Morgunblaðið - 06.01.2015, Síða 4
Morgunblaðið/Malín Brand
Þ
að hlýtur að vera einstök
tilfinning að sjá eigin
hönnun verða að veru-
leika, allt frá hugmynd til
fullmótaðs og fágaðs sköpunar-
verks. Það var í það minnsta ljóst af
hönnunarteyminu að baki Ford
Mustang 2015 að tilfinningin var
góð og þótti öllum það mikill heiður
að fá að eiga þátt í hönnun þess-
arar fimmtíu ára afmælisútgáfu
sportfáksins. Sumir, sennilega að-
eins þeir hugrökkustu, líktu tilfinn-
ingunni við barnsburð.
Fjölbreyttur hópur að baki
Inni á gólfi hjá hönnunarteyminu
var annars vegar Ford Mustang
leirbíll í fullri stærð og hins vegar
bíll úr trefjagleri sem leit út eins og
fullbúinn Ford Mustang 2015, bæði
að utan og innan. Nema auðvitað
undir vélarhlífinni – þar var ekkert.
Ytri hönnun bílsins var alfarið í
höndum hins króatíska iðnhönn-
uðar Kemal Curic sem býr í Dear-
born og hefur starfað hjá Ford síð-
an 2004. Eftir því sem blaðamaður
kemst næst er þetta í fyrsta skipti
sem Evrópubúi hannar Ford Must-
ang. Curic virtist einkar hæglátur
og yfirvegaður maður og útskýrði
hann hönnunarferlið fyrir bíla-
blaðamönnunum, sem allir voru frá
Bandaríkjunum fyrir utan undirrit-
aða og einn til viðbótar. Það er
gaman að greina frá því að Curic er
aðeins 36 ára gamall og fæddist
því sama ár og þriðja kynslóð Ford
Mustang kom á markað árið 1979.
Framleiðandinn er óhræddur við
að prófa eitthvað ferskt og þess
vegna vann fólk úr ólíklegustu átt-
um að hönnun bílsins. Það er eitt af
því sem blaðamaður komst að í
þessari heimsókn í höfuðstöðv-
arnar.
Óknyttir og ímynd
Curic komst skemmtilega að
orði þegar hann lýsti hönnuninni á
Mustang í gegnum tíðina. „Hann
hefur alltaf haft á sér yfirbragð eins
konar óþokka. Hann er stæltur og
íþróttamannslegur í útliti og þetta
höfðum við að leiðarljósi við hönn-
un bílsins,“ segir Curic.
Hann lýsti því hvernig veggirnir
höfðu í gegnum hugmyndaferlið
verið þaktir teikningum og þær
hefðu skipt milljónum. Hönnuðirnir
byrjuðu á því að fækka teikning-
unum dálítið og völdu um fjögur
hundruð til að vinna með. Og svo
koll af kolli þar til hugmyndin var
komin á teikniborðið. Úr skissu í
teikningu í bíl. Leirbíl. „Það tók okk-
ur um tvö ár að móta leirbílinn í
fullri stærð. Við notum límband til
að móta hverja eina og einustu línu
bílsins. Allt er þetta gert með
höndunum, skref fyrir skref, þar til
hann er fullkominn. Eða ætti ég að
segja ófullkominn? Hann er það
auðvitað því mannshöndin mótaði
hann en ekki vélar,“ segir hann um
leirbílinn. Maður má ekki vera með
gassagang í kringum leirbílinn því
hann er enn mótanlegur eins og
aðrir leirmunir fyrir brennslu. Samt
sem áður máttum við snerta hann,
mjúkan og mótanlegan, og það
gerðum við full lotningar. „Hann er
með kraftalegar axlir og mjaðmir,“
segir Curic og bendir á afturhliðina.
„Þykkt þessara lína er ákvörðuð
með fjölda laga af límböndum og
svo er skafið, millimetra fyrir milli-
metra, og leirinn mótaður þar til
réttri þykkt línanna er náð.“ Hann
bendir á skúlptúrinn og bætir við
að í listaverkið hafi sannarlega ver-
ið settar tilfinningar og segist stolt-
ur af verkinu. Sá rauði, bíllinn fyrir
framan leirbílinn, er sem fyrr segir
út trefjagleri og var gerður nokkru
áður en Ford Mustang 2015 fór í
framleiðslu. „Við gerðum hann
mjög raunverulegan og það er
hægt að setjast inn í hann og láta
sér líða eins og í raunverulegum bíl.
Við notuðum þennan bíl til að gefa
okkur góða mynd af endanlegu út-
liti bílsins áður en hann færi í fram-
leiðslu. Við settum ýmis dekk undir
hann, felgur og prófuðum alla litina
á honum til að sjá allar mögulegar
útfærslur.“
Svo því sé til haga haldið þá eru
Malín Brand heimsækir höfuðstöðvar Ford í Dearborn í Michigan
Ford Mustang verður til
Af ýmsu er að taka fyrir áhugasama kaupendur hvað liti varðar á 2015 árgerðinni.Sérlitir fyrir afmælisútgáfuna.
Veggspjöld útlitshönnuða af mælaborði og innréttingu. Ál er nýjasta efn-
ið sem setur svip sinn á innréttinguna í þessum tímalausa sportbíl.
Leirbíllinn var tvö ár í
mótun en endanleg út-
gáfa Ford Mustang 2015
er byggð á þessum ná-
kvæma skúlptúr.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2015
4 BÍLAR