Skinfaxi - 01.02.2015, Blaðsíða 27
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 27
B
orðtennisíþróttin er stunduð af kappi
hjá Íþróttafélaginu Dímon á Hvolsvelli.
Þó nokkur hefð hefur skapast í þessari
íþrótt hjá félaginu og segja má að öflugu
starfi hafi verið haldið úti um margra ára
skeið. Um 30 manns leggja reglubundið
stund á borðtennis.
Samstarf við Heklu í tvö ár
„Við getum sagt að borðtennis hafi verið þó
nokkuð öflugur innan Dímonar í tíu ár. Við
höfum boðið borðtennisfólki frá Ungmenna-
félaginu Heklu á Hellu að koma til okkar og
það samstarf hefur staðið yfir í tvö ár. Í stað-
inn höfum við fengið að fara með nokkra
krakka til æfinga í sundi hjá þeim. Borðtenn-
is hefur í gegnum tíðina verið mjög vinsæll
hjá okkur og ætli ástæðan fyrir því sé ekki
hvað það er gaman að spila þessa íþrótt,“
sagði Ásta Laufey Sigurðardóttir, formaður
Íþróttafélagsins Dímonar, í samtali við
Skinfaxa.
Þjálfarar koma í heimsókn
„Það hefur eflaust hjálpað til að við erum
búin að hafa lengi sömu þjálfarana. Við höf-
um líka verið dugleg að fá til liðs við okkur
þjálfara bæði frá KR og HK og þjálfarar lands-
liðsins hafa einnig komið í heimsókn. Kepp-
endur frá Dímoni hafa tekið þátt í mótum í
einstaklingskeppni og einnig í liðakeppni
þar sem þrír eru saman í liði. Það eru svona
að jafnaði í kringum 25–30 krakkar sem æfa
hjá Dímon,“ sagði Ásta Laufey.
Ásta sagði að Dímon hefði átt keppendur
á Íslandsmeistaramótum, bæði í fullorðins-
Mikil hefð fyrir borðtennis hjá Dímon á Hvolsvelli
og barnaflokkum. Borðtennisstarfið hefði
verið mjög skemmtilegt og gefandi í gegn-
um tíðina.
Erum stolt af okkar fólki
„Við erum með starfandi sjö greinar innan
Dímonar og erum virk í að taka þátt í mót-
um. Starfið er fjölbreytt og margir krakkar í
fleiri en einni grein. Við erum rosalega stolt
af okkar fólki,“ sagði Ásta Laufey.
„... ætli ástæðan fyrir því sé
ekki hvað það er gaman að spila
þessa íþrótt.“