Skinfaxi - 01.02.2015, Qupperneq 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
I nnan UMFÍ hefur á undanförnum árumfarið fram töluverð umræða um Lands-mót UMFÍ, þ.e. „Stóra Landsmótið“, eins og við ungmennafélagar köllum það
okkar á milli. Þau orð sem einkum heyrast
eru að mörgum þykir að mótin hafi dregist
saman og að ekki sé sami dýrðarljómi yfir
þeim og áður var, er þá einkum verið að horfa
til áranna um og eftir miðja síðustu öld. Kepp-
endum frá sambandsaðilum hefur fækkað og
aðsókn að mótunum minnkað. Í ljósi þessa
hafa sumir sagt að tími mótanna sé liðinn og
að best sé að leggja þau niður.
Stundum þarf að ýta hressilega við fólki til
að fá umræðuna og er óhætt að segja að það
hafi borið árangur varðandi Landsmótið.
Þegar menn hafa lýst því yfir á þingum UMFÍ
að mótið hafi runnið sitt skeið á enda hafa
mörg ungmennafélagshjörtu tekið kipp og
áttað sig á því að það vilja þau alls ekki.
Margir eiga ljúfar minningar frá Lands-
móti UMFÍ og geta ekki undir neinum kring-
umstæðum hugsað sér að leggja mótin nið-
ur. Sá liðsandi sem oft varð til þegar fólk úr
héraðssamböndunum safnaðist saman og
hélt á Landsmót fyrir sitt samband sé engu
líkur. Minningar frá skemmtilegri keppni,
keppnisferðalagi og samveru við fólk úr
hreyfingunni séu ómetanlegar.
Í ljósi þessara umræðna og hugleiðinga í
tengslum við 27. Landsmót UMFÍ á Selfossi
lagði stjórn HSK fram tillögu á sambandsráðs-
fundi UMFÍ sem haldinn var á Kirkjubæjar-
klaustri í október 2012 þar sem samþykkt var
að fela stjórn UMFÍ að halda stefnumótandi
ráðstefnu um Landsmót, Unglingalandsmót
og Landsmót 50+. Á ráðstefnunni skyldu tekn-
ir fyrir grunnþættir mótanna, hvað hefur verið
vel gert og hverju mætti hugsanlega breyta.
Stjórn UMFÍ ákvað í framhaldinu að fara
í fundaherferð um landið þar sem framtíð
Landsmótanna yrði rædd. Fyrsti stefnumót-
unarfundurinn var haldinn á Húsavík 11.
maí 2013 og tókst vel. Síðan voru haldnir
fundir í Borgarnesi 30. janúar, á Akureyri 27.
febrúar, í Reykjavík 5. mars, á Selfossi 19. mars
og á Egilsstöðum 9. apríl árið 2014. Aðsókn á
fundina var misgóð eins og gengur en margar
góðar hugmyndir komu fram.
Stjórn UMFÍ skipaði síðan fjögurra manna
nefnd sem tók saman niðurstöður fundanna
og kom fram með tillögur að breytingum er
lagðar voru fyrir sambandsráðsfund UMFÍ
sem haldinn var í Garðabæ í október 2014.
Nefndin lagði fram róttækar breytingar, m.a.
til að fá fram viðbrögð sambandsaðila. Ekki
stóð á þeim því að fulltrúar á sambandsráðs-
fundi voru ekki tilbúnir að samþykkja breyt-
ingarnar og vildu að þær yrðu sendar heim í
hérað og lagðar fyrir sambandsaðila.
Nú hafa sambandsaðilar haft góðan tíma
til að fjalla um tillögurnar og munu væntan-
lega senda nefndinni hugmyndir sínar og
athugasemdir. Stjórn UMFÍ mun eftir það
setja fram tillögu um breytingar á Landsmót-
inu sem lögð verður fyrir sambandsþing
UMFÍ haustið 2015.
Flestum er ljóst að ef við ætlum að halda
áfram að halda Landsmót UMFÍ þarf að gera
breytingar á mótinu. Aðsókn og þátttaka í
síðustu mótum gefur það til kynna. Það er
fátt sem segir að ekki sé hægt að reisa Lands-
Hugleiðingar um Landsmót
mótin við og gera þau aftur að þeim stórvið-
burðum sem þau hafa verið í gegnum tíðina.
Til þess þarf einungis áræði og þor og öflugt
hugmyndaflug.
Af þeim hugmyndum sem fram hafa kom-
ið má nefna að fækka keppnisgreinum og
breyta keppnisfyrirkomulagi í ákveðnum
greinum. Einnig að opna fyrir þátttöku
almennings þannig að hver sem er geti tekið
þátt í Landsmóti, svipað og gert er á Ungl-
ingalandsmótinu. Með því fyrirkomulagi yrði
mótið gert að meiri lýðheilsuhátíð. Margir
eru á því að stigakeppnin eigi að vera áfram
enda hefur hún oft og tíðum verið mikill
hvati fyrir þátttöku hjá sambandsaðilum.
Hvað sem öðru líður þarf hreyfingin að
taka ákvörðun um framtíð Landsmótanna.
Ein leið, sem hefur verið nefnd, er að sam-
bandsþingið í haust móti meginstefnuna en
eftir það verði mótshaldara gefnar frjálsar
hendur um að koma með frekari breytingar
og nánari útfærsla verði síðan unnin í sam-
vinnu við stjórn UMFÍ.
Á meðan fólk hefur gaman af því að koma
saman og keppa í íþróttum, þar sem gleði
og góður keppnisandi svífur yfir vötnum, er
grundvöllur fyrir því að halda Landsmót
UMFÍ. Möguleikarnir á nýrri útfærslu, sem
er meira í takt við nútímann, eru óteljandi
og því fátt annað að gera en að bretta upp
ermar og stefna ótrauð á næsta Landsmót
UMFÍ 2017.
Íslandi allt!
Helga Guðrún Guðjónsdóttir
Í upphafi ársins voru undirritaðir sam-
starfssamningar á milli Ungmennafélags
Akureyrar, Ungmennafélags Íslands og
Akureyrarbæjar um framkvæmd Ungl-
ingalandsmóts UMFÍ 2015, en mótið fer
fram á Akureyri um verslunarmanna-
helgina. Er þetta jafrnframt í fyrsta skipti
sem Unglingalandsmót er haldið á Akur-
eyri. Akureyri er mikill íþróttabær með
öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Mun það
m.a. speglast í miklu framboði keppnis-
greina á mótinu þannig að sem flestir á
aldrinum 11–18 ára ættu að finna tæki-
færi til að taka þátt í frábærum viðburði
á Akureyri.
Á myndinni hér til hliðar eru, frá vinstri:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, Sigurður Freyr Sigurðarson, for-
maður UFA, Ingibjörg Ólöf Isaksen,
formaður íþróttaráðs og varaformaður
unglingalandsmótsnefndar 2015, og
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri
og formaður unglingalandsmótsnefndar
2015.
Samstarfssamningar vegna Unglingalandsmótsins á Akureyri undirritaðir
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.