Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 2 FRÉTTIRInnlent Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðs- ins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjöldi fyrirtækja hefur sýnt því áhuga að flytja starfsemi sína í Hvarfahverfið í Kópavogi, sunnan Víðidalsins, en þar rísa nú yfir 24 þúsund fermetrar af nýju atvinnuhúsnæði og er frekari uppbygg- ing fyrirhuguð. Með framkvæmdunum er að lifna yfir hverfi sem var eyðilegt í kjölfar þess að upp- bygging stöðvaðist við hrunið. Sam- kvæmt heimildum blaðsins má áætla að framkvæmdirnar kosti minnst 5-7 millj- arða. Snorri Hjaltason byggingarmeistari segir marga hafa spurt um atvinnuhúsnæði sem félög hon- um tengd eru að byggja í Hvarfahverf- inu. Ólafur Páll Snorrason er fram- kvæmdastjóri verksins og Ólafur Gunnþór Höskuldsson, tengdasonur Snorra, er verkefnastjóri. Eitt félaga Snorra keypti Víkurhvarf 1, á horni Víkurhvarfs og Vatnsenda- hvarfs. Það hús var langt komið en þarfnaðist lagfæringa. Húsið er 7 þús- und fermetrar og byggt sem atvinnu- og skrifstofuhúsnæði. Það verður tilbúið í sumar. Þá keypti félag í eigu Snorra hús- ið Urðarhvarf 2 þegar það var hálfbyggt. Húsið er nú í fullri notkun en það er sjö hæða og með líkamsræktarstöðinni Ree- bok Fitness á fyrstu tveimur hæðunum. Á efri hæðum hafa verið innréttaðar sex íbúðir á hverri hæð sem gistiheimilið Blue Mountain Apartments leigir út. Húsið er 3.200 fermetrar. Ljúka framkvæmdum um áramót Félög Snorra eru jafnframt með tvær nýbyggingar í smíðum. Annars vegar Urðarhvarf 14 sem verður sex hæðir og 7 þúsund fermetrar. Þar var búið að steypa botnplötu og veggi á jarðhæð þegar framkvæmdirnar hófust á ný. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum um áramót. Hins vegar Víkurhvarf 7 en sú eign er ofar í hlíðinni og með miklu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, eins og sjá má á mynd hér fyrir ofan. Það hús er 3 þúsund fermetrar og var í eigu Landsbankans. „Við tókum við húsinu í skelfilegu ástandi. Það var búið að brjóta allar rúð- ur og skelfilegt fyrir hverfið og Kópavog að hafa það þannig. Við erum að taka það í gegn. Það verður vonandi fullbúið í júní eða júlí,“ segir Snorri sem hefur hug- myndir um að opna skrifstofuhótel í hús- inu með smærri einingum fyrir fyrirtæki og einyrkja. Að auki eiga félög Snorra byggingar- lóðina að Urðarhvarfi 10 og hafa þar heimild til að byggja allt að 6-7 þúsund fermetra hús. Samanlagt eru þessar fjór- ar eignir rúmlega 20 þúsund fermetrar að viðbættu fyrirhuguðu byggingar- magni á lóðinni, alls 26-27 þúsund fer- metrar. Þá bætist við Urðarhvarf 4, sem fjallað er um hér til hliðar, en það verður 3.500 fermetra bygging. Alls eru þetta um 30 þús. fermetrar. Til samanburðar er Smáralind um 63 þúsund fermetrar. Stemningin eins og 2005 og 2006 Snorri segir aðspurður að menn velti því fyrir sér hvort staðan sé orðin eins og á árunum 2005 eða 2006, þegar fram- kvæmdagleði var að stigmagnast og al- menn bjartsýni var í þjóðfélaginu. „Það er greinilega orðin meiri þensla. Það er til dæmis orðið erfiðara að fá ís- lenska, fagmenntaða iðnaðarmenn. Byggingarkostnaður fer stighækkandi eftir því sem kröfurnar eru að aukast, bæði í atvinnuhúsnæði og íbúðar- húsnæði. Þá mun launakostnaður hækka. Það er eðlilegt