Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 1
LOKAVERKEFNIÐ AÐ RANNSAKA TAROTSPIL OG TEIKNA SLÍK SPIL ÞRIGGJA DISKA SAFNPLATA Í TILEFNI TÍMA- MÓTA STEINA HUGSANLEGA ÞARF ÞRJÁ FLOKKA TIL ÞESS AÐ MYNDA MEIRI- HLUTA Í BRETLANDI KOSNINGAR EFTIR RÚMA VIKU 14GRAFÍSK HÖNNUN 9 Jakobína Ketilsdóttir, bóndi í Kollavík í Þistilfirði, var á leið í fjár- húsin þegar myndin var tekin. Hún er með um 200 hausa á fóðrum, ær, lömb og hrúta. Fjárhúsin eru undir fjallinu Loka sem er í baksýn. Jakobína var að heiman þegar leitað var frétta úr Kollavík en bóndi hennar, Hreinn Geirsson, varð fyrir svörum. Hann sagði að sauðburður væri ekki hafinn og yfirleitt léti Jakobína ekki bera fyrr en um miðjan maí. Það kemur sér vel nú að vera ekki með lambfé því enn er vetur í Þistilfirði. Farfuglar eru aðeins farnir að sýna sig og er dálítið komið af gæsum og þröstum. „Það hefur verið leiðindaveður undanfarna daga, miklu frekar vetrarveður en sumarveður. Maður er ekki óvanur því að það komi svona hret,“ sagði Hreinn. Hann sagði að það væri alveg hætt að reyna að beita fé á veturna. Það er bara sett út til að viðra það. Býsna gott ástand er í sveitinni hvað varðar búsetu og það gleðilegasta er að margir ungir bændur eru að taka við, að sögn Hreins. „Það gerist ekki víða betra en hérna, það sem maður hefur frétt af.“ Einungis er stundaður sauðfjárbúskapur á þessum slóðum. Svæðið er riðulaust og má því selja þaðan fé á fæti. gudni@mbl.is Morgunblaðið/RAX „Miklu frekar vetrarveður en sumarveður“ Í Kollavík í Þistilfirði er allt fé enn á fóðrum og sauðburður ekki hafinn Björn Jóhann Björnsson Vilhjálmur A. Kjartansson Engin lausn virðist í sjónmáli í yfirstand- andi kjaraviðræðum fjölda verkalýðs- og stéttarfélaga við aðila vinnumarkaðarins og ríkið. Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, hefur lagt til að félögin komi saman að samningaborðinu og gerður verði heildarkjarasamningur. „Það hefur kom- ið til tals í þessari kjaradeilu að koma á heildarviðræðum og það er að mínu mati mjög skynsamleg lausn. Til þess að slíkt gangi upp þurfa allir að koma að borðinu, m.a. opinberi markaðurinn,“ segir Ólafía og bendir á að menn hafi rætt þessi mál sín á milli hjá ASÍ. Páll Halldórsson, fráfarandi formaður BHM, segist ekki vilja útiloka hugmynd- ir um heildarsamning en kröfur BHM lúti m.a. að því að menntun sé metin til launa og erfitt gæti verið að samtvinna kröfur aðila. „Háskólamenn hafa ekki gert sjálfstæðan kjarasamning síðan 2005 og allir samningar okkar síðan þá hafa verið byggðir á samningum á al- mennum markaði. Ég er ekki að hafna neinum hugmyndum, en við getum ekki gert samning sem tekur ekki á kröfu- gerð okkar um að menntun verði metin til launa.“ Þá bendir Páll á að heildar- samningur geti verið flókinn og tími sé naumur enda verkfallsaðgerðir þegar hafnar eða í startholunum hjá mörgum félögum. Verkfallssjóðir digrir Flest verkalýðsfélög eru vel í stakk bú-in í verkfallsaðgerðir því milljarðar króna eru í verkfallssjóðum þeirra félaga sem nú þegar eru í verkfallsaðgerðum eða hyggja á slíkar aðgerðir ef samn- ingar nást ekki. Verkfallsréttinum er ekki beitt af léttúð, að sögn Ólafíu en hún fer fyrir 30 þúsund félagsmönnum og komi til verkfalls þeirra dugar verkfalls- sjóður félagsins skammt þótt í honum séu um þrír milljarðar króna. „Við hugs- um þetta ekki með þeim hætti að allir fé- lagsmenn VR fari í eitt stórt verkfall heldur sníðum við okkur stakk eftir vexti hvað það varðar. Auk þess er eftir að taka ákvörðun um það hvernig greitt verður úr verkfallssjóði,“ segir Ólafía. Hjá BHM er staðan mismunandi, að sögn Páls, en staða verkfallssjóða er al- mennt góð. „Við reiknum með að í apr- ílmánuði verði greiddar út 100 milljónir króna til félagsmanna í verkfalli.“ Aðalfundur Eflingar samþykkti í gær- kvöldi boðun verkfalla og heimild til að opna aðgang að 800 milljónum króna úr félagssjóði, ef nauðsyn krefði. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir verkfallssjóð félagsins standa vel, með um 2,2 milljarða króna eigið fé. Milljarðar í verkfalls- sjóðum Hugmynd uppi um heildarkjarasamning Morgunblaðið/Árni Sæberg Verkfallsboðun Samþykkt var á aðal- fundi Eflingar í gær að boða verkfall. Verkfallsaðgerðir » Hátt í þrír milljarðar eru í verk- fallssjóði VR en hann dugir skammt fyrir 30 þúsund félagsmenn. » Hjá BHM eru 700 félagsmenn í 17 aðildarfélögum og er staða verk- fallssjóða almennt góð. » Efling-stéttarfélag hefur um 2,2 milljarða í verkfallssjóði og eins stendur sjóður Verkalýðsfélags Akraness vel. MVænir vinnudeilusjóðir »8 M I Ð V I K U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 1 5 Stofnað 1913 99. tölublað 103. árgangur FYRSTA PLATAN 40 ÁRA 22 VÍKKAÐU HRINGINN Fram undan er spennandi sumar með Morgunblaðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.