Morgunblaðið - 06.01.2015, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2015
8 BÍLAR
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Ísnet Húsavík s. 5 200 555
Ísnet Akureyri s. 5 200 550
Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565
Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560
Hafðu samband og
kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
Vertu viðbúinn vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Á árinu 2015 fagnar Toyota á Ís-
landi því að 50 ár eru liðin frá því
fyrsti Toyota-bíllinn var seldur á
Íslandi. Á þessum tíma hefur
Toyota unnið sér sess hér á landi
sem áreiðanlegur og góður bíll
sem hentar vel fyrir íslenskar að-
stæður og vinsældirnar eftir því.
Fyrstu Toyoturnar sem komu til
landsins árið 1965 voru Crown,
Corona og Land Cruiser. Corolla
bættist síðan við vörulínuna í
kringum 1970. Vörulínan er óneit-
anlega breiðari nú til dags og eru
innan hennar smábílar, fjöl-
skyldubílar, pallbílar, atvinnubílar
og jeppar. Alls eru nú um 45.000
Toyotur í notkun á landinu.
Gott samband við við-
skiptavini
„Við lítum á okkur fyrst og
fremst sem þjónustufyrirtæki,“
segir Úlfar Steindórsson, for-
stjóri Toyota á Íslandi og eigandi
fyrirtækisins ásamt Kristjáni
Þorbergssyni fjármálastjóra.
„Svona fyrirtæki endist ekki lengi
nema það átti sig á þörfum við-
skiptavinanna og bjóði vöru sem
hentar aðstæðum hér á landi. Við
fylgjum því fordæmi sem Páll
Samúelsson setti með starfsfólki
sínu strax í upphafi og kapp-
kostum á hverjum degi að standa
okkur í því sem við erum að gera.
Við viljum fá fólk til okkar aftur
og aftur enda eru mörg dæmi um
fjölskyldur þar sem allir eru á
Toyota, jafnvel nokkrar kynslóðir.
Okkur þykir vænt um það traust
sem Toyota-eigendur hafa sýnt
okkur í gegnum tíðina og hlökk-
um til áframhaldandi samstarfs
við Toyota-eigendur,“ segir Úlfar
enn fremur í tilkynningu.
Tímamót á tímamót ofan
Auk 50 ára afmælisins fagnar
starfsfólk Toyota því nú að
Toyota hefur verið mest seldi bíll-
inn á Íslandi á hverju ári frá 1991
eða í 25 ár samfellt, nokkuð sem
teljast verður fáheyrður árangur.
Ýmislegt verður gert til hátíða-
brigða á árinu. Bílasýningar
verða með veglegra móti og í til-
efni afmælisins verður m.a. boðið
upp á sérstaka afmælisútgáfu
Land Cruiser 150 - „Íslandsjepp-
ans“ - en þar fylgir 33“ breyting
með í kaupunum án aukakostn-
aðar.
jonagnar@mbl.is
Toyota fagnar 50
ára afmæli á Íslandi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Aðalstöðvar Toyota á Íslandi eru við Kauptún í Garðabæ. Í 25 ár sam-
fleytt hefur Toyota verið mest seldi bíllinn hér á landi.
50 ár liðin frá því fyrsti Toyotabíllinn var seldur hér á landi
Starfshópur rafmagnsverkfræð-
ingadeildar Verkfræðingafélags
Íslands (RVFÍ) telur rafbíla væn-
legan kost fyrir Íslendinga til að
draga verulega úr losun gróð-
urhúsalofttegunda og nýta vist-
væna innlenda orkugjafa með til-
heyrandi bættum þjóðarhag.
Hefur hópurinn mótað tillögur
um rafbílavæðingu Íslands, sem
afhentar voru ráðherrum í rík-
isstjórninni milli hátíðanna.
Þar er m.a. lögð fram tillaga
að stefnumótun ríkisstjórn-
arinnar um rafbílavæðingu Ís-
lands sem felur meðal annars í
sér að vistvænar samgöngur
verði efldar. Þar er áréttuð sú
sérstaða Íslendinga að hafa að-
gengi að endurnýjanlegum vist-
vænum auðlindum sem gerir
okkur fært að vera í fararbroddi í
umhverfismálum með því að
nýta „grænt eldsneyti“ eins og
raforku fyrir bílaflota lands-
manna.
Minni losun
meginmarkmiðið
Í stefnuyfirlýsingunni segir að
stjórnvöld stefni að orkuskiptum
í samgöngum með því að skipta
alfarið úr hefðbundnu jarð-
efnaeldsneyti (bensín/dísil) yfir í
aðra orkugjafa fyrir bíla og önn-
ur ökutæki, orkugjafa sem eru
endurnýjanlegir og upprunnir á
Íslandi.
