Morgunblaðið - 06.01.2015, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2015
2 BÍLAR
M
azda á Íslandi og Citroën á Íslandi hafa lækkað verð á öllum
nýjum bílum vegna fyrirhugaðra breytinga á virðisauka-
skatti sem taka gildi 1. janúar næstkomandi.
Við breytingarnar lækkar virðisaukaskatturinn úr 25,5% í
24% sem þýðir um 1,2% lækkun á verði nýrra bíla. Þess má geta að
hlunnindaskattur lækkar einnig sem þessu nemur.
Í tilkynningu frá Brimborg, umboðsfyrirtæki Mazda og Citroën hér á
landi, segir, að sem dæmi um verðlækkun nýrra Mazda-bíla megi nefna
Mazda CX-5 sem var á 5.590.000 kr. en kostar nú frá 5.490.000 kr.
Eins megi nefna Mazda2 sem var á verði frá 2.190.000 kr. en kostar nú
frá 2.150.000 kr. Mazda3 kostaði áður frá 3.190.000 kr. en kostar nú frá
3.140.000 kr.
Citroën á Íslandi hefur lækkað verð á bæði fólksbílum og sendibílum
sömuleiðis. Sem dæmi um Citroën-fólksbíla má nefna Citroën C4 Cac-
tus sem var á 2.830.000 kr. en kostar nú frá 2.690.000 kr. Eins má
nefna 7 manna Citroën Grand C4 Picasso sem var á verði frá 4.390.000
kr. en er nú á 4.330.000 kr. Citroën C3 var áður frá 2.250.000 kr. en
kostar nú frá 2.190.000 kr. Eins og sjá má er verðlækkunin í einhverjum
tilfellum meiri en 1,2%.
Sendbílalína Citroën lækkar einnig en sem dæmi má nefna að ódýr-
asti sendibíllinn á markaðnum, Citroën Nemo dísil, lækkar úr 2.590.000
kr. m.vsk í 2.550.000 kr. m.vsk. og Citroën Berlingo lækkar úr
2.990.000 kr. m.vsk í 2.950.000 kr. m.vsk.
agas@mbl.is
Skattalækkun skilar sér í lægra verði
Mazda og
Citroën
lækka bílverð
Morgunblaðið/
Meðal þeirra bíla sem munu lækka í verði vegna breytinga á virð-
isaukaskattkerfinu er hinn nýi og spennandi Citroën C4 Cactus.
Þ
að eru komin heil fimmtíu ár
síðan Carroll Shelby kynnti
til sögunnar tveggja sæta
orkubúnt sem við þekkjum í
dag sem Shelby Cobra. Bíllinn vakti
þegar feikna-athygli og það segir sína
sögu að enn í dag, hálfri öld síðar, er
hann lítt breyttur útlits – enda fá-
sinna að laga það sem ekki er bilað.
Sparileg hátíðarútgáfa
Þó að útlit Kóbrunnar sé eins í
meginatriðum þá hafa framleiðendur
séð til þess að 50 ára útgáfan hafi sín
sérkenni. Bíllinn, Cobra 427, verður
fáanlegur frá og með þriðjudeginum
13. janúar nk. og býðst með tveimur
mismunandi yfirbyggingum. Annars
vegar fæst hann með trefjagleri í
hinni klassísku litasamsetningu, blár
með hvítum sportröndum, hins vegar
á háglansandi áli með matt-silfruðum
röndum. Trefjaglersútgáfan kostar
um 15 milljónir íslenskra króna, en í
áli um 23 milljónir.
Þá verða bílarnir, í 50 tölusettum
eintökum, merktir með snyrtilegum
gullskjöldum til auðkenningar að um
hátíðareintök sé að ræða. Ef marka
má almennar vinsældir bílanna blasir
við að ásókn verður í þessi fimmtíu
eintök enda söfnunargildið ótvírætt,
burtséð frá því að um tímalausa
hönnun og töffaraskap er að ræða.
jonagnar@mbl.is
Goðsögn meðal kraftabíla í viðhafnarútgáfu
50 eintök á 50 ára
afmælinu
Sígilt yfirbragðið fær að halda sér innanstokks – sem betur fer.
Hin sígilda litasamsetning Shelby Cobra, blár með hvítum röndum.
Háglansandi hátíðarútgáfan með yfirbyggingu úr áli er óviðjafnanlega falleg. Viðbúið er að slegist verði um ein-
tökin 50 sem smíðuð verða og seld af þessum sögulega sportbíl í tilefni af 50 ára afmælinu sem ber upp í ár.
Kínverjar horfa gott til glóð-
arinnar á bandarískum bílamark-
aði. Til að mynda bílsmiðurinn
Guangzhou Auto (GAC) sem von-
ast til að nýr og kraftmikill borg-
arjepplingur, GS4, slái í gegn á
bílasýningunni í Detroit sem hefst
síðar í vikunni.
GAC fer til Detroit með metn-
aðarfull áform og mun þar auk
heimsfrumsýningar á GS4-bílnum
mæta með tvo hugmyndabíla.
Annars vegar ofursparneytinn
Witstar sem haldið er fram að
brenni aðeins um 1,8 bens-
ínlítrum á hundraðið. Hins vegar
GA6 GT sportbíll.
GAC heitir því í kynningu á GS4
fyrir sýninguna í bílaborginni
Detroit, fyrstu stórsýningu ársins
í Bandaríkjunum, að smájeppinn
verði einkar kraftmikill. Tæpast
verður hröðunin mikil því valkost-
irnir varðandi vélavalið eru ann-
aðhvort 1,3 eða 1,5 lítra vélar með
forþjöppu. Því verður þessi bíll lík-
ast til aldrei keppinautur Porsche
Macan um hylli neytenda.
Þótt GS4 sé tilbúinn fyrir raðs-
míði hefur GAC aðeins birt teikn-
aða mynd af jepplingnum. Þar
minna línur nokkuð á Land Rover
Evoque, rétt eins og eitthvað hafi
verið fengið að láni úr þeim bíl,
eða hann allavega verið hinum
kínversku hönnuðum innblástur.
Segja þeir að yfirbyggingin veki
tilfinningar sem létt högg-
myndaverk væri.
GAC segir að þátttakan í sýn-
ingunni í Detroit sé fyrsta skrefið í
að ryðja braut fyrir bíla sína í
Norður-Ameríku og Evrópu. Hing-
að til hefur útflutningur þess ein-
skorðast við nokkur lönd í Mið-
Austurlöndum og Asíu. Ætlunin
er að auka og breikka útrásina
enn frekar og fyrst um sinn verð-
ur GS4 þar í fylkingarbrjósti.
agas@mbl.is
Útspil frá Austurlöndum fjær inn á bílamarkaðinn
Kraftmikill Kínverji
GS4 er sagður vera kraftmikill borgarjepplingur og ætla Kínverjar að
sækja með honum inn á markað í Norður-Ameríku og Evrópu.