Allt um íþróttir - 01.05.1951, Blaðsíða 2
LESENDUR SKRIFA.
Tímaritið íþróttir.
Ég sendi blaðinu hér með nokkr-
ar línur mér til gamans. Fyrst
langar mig til að koma með fá-
einar spurningar, sem ég óska eft-
ir að fá svör við í ritinu.
1. Er nokkrum íþróttamanni
leyfilegt að keppa fyrir nema eitt
félag á sama árinu eða sama
keppnistímabili, þótt hann keppi
í fleiri en einni íþróttagrein?
2. Er íþróttamanni leyfilegt að
keppa í sömu íþróttagreininni fyr-
ir 2 eða fleiri félög á sama keppn-
istímabili?
3. Hvað er núverandi heimsmet
í maraþonhlaupi (42.195 m.) og
hver á það?
4. Hvert var íslandsmetið í
þrístökki og langstökki á allsherj-
armótinu 1911 og hverjir áttu þau?
5. Er hin svonefnda finnska
stigatafla einnig notuð fyrir kven-
fólk?
Ritið líkar mér mjög vel. Það er
mikill fengur að útkomu þess. Ég
á öll heftin nema það fyrsta, en
það hefur mér ekki tekizt að fá
ennþá.
Að lokum langar mig til að fara
nokkrum orðum um atkvæða-
greiðslu blaðsins á s.l. hausti. Um
hana er að vísu allt gott að segja,
en a. m. k. mér, og ég veit um
146
fleiri hér um slóðir, sem þótti það
mikil vöntun, að ekki voru birt
nöfn allra þeirra, sem atkvæði
fengu og hve mörg atkvæði hver
og einn fékk. Slíkt hefði án efa
aukið vinsældir þessarar nýbreytni
og auk þess verið miklu skemmti-
legra.
„íþróttamaður".
Svör:
1. Já, þetta mun vera leyfilegt.
íþróttamaður má t. d. keppa fyrir
Ármann í handknattleik og K.R.
í frjálsum íþróttum og Í.R. í körfu-
knattleik.
2. Nei.
3. Heimsmet er ekki staðfest í
maraþonhlaupi, en beztan tíma á
Könönen, Finnlandi, 2 klst. 28 mín.
39.4 sek. Hann vann þetta afrek
1949 í Ábo. Annars hljóp 19 ára
gamall Japani, Sigeki Tanaka, á
2:28.16.0 4. febr. í vetur, og mun
það afrek að líkindum vera rétt.
Hann vann afrekið í borginni
frægu, Hiroshima, en þar á hann
heima. Hann var í borginni, þegar
kjarnorkusprengjan féll, en sakaði
ekki.
4. Það var ekki farið að stað-
festa íslandsmet 1911 og ekki held-
ur að keppa í þrístökki. Á leikmóti
U.M.F.Í. 1911 sigraði Kristinn Pét-
ursson í langstökki, stökk 5.37 m.
5. Nei.
Við getum vel fallizt á það, að
rétt hafi verið að birta nöfn allra,
sem atkvæði fengu og einnig at-
kvæðamagn. Þó að langur tími sé
síðan þessi kosning fór fram, mun-
um við birta nöfn og röð þeirra
Frh. á bls. 168.
ÍÞRÓTTIR