Morgunblaðið - 06.01.2015, Page 6
Volvo-bílar runnu út sem heitar lummur í Noregi í desember. Af þeim
seldist V70-bíllinn best.
H
inir sænsku Volvo-bílar
rokseldust í Noregi í
nýliðnum desem-
bermánuði. Sátu ein-
stök módel frá Volvo í fjórum af
fimm efstu sætum lista yfir
söluhæstu bílana í jólamán-
uðinum.
Volkswagen er með meiri hlut-
deild í norska bílamarkaðinum
2014 en nokkurt annað eða
15,1%. Í öðru sæti er Toyota
með 11,2% hlutdeild og Volvo í
þriðja með 7,7%, samkvæmt
upplýsingum frá samgöngu-
stofunni norsku (OFV).
Segja má hins vegar að Volvo
hafi unnið nokkurs konar stór-
slemmu í jólamánuðinum. Þegar
tveir vinnudagar voru eftir af
árinu var hlutdeild sænska bíl-
smiðsins í desember 15,6%. Að-
eins Volkswagen kom betur út
með 16,6% skerf.
Volvo-módelin sem þá rokseld-
ust voru V70, sem var söluhæst-
ur, V40, XC60 og V60. Aðeins
VW Golf var nýskráður í meiri
fjölda en einstakir bílar Volvo.
Nýjar reglur um kaupleigu á
bílum eru sagðar skýra mikla
sölu Volvo-bíla í Noregi í desem-
ber. Frá nýliðnum áramótum
gilda slíkir samningar til fjögurra
ára í stað þriggja áður.
agas@mbl.is
Frændur eru frændum bestir
Volvo rok-
selst í Noregi
Áfengismælirinn Breeze er inn-
byggður í lyklakippu.
Sé eitt af nýársheitum þínum að
djamma af meiri ábyrgð en hing-
að til þá gæti lítið tól að nafni
Breeze verið hjálplegt við það.
Persónulegir áfengismælar
eru sosum engin nýlunda en
Breeze er þó búinn allra nýjustu
tækni. Það er ekki einungis að
hann mæli áfengismagn í blóði,
heldur getur þessi 28 gramma
lyklakippa með blátannarbúnaði
og snjallsíma metið og upplýst
veigamikla þætti aðra. Til dæm-
is getur tækið sagt nokkurn veg-
inn til um tímann sem viðkom-
andi þarf til að runnið sé af
honum. Snjalltólið varðveitir
gögnin svo ökumenn geti séð
hversu hratt efnaskipti í lík-
amanum brjóta áfengið niður og
vinna á því.
Oft er það svo að bílstjóri get-
ur ekki beðið eftir því að renni
af honum og Breeze hefur svar-
ið við því. Tækið getur nefnilega
kallað með hjálp snjallsímatóls í
leigubíl eða kunningja af
tengslalista til að koma öku-
manni heim í stað þess að
freista þess að aka sjálfur. Dugi
það ekki getur Breeze beint
handhafa sínum á veitingahús í
nágrenninu til að snæða á eða
hótel til að sofa úr sér vímuna.
Samkvæmt upplýsingum frá
bandarísku þjóðvegaörygg-
isstofnuninni (NHTSA) urðu
10.076 dauðsföll í umferðinni
þar í landi árið 2013 vegna ölv-
unaraksturs. Var áfengisneysla
orsök 31% dauðsfalla á vegum
landsins það ár.
agas@mbl.is
Tjáir hvenær runnið er af þér
Ölvunarakstur er að sönnu umferðarböl hið mesta og tæknivæddi áfeng-
ismælirinn Breeze gæti þar verið öflugur og þakklátur liðsauki.
Lítill ef nokkur munur verður á Skoda Superb af þriðju kynslóðinni og Volkswagen Passat.
M
ikill vöxtur var í bílasölu hjá Skoda hinum
tékkneska á nýliðnu ári. Og bílsmiður sá
slær ekki slöku við því hann kemur á göt-
una með vorinu með nýja kynslóð af
Skoda Superb sem sagður er standa nær Volks-
wagen Passat að kostum og gæðum en nokkru sinni.