Meginmarkmið þessarar
stefnumótunar séu draga úr los-
un gróðurhúsalofttegunda og
nýta sem best endurnýjanlegar
og vistvænar orkulindir til að
knýja samgöngutæki til að upp-
fylla alþjóðlegar skuldbindingar
okkar á þessu sviði.
Mælt fyrir fyrir um að hlut-
deild endurnýjanlegrar orku í
samgöngum á landi verði 10%
árið 2025 sem samsvarar því að
25 þúsund rafbílar verði í notkun
í landinu. Kveðið er á um að sett
verði upp net hleðslustöðva um
land allt og sérstaklega í þéttbýli
með samstarfi einkaaðila, sveit-
arfélaga og orkufyrirtækja.
Til þess að ná ofangreindum
markmiðum fylgdi stefnumót-
unartillögunni aðgerðaáætlun
um rafbílavæðingu sem felur í
sér eftirfarandi opinberar íviln-
anir sem gilda a.m.k. til ársloka
2025 eða fyrr þegar 10% mark-
miðinu hefur verið náð í rafbíla-
væðingu. Þar segir að engin inn-
flutningsgjöld verði á rafbílum
þar sem enginn útblástur gróð-
urhúsalofttegunda berst frá
þeim. Ennfremur að enginn virð-
isaukaskattur verði greiddur af
rafbílum, enginn virðisauka-
skattur greiddur af rekstrarleigu
rafbíla og enginn virðisauka-
skattur verði greiddur af bíla-
leigu rafbíla.
Íslendingar gætu
orðið fyrstir
„Íslensk stjórnvöld hafa haft
breytingu í orkuskiptum í sam-
göngum að markmiði um nokk-
urt skeið en nú sést hilla undir
að þetta sé raunhæfur möguleiki
og hægt sé að ná þessu mark-
miði á mun skemmri tíma en áð-
ur var talið, m.a. sökum þess
hve tækninni fleygir hratt fram.
Staðreyndin er sú að rafbílar eru
að verða vænlegur valkostur í
samgöngum fyrir Íslendinga,
bæði tæknilega og rekstrarlega
séð og í framtíðinni verður þró-
unin enn frekar í þá átt. Bíllinn
veitir okkur mikið frelsi og á
hundrað árum hefur hann orðið
helsta samgöngutæki heimsins
og átt veigamikinn þátt í sókn til
aukinnar velmegunar hérlendis
sem erlendis. Á Íslandi hefur bíll-
inn gegnt lykilhlutverki við að
halda landinu í byggð og tengja
líf og starf landsmanna. Þegar
kemur að rafbílavæðingu heims-
ins er mikilvægast að viðkom-
andi land framleiði rafmagn á
vistvænan hátt eins og Ísland og
Noregur. Framtak og stefnumót-
un Noregs varðandi rafbíla-
notkun er til eftirbreytni. Rafbíll-
inn hentar íslenskum
orkubúskap einstaklega vel, sér-
staklega í ljósi frekari framþró-
unar rafbíla og rafhlaðna. Það
sama má segja um leiðir til að
knýja skip og önnur tæki sem
hafa til þessa notast við jarð-
efnaeldsneyti. Allt þetta gefur Ís-
landi mikla möguleika á að verða
fyrsta land í heimi sem nýtir
næstum eingöngu endurnýj-
anlega orkugjafa í samgöngum
og til húshitunar,“ segir meðal
annars í stefnumótuninni sem
verkfræðingafélagið hefur lagt
fyrir ríkisstjórnina.
Loks segir að margvíslegur ár-
angur hafi náðst í þessu efni.
Fleiri rafbílar og aðrar tegundir
farartækja nýta endurnýjanlega
orku, íblöndun í hefðbundið
bensín, innlend framleiðsla líf-
eldsneytis er sprotavettvangur
sem er í sókn og margt fleira
mætti nefna. En betur má ef
duga skal. Hvað vistvæna bíla
varðar hafa gilt undanþágur frá
lögum um virðisaukaskatt en
þær eru tímabundnar. Fram-
lengja þurfi þær, enda áhyggjur
uppi um að verð á rafbílum og
öðrum vistvænum samgöngu-
kostum hækki ella verulega.
Yrðu þær felldar niður væri fyr-
irsjáanlegt að sala rafbíla myndi
hreinlega stöðvast. Bregðast
þyrfti við þessu með því að
horfa lengra fram í tímann.
agas@mbl.is
Rafbílar taldir vænlegur kostur
Leggja fram tillögu
að stefnumótun
rafbílavæðingar
Morgunblaðið/Kristinn
Innstunga frekar en bensíndæla? Starfshópur rafmagnsverkfræðinga er
alltént á þeirri skoðun.