur
þátttakandi getur haft svo mikil
áhrif.
Þrjár megináherslur hvers
hóps eru kynntar síðan og þær
teknar til úrvinnslu og síðan verð-
ur reynt að draga fram meginlínu
á staðnum. Þinginu lýkur með
svokölluðum orðstað,” segir Sig-
urborg Kr. Hannesdóttir.
Sýnishorn af því sem rætt verður
um við hvert borð á KR-þinginu.
- segir formaður körfuknattleiksdeildar KR
Markmið KR er ná
í titla í körfunni
Benedikt Guðmundsson. Undir hans stjórn hefur KR unnið 2 fyrstu
leikina, gegn Snæfell og Keflavík
- KR-þingið 4. nóvember nk. mun m.a. fjalla um það
Karl Halldórsson, Liverpoolaðdáandi, er einn af áhugasömustu tippur-
unum hjá KR. Auður var hins vegar ekki viss um hvernig leikirnir færu
en taldi þó að Chelsea ynni sinn leik og Arsenal mundi vinna eins og
venjulega! Hvoru tveggja gekk eftir. Á hverjum laugardegi mæta KR-
tipparar í Frostaskjólið, spá í leiki dagsins, ræða málin, tippa og fá sér
kaffi. Allmargir koma hvern einasta laugardag yfir vetrartímann.