Morgunblaðið - 06.01.2015, Side 1
Innlit Blaðamaður bílablaðs-
ins var þeirrar ánægju að-
njótandi að heimsækja
höfuðstöðvar Ford í Mic-
higan á dögunum. Rætt
var við hönnuði 2015 af-
mælisútgáfunnar af Ford
Mustang sem er um
margt sérstakur bíll »4
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2015
NÝTT Vefst fjarlægðin fyrir þér?
Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
M
eð sanni má segja að ánægju-
legt sé að sjá hversu fáir létust
í umferðarslysum á árinu 2014.
Alls létust fjórir sem er mun
lægri tala en við höfum séð hér á landi síð-
ustu árin. Þessi þróun hefur verið viðvar-
andi undanfarin ár, en þó hefur það verið
aðeins rokkandi upp og niður. Fimmtán lét-
ust í umferðinni árið 2013, níu árið 2012 og
tólf árið 2011.
Auðvitað væri best ef enginn hefði látið
lífið á íslenskum vegum en það er sann-
arlega markmiðið sem stefnt er að.
Heildarmyndin í samhengi
Ólafur Kr. Guðmundsson, fulltrúi Euro-
RAP (European Road Assessment Pro-
gramme), er einn þeirra sem gleðjast yfir
fækkun banaslysa í umferðinni. Hann hefur
verið ötull við að benda á það sem vel er
gert og það sem betur mætti fara í um-
ferðinni hér á landi. Hann bendir á að brýnt
sé að skoða heeildarmyndina í samhengi
og nota viðmiðanir sem aðrar þjóðir nota.
„Í þeim löndum sem við berum okkur sam-
an við er oftast horft á 5
ára tímabil í einu og við-
miðunin er látnir og al-
varlega slasaðir saman. Á
því fjögurra ára tímabili
sem rætt var um í frétt í
Morgunblaðinu fyrir
skemmstu er sú tala á
pari, eða 134 sem að
sjálfsögðu er ekki ásætt-
anlegt,“ segir Ólafur. Á
vef Samgöngustofu má
sjá að stefna stjórnvalda er að fjöldi látinna
í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa
verði ekki meiri en það sem lægst gerist
hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2022. Það eru
sjö ár til stefnu til að komast nær því
markmiði og einnig því markmiði að látn-
um og alvarlegra slösuðum í umferðinni
fækki að jafnaði um 5% á ári til ársins
2022. Grunngildi fyrir seinna markmiðið er
meðaltal áranna 2006-2010.
Nokkrar breytingar hafa orðið á slysatöl-
um en á síðasta ári urðu fleiri slys á börn-
um en á fyrri árum, eða úr 12,5 að með-
altali í 16 árið 2014. Nokkur aukning varð á
slysum á hjólandi og gangandi á árinu, sem
fer úr 129 í meðaltalinu í 157, sem er aukn-
ing um 22%. Ekki varð breyting á fjölda út-
lendinga sem lenda í umferðarslysum hér
á landi.
Bílaflotinn og vitund bílstjóra
Þegar rýnt er í tölur banaslysa má vissu-
lega gera ráð fyrir að eitt og annað hafi
áhrif á tölurnar. „Ástæðu fækkunar bana-
slysa má að mínu viti fyrst og fremst rekja
til öruggari bíla. Elstu bílunum fækkar og
þeir sem eru eftir eru öruggari, þó svo að
heildaraldur flotans hafi hækkað. Þeir bílar
eru þó öruggari en þeir elstu. Fækkun
slysa á ungum ökumönnum má einnig að
miklum hluta rekja til þess að eftir hrun
hafa þeir ekki komist yfir öflug ökutæki á
sama hátt og áður með því einu að skrifa
nafnið sitt á blað. Akstursbannið hefur
einnig virkað, en ökukennslunni í heild lítið
farið fram á þessu tímabili nema á Ak-
ureyri,“ segir Ólafur sem gjarnan vill sjá
reynslumeiri unga ökumenn í umferðinni
áður en prófskírteinið sé afhent.
Hvað með vegakerfið?