Eftir fall Berlínarmúrsins fyrir aldarfjórðungi hófu
Tékkar einkavæðingu ríkisfyrirtækja og fengu
Volkswagen til liðs við Skoda í desember 1990.
Stækkaði hlutur VW með árunum og var Skoda kom-
ið í fulla eign Þjóðverja árið 2000.
Öll smíðistækni Volkswagen hefur streymt til Tékk-
lands og smiðjan þar verið nútímavædd. Með þeim
árangri að Skoda-bílar eins og Citigo, Fabia og Oc-
tavia standa í svo til engu að baki Up, Polo og Golf frá
Volkswagen. Val þarna á milli gæti fyrst og fremst
mótast af persónulegum forgangsþáttum, hefðum
og vana. Danskir bílablaðamenn ganga svo langt að
segja að eitt vegi líka þungt á kostnað Skoda og það
sé snobb, sem taki fremur afstöðu með VW-bílum.
Þriðju kynslóð Skoda Suberb verður hleypt af
stokkum í Prag í mars, skömmu fyrir bílasýninguna í
Genf. Við smíði hans verða brúkaðir margir sömu
íhlutir og er að finna í VW Passat. Alþjóðleg bílablöð
búast við að hann verði flottari og fínni en nokkru
sinni. Meðal annars vegna þess að hann verður búinn
sama öryggis- og lúxusbúnaði og Passat.
Superb verður byggður upp af sama undirvagni og
Passatinn nýi. Hann er nýr og sagður léttari en sá
fyrri. Þótt undirvagninn verði eins verður hjólhaf Su-
perb ögn meira, sem mun skapa meira rými fyrir far-
þega í aftursæti bíls sem þegar þykir einstaklega
rúmgóður aftan í.
Hingað til hefur Superb einungis fengist sem fimm
dyra hlaðbakur eða fernra dyra stallbakur. Þar verður
breyting á með nýju kynslóðinni. Hlaðbakurinn hverf-
ur en í staðinn verður boðið upp á stallbak og lang-
bak.
agas@mbl.is
Skoda sver sig æ meir í VW-ættina
Flottari Skoda Superb
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2015
6 BÍLAR
Þ
að er ekki alltaf tekið út
með sældinni að sinna
eftirliti í umferðinni. Á
því fékk umferð-
arlögreglan í Kambrúarskíri í
Englandi (Cambridgeshire) að
kenna á nýliðnu ári, að sögn
blaðsins Cambridge Post.
Í frétt blaðsins kemur fram, að
á árinu 2014 hafi hraðamynda-
vélar í umferðinni gómað lög-
reglubíla 3.508 sinnum á of mik-
illi ferð, eða næstum tíu sinnum
á dag að jafnaði. Mældust þeir á
allt að 210 km/klst. hraða.
Þrátt fyrir allt er hér um fram-
för að ræða hjá lögregluliðinu
því árið 2013 braut umferð-
arlöggan 4.731 sinni lögin sem
henni ber að gæta þess að aðrir
virði.
Talsmaður lögreglunnar í sýsl-
unni segir lögregluliðið enga
hugmynd hafa um hvort lög-
reglubílarnir brotlegu hafi verið í
neyðarakstri vegna slysatilkynn-
inga því ekki væri nánar unnið úr
gögnum hraðamyndavélanna.
„Umferðarlögreglumenn okkar
eru sérþjálfaðir í hraðakstri til að
bregðast við neyðarkalli þar sem
viðbragðstími getur ráðið úrslit-
um um hvort fórnarlömb lifi og
til að bregðast við glæpastarf-
semi.
Í frásögn blaðsins af umferð-
arlagabrotum umferðarlögregl-
unnar segir, að árið 2013 hafi
lögreglumaður verið einn á ferð í
bíl sínum er hann mældist á 215
km/klst. ferð.
agas@mbl.is
Enginn skal yfir umferðarlög hafinn
Umferðarlöggan í
eigin gildrum
Breskir laganna verðir á ferð – fleygiferð.