Allt um íþróttir - 01.05.1951, Blaðsíða 9
Góður árangur og fjögur met
á Sundmeistaramóti Islands.
Hörður Jóhannesson var maður mótsíns.
M.í. í sundi fór fram í Sund-
höllinni dagana 16. og 20. apríl s.l.
Þó að hér væri um að ræða aðal-
sundmót ársins voru áhorfendur
mjög fáir bæði kvöldin, og þeir,
sem komu, voru mest krakkar. Er
leitt til þess að vita, ef áhugi fólks
fyrir sundíþróttinni er að dofna,
um leið og aðrar þjóðir halda því
fram, að við séum mesta sundþjóð
Evrópu. Annars var mót þetta
óvenju skemmtilegt og gekk alveg
prýðilega, enda höfðu farið fram
undanrásir í þeim greinum, sem
þátttakan var mest. í sambandi
við það má benda á næstum óskilj-
anlegt atvik og að því er manni
finnst ólöglegt, en einn keppandi
mótsins fékk að fara í úrslit, án
þess að taka þátt í undanrásunum.
Það er óhætt að halda því fram,
að svona nokkuð sé einsdæmi.
Árangurinn.
í skriðsundi eigum við þrjá
menn á Evrópumælikvarða, þ. e. a.
s. Ara, Pétur og Helga Sigurðs-
son. Ara tókst reyndar að sigra
þá báða í þetta sinn, en hann verð-
ur að hafa meira fyrir því í fram-
tíðinni. I landskeppni er okkur al-
veg borgið með þessa þrjá menn,
því að Pétur og Ari eiga báðir að
geta farið undir mínútunni í 100
m. og í 400 m. munu þeir Ari og
Helgi geta synt á ca. 5 mín. í
harðri keppni. Við erum ekki á
flæðiskeri staddir hvað snertir ár-
angur bringusundsmanna okkar.
Sigurðamir, Atli og Kristján Þór-
isson eru sómasamlegir í keppni,
hvar sem er á Norðurlöndum og
þó víða væri leitað. En auk þess
er fjöldi af ungum og efnilegum
mönnum í kjölfarinu, svo sem Jón
L. Amalds, Helgi Björgvinsson,
Sigurður Þorkelsson, Elías Guð-
mundsson, Ragnar Vignir o. fl.
Sigurður Jnnsson Þingeyingur
IÞRÓTTIR
153