Eitt hlutverka fulltrúa EuroRAP (Euro-
pean Road Assessment Programme) er að
gera nákvæma úttekt á vegum landsins til
að sjá hvort samræmi sé á milli stefnu
stjórnvalda og raunverulegra framkvæmda
og hvernig megi draga úr tíðni banaslysa í
umferðinni með öruggari vegum. Sem
fulltrúi EuroRAP á Íslandi þekkir Ólafur
vegina og vegakerfið orðið býsna vel og er
ekki sérlega sáttur við þróunina síðustu
fjögur árin. „Á þessum 4 árum hefur lítið
sem ekkert breyst til batnaðar í vegakerf-
inu, nema síður sé. Reykjanesbrautin sem
nefnd er í fréttinni hefur frekað versnað en
hitt, þar sem slökkt hefur verið á stórum
hluta lýsingarinnar, sem reyndar er óþörf.
Eftir standa ljóslausir ólöglegir staurar og
viðhaldsleysi kemur niður á merkingum og
malbiki. Suðurlandsvegur stendur einnig
hálfkláraður og með stórum göllum. Öðru í
vegakerfinu hefur frekar hrakað en hitt frá
hruni vegna viðhaldsleysis eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum, þannig að ekki er
hægt að þakka vegakerfinu fyrir mikið í
þessu sambandi,“ segir hann. Þrátt fyrir
margt sem betur mætti fara er að sjálf-
sögðu eitt og annað sem hefur færst til
betri vegar.
„Ég mun kætast eitthvað við að sjá vír-
inn á Reykjanesbrautinni, þó hálfur sé, en
hann hefði átt að koma strax og þá báðu-
megin við þessa geil sem er algjörlega út í
hött.
Gleði mína tek ég þó fyrst þegar ljósa-
staurarnir eru farnir eða leystir á viðunandi
hátt. Við myndum aldrei sætta okkur við
svona hálfkák á Keflavíkurflugvelli, þar sem
„Núllsýnin“ er í fullu gildi og enginn Íslend-
ingur farist í flugslysi frá upphafi. Værum
við í rónni, ef einungis væri brautarlýsing
öðrumegin við flugbrautirnar og slökkt á
öðru hverju ljósi, þannig að flugmenn
þyrftu að giska á hvorumegin við ljósin þeir
ættu að lenda? Ég held ekki,“ segir Ólafur
Kr. Guðmundsson um þessi mikilvægu
mál.
Ánægja, árangur og trú
Þó að alltaf megi gera betur í öllu sem
þessu tengist er ekki síður nauðsynlegt að
staldra við og horfa á það sem gott er.
Þegar árangur næst ætti að vera öku-
mönnum, hverjum og einum, ofarlega í
huga að stefna að því að halda árangr-
inum. Steinþór Jónsson, formaður FÍB,
ítrekar að árangri á borð við fá banaslys
beri að fagna. „Nú hafa flestir sem tengjast
umferðarmálum trú á því að við getum
þetta og þá fyrst verður eitthvað gert í því.
Ef við höfum enga trú á því og lítum á
þetta sem sjálfsagðan fórnarkostnað þá
tökum við ekkert á málunum. Ef við leggj-
um upp með það verkefni að ná núlli í
banaslysum og höfum trú á að það sé
hægt þá fyrst vinnum við í því en þá þurfa
allir sem koma nálægt umferðaröryggis-
málum að vinna í því til að það takist,“ seg-
ir Steinþór. Látum þau orð vera lokaorð
þessarar greinar og höldum áfram að sýna
aðgát á vegum úti.
malin@mbl.is
Hvað býr að baki slysatölunum 2014
Heildarmynd umferðarslysa
Morgunblaðið/Malín Brand
Markmið stjórnvalda er að látnum og alvarlegra slösuðum í umferðinni fækki að jafnaði um
5% á ári fram til ársins 2022. Árið 2014 var góðu heilli betra en árin á undan í þeim efnum.
Ólafur Kr.
Guðmundsson
Morgunblaðið/Kristinn
Mikill árangur hefur náðst í fækkun bana-
slysa í umferðinni. 24 létust árið 2002.
BÍLAR