Skinfaxi - 01.02.2015, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Valdimar Leó Friðriksson var endurkjör-
inn formaður á þingi UMSK sem haldið var í
Framhaldsskóla Mosfellsbæjar 26. febrúar sl.
Sjötíu fulltrúar frá sautján félögum mættu
á þingið. Tvö ný félög voru tekin inn í sam-
bandið en það eru Lyftingafélag Kópavogs
og Lyftingafélag Garðabæjar.
Á þinginu voru veittar viðurkenningar fyr-
ir góðan árangur á árinu 2014. Norma Dögg
Róbertsdóttir úr Gerplu var valin íþróttakona
UMSK og Daníel Laxdal, Stjörnunni, var valinn
íþróttakarl UMSK, en þetta var í fyrsta skipti
sem íþróttakona og íþróttakarl UMSK eru
valin. Guðrún Kristín Einarsdóttir, Aftureld-
ingu, fékk félagsmálaskjöldinn fyrir mikið og
óeigingjarnt starf við uppbyggingu blak-
íþróttarinnar í Mosfellsbæ.
„Við fórum í nokkrar smávægilegar laga-
breytingar og færðum í nútímabúning. Ann-
Sigurður Magnússon var kjörinn formaður
Ungmennafélags Akureyrar á aðalfundi
félagsins sem haldinn var 17. febrúar sl.
Sigurður er ekki ókunnugur störfum fyrir
félagið því hann var einn af þremur sem áttu
hugmyndina að stofnun UFA og sat í stjórn
í 13 ár. Hann var gjaldkeri fyrstu fjögur árin,
síðan varaformaður og svo formaður í eitt ár
eða þar til hann þurfti að flytja til Reykjavíkur
vegna vinnu sinnar. Hann kom heim eftir eitt
ár og kom þá aftur inn í stjórnina.
Þess má geta að Sigurður var sæmdur
starfsmerki UMFÍ á 5 ára afmæli UFA.
Hann var aðalræsir á fyrsta Unglingalands-
mótinu á Dalvík 1992. Hann var einnig aðal-
ræsir á Landsmóti UMFÍ í Borgarnesi 1997,
Egilsstöðum 2001 og á Sauðárkróki 2004.
„Ég var tilbúinn að koma aftur til starfa og
ég hlakka mikið til starfsins og þess að vinna
með góðu fólki. Það eru spennandi tímar
fram undan og starfið innan UFA gengur
vel. Við eigum íþróttafólk í fremstu röð og
getum verið stolt af því,“ sagði Sigurður
Magnússon.
Sigurður Magnússon, nýkjörinn formaður UFA:
Getum verið stolt af okkar fólki
ars var samstaða góð á þinginu og það er
gleðilegt að segja frá því að félögum innan
UMSK er að fjölga. Á þinginu voru tvö félög
tekin inn í ungmennasambandið og eru
þau því orðin alls 46. Félagsmenn eru í dag
um 66.000. Þar af eru iðkendur um 27.000
og fjölgaði þeim um 3.000 á milli ára. Þetta
er ánægjuleg þróun,“ sagði Valdimar Leó
Friðriksson, formaður UMSK, í samtali við
Skinfaxa.
Valdimar Leó sagði að á þinginu hefði
ennfremur verið samþykkt að setja aukið
fjármagn í fræðslumál.
Ungmennasamband Kjalarnesþings:
Iðkendum fjölgaði um þrjú þúsund
Valdimar Leó Friðriksson, formaður UMSK, ásamt Guðrúnu Kristínu
Einarsdóttur, Aftureldingu, sem fékk félagsmálaskjöld UMSK.
Sambandsþing
Ungmennasam-
bands Borgar-
fjarðar fór fram
7. mars sl., í félags-
heimilinu Loga-
landi. Á þingið
mættu 30 fulltrúar
frá aðildarfélögum
UMSB. Gunnar Gunnars-
son, stjórnarmaður UMFÍ,
ávarpaði þingið og flutti góðar
kveðjur. Auk þess kom Hrönn Jónsdóttir úr
stjórn UMFÍ á þingið og sæmdi Stefán Loga
Haraldsson, formann Hestamannafélagsins
Skugga, starfsmerki UMFÍ fyrir óeigingjarnt
starf í þágu íþróttahreyfingarinnar.
Fundarmenn voru almennt jákvæðir með
uppgjör ársins 2014 og bjartsýnir á fram-
haldið. Ánægja var með góða fjárhagsstöðu
UMSB, en unnið hefur verið markvisst í þeim
málum undanfarin ár.
Ánægja var með hversu vel hefur gengið
að ná flestum þeim markmiðum sem sett
voru við gerð stefnu UMSB sem samþykkt
var á sambandsþingi 2013. Samþykkt var að
setja niður ný markmið fyrir UMSB á árinu
Sigurður Guðmundsson, formaður Ungmennasambands Borgarfjarðar:
Stefnum í rétta átt í starfinu
2015 og kynna á formannafundi í haust.
Ekki urðu miklar breytingar á stjórn UMSB
á þinginu en Sigurður Guðmundsson sam-
bandsstjóri var kjörinn áfram í eitt ár. Aðrir í
stjórn eru Kristín Gunnarsdóttir gjaldkeri, Sól-
rún Halla Bjarnadóttir ritari, Ásgeir Ásgeirs-
son varasambandsstjóri, Þórhildur María
Kristinsdóttir meðstjórnandi, Jón Eiríkur
Einarsson vara-varasambandsstjóri, Aðal-
steinn Símonarson vararitari, Þórdís Þóris-
dóttir varagjaldkeri og Anna Dís Þórarins-
dóttir varameðstjórnandi.
„Það sem stendur einna helst upp úr er
þegar við tókum við íþrótta- og tómstunda-
skólanum frá Borgarbyggð. Þetta er spenn-
andi verkefni og tengir á allan hátt tóm-
stundastarfið í sveitarfélaginu betur saman.
Við sjáum strax að þátttaka í íþróttastarfi
barnanna jókst. Það er kannski of snemmt
að segja til um árangurinn núna en þetta
lofar góðu. Við tókum einnig við félagsmið-
stöðvunum og sumarstarfinu og vonandi
stöndum við undir væntingum í þeim efnum.
Við stefnum í rétta átt í starfinu og höfum
bolmagn til að vinna vel. Ég held að ekki sé
ástæða til neins annars en að vera bara
brattir,“ sagði Sigurður Guðmundsson, sam-
bandsstjóri UMSB.
Hrönn Jónsdóttir,
stjórnarmaður í
UMFÍ ávarpar þing
UMSB. Sigurður
Guðmundsson,
sambandsstjóri
UMSB, til hægri.