Skinfaxi - 01.02.2015, Page 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
J óhann Guðjóns-son hefur verið umboðsaðili
íþróttavöruframleið-
andans Jako á Íslandi
í hátt í 13 ár ásamt
eiginkonu sinni.
Jako er þýskt fyrir-
tæki sem hefur
verið starfrækt í 25 ár.
Jóhann segir viðskiptin hafa náð hámarki í
kringum 2007 eða skömmu fyrir hrun og að
í dag hafi viðskiptin náð sama flugi aftur og
jafnvel meira.
Jóhann segir starfið að mestu snúast um
að flytja inn íþróttavörur og sinna íþrótta-
félögunum. „Við sjáum líka um allar merking-
ar fyrir félögin. Svo erum við með annað vöru-
merki sem heitir PureLime sem við keyrum
samhliða. Við veitum verslunum og einstakl-
ingum þjónustu og komum raunar til móts
við alla og sinnum þeim af kostgæfni. Jako-
fyrirtækið er mjög gott í allri þjónustu og þeir
eiga yfir gríðarlega stórum lager að ráða. Þeir
afgreiða okkur með 98,5% af öllu því sem við
pöntum í hverri sendingu sem er mjög hátt
hlutfall. Jako er stórt fyrirtæki sem stækkar
ört,“ segir Jóhann.
- Eru það mörg félög hérlendis sem klæðast
fatnaði frá Jako?
„Já, þau eru orðin ansi mörg og fer fjölg-
andi, hægt og bítandi. Við leggjum okkur
fram í þjónustunni þannig að viðskiptavinur-
inn fái vöruna fljótt og greiðlega. Viðskiptin
eru farin að verða jöfn yfir árið, sveiflurnar eru
minni en áður. Í efstu deild í fótboltanum
Jako er stórt fyrirtæki sem stækkar ört
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
leika Breiðablik og Fylkir í Jako og Stjarnan
er nýbúin að gera samning við okkur um
félagsgalla fyrir allt félagið. Í öllum deildum
klæðast félög fatnaði frá Jako og má nefna
Víking í Ólafsvík sem hefur leikið í Jako í
mörg ár. Selfoss var að semja við okkur svo
að þetta eru félög víða um
land. Þetta starf snýst um
að standa sig og veita
góða þjónustu. Menn
verða hafa trú á því
sem þeir eru að gera
og þá held ég að hjól-
ið snúist með manni.
Starfið er skemmti-
legt og maður hittir
og kynnist fjöldan-
um öllum af fólki,“
sagði Jóhann.