að laun hækki hjá iðnaðarmönnum eins og hjá öðrum stétt- um í þjóðfélaginu,“ segir Snorri. Morgunblaðið/Þórður Horft yfir borgina Svona var útsýnið af inndreginni fjórðu hæð í Víkurhvarfi 7 um hádegisbilið í gær. Neðar í hlíðinni er Urðarhvarf 14 í byggingu. Á stærð við hálfa Smáralind 30 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði í Hvarfahverfinu í Kópavogi á leið á markað Kostnaðurinn minnst 5-7 milljarðar Verktaki segir greinileg merki um þenslu Morgunblaðið/Þórður Horft niður brekkuna Hér má sjá Víkurhvarf 7 úr suðri. Húsið er langt komið. Snorri Hjaltason Áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins kynnir í dag næsta bílavinning og er hann einkar glæsilegur Mercedes- Benz. Þann 17. júlí næstkomandi eignast heppinn áskrifandi Morgunblaðsins fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B- Class með 7Gtronic sjálfskiptingu. Verðmæti vinningsins er 6.970.000 krónur. Ríkulegur staðalbúnaður er innifal- inn í grunngerð bílsins en í vinnings- bílnum er auk þess aukabúnaður að verðmæti 1.080.000 krónur. Þar má nefna bakkmyndavél, rafstillanleg framsæti með minni fyrir stillingar, leðurklætt aðgerðastýri, regnskynjara, 17 þumlunga álfelgur, heilsársdekk, 20,3 cm litaskjá, inniljósapakka, mjó- baksstuðning og fleira. Skemmtileg nýjung Haraldur Johannessen, ritstjóri og framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfu- félags Morgunblaðsins, segir áskrif- endahappdrættið sem hófst í ársbyrjun hafa verið einstaklega skemmtilega nýjung fyrir blaðið: „Það er ánægju- legt að geta þakkað tryggum áskrif- endum fyrir áhugann á blaðinu með því að efna til happdrættis þar sem við gefum bíla. Glæsilegir bílavinningarnir hafa vakið athygli og áhuga og að þessu sinni er bíllinn afar eftirsókn- arverður; fjórhjóladrifinn Mercedes- Benz upp á tæpar sjö milljónir króna. Það verður afskaplega spennandi að draga þennan bíl út nú í sumar.“ Áskrifendahappdrættið er sam- starfsverkefni Morgunblaðsins og Bíla- umboðsins Öskju ehf., umboðsaðila Mercedes-Benz á Íslandi. Allir áskrif- endur Morgunblaðsins, hvort sem þeir kaupa prentaða útgáfu blaðsins eða rafræna útgáfu, eru sjálfkrafa þátttak- endur í áskrifendahappdrættinu. Þetta er þriðji bíllinn sem áskrifendur Morg- unblaðsins eiga kost á að vinna á þessu ári og sá verðmætasti til þessa. gudni@mbl.is Áskrifandi fær Mercedes-Benz Nýr bíll í áskrif- endahappdrætti Morgunblaðsins Morgunblaðið/Eggert Vinningsbíllinn Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz, og Freyja Leópoldsdóttir, markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju ehf., við glæsilegan, fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class með 7Gtronic sjálfskiptingu. Bíllinn er hlaðinn aukabúnaði og er verðmæti vinningsins 6.970.000 krónur. Dregið verður 17. júlí næstkomandi. Magnús Kristjánsson, byggingarstjóri verktakafyrirtækisins Akralindar, seg- ir áformað að ljúka byggingu sex hæða skrifstofuturns að Urðarhvarfi 4 síð- sumars eða í byrjun hausts. Vinna við að steypa sjöttu hæðina er að hefjast en alls verður húsið yfir 3.500 fermetrar. Það er hærra en hæðafjöldinn segir til um því neðsta hæðin er með tæplega 5 metra lofthæð. Hæðin fyrir ofan er líka með aukinni lofthæð en hún er í götuhæð á myndinni hér fyrir ofan. Fyrstu tvær hæðirnar eru um þúsund fermetrar og var búið að steypa þær þegar Akralind keypti húsið í fyrra. Margir vilja í smærri rýmin Efri hæðirnar verða tæplega 400 fer- metrar og segir Magnús greinilegt að skapast hafi þörf fyrir skrifstofu- húsnæði í þessum stærðarflokki. „Það er mikill áhugi á húsinu og hef- ur það komið okkur mikið á óvart. Alls konar fólk með ýmiskonar rekstur hef- ur sýnt húsinu áhuga. Það er greinilega skortur á 170 til 250 fermetra rýmum undir skrifstofuhúsnæði. Það er mikið framboð af atvinnuhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu en hins vegar ekki í þessum stærðarflokki. Ég hélt satt að segja að það væri mikið meira til af skrifstofuhúsnæði. Það skiptir líka máli að húsin hér eru afar vel staðsett. Þau fremstu eru mjög sýnileg. Þá er hér nóg af bílastæðum og góðar samgöngur,“ segir Magnús, sem stendur á sextugu. Hann byrjaði í handlangi 15 ára og hefur starfað í byggingargeiranum síð- an, í 45 ár. Hann segir háan bygging- arkostnað valda því að svona verkefni myndi ekki bera sig ef það væri hafið frá grunni. „Húsin í hverfinu stóðu lengi auð og var dautt yfir öllu þangað til Mannvit flutti hingað í fyrrasumar. Ég held að búið sé að selja nánast allar byggingar sem hér voru hálfkláraðar.“ Morgunblaðið/Þórður Urðarhvarf 4 Innsetning glugga á fyrstu tveimur hæðunum er hafin og verður þeirri vinnu haldið áfram samhliða því sem sjötta hæðin verður steypt á næstu vikum. Margir vilja leigja í nýjum skrifstofuturni Verktaki segir skort á skrifstofuhúsnæði Snorri Hjaltason er með fleiri járn í eld- inum því félög honum tengd eru einnig að byggja alls 7.800 fermetra af at- vinnu- og skólahúsnæði að Norð- lingabraut 4 og 10 í Norðlingaholti. Þá er hann að láta hanna sjö þúsund fermetra stórhýsi að Borgarbraut 57 - 59 í Borgarnesi, sem setja mun mikinn svip á bæjarélagið. Frumdrög bygging- arinnar eru ekki tilbúin til birtingar. Tveir sex hæða turnar verða í bygg- ingunni sem verður nærri aðaltorgi bæjarins og þjóðveginum. Annar þeirra verður með íbúðum fyrir eldri borgara en hinn verður 75 herbergja hótel með ráðstefnusal og veitingastað. Á jarð- hæð verður 700-800 fermetra skrif- stofu- og atvinnuhúsnæði. Kísilverið eykur eftirspurnina „Það er skortur á íbúðarhúsnæði í Borgarnesi. Við fundum strax fyrir því þegar það fréttist af fyrirhugaðri upp- byggingu kísilvers á Grundartanga. Við erum að byggja 16 íbúða fjölbýlishús á Arnarkletti með leiguíbúðum. Síðast- liðinn hálfan mánuð höfum við leigt út fjórar íbúðir í húsinu og þrír til fjórir hafa skrifað sig á biðlista eftir íbúðum fyrir eldri borgara. Áhuginn á íbúðum hér er miklu meiri en ég hélt. Hér vant- ar litlar íbúðir. Það er merkilegt að sjá hversu mikil samstaða er meðal stjórn- málamanna um að rífa þetta af stað. Ég hef verið í pólitík en hef aldrei kynnst öðru eins,“ segir Snorri. Þurfa fleiri hótelherbergi Spurður hvort hann telji markað fyrir svo stórt hótel í Borgarnesi segist Snorri sannfærður um að fjölgun ferðamanna kalli á fjölgun hótelher- bergja í bæjarfélaginu. „Fyrir tveimur árum var ég þeirrar skoðunar að of geyst væri farið í upp- byggingu hótela á Íslandi. Nú hef ég skipt um skoðun,“ segir Snorri og bendir máli sínu til stuðnings á að Ís- land sé orðið miklu betur þekkt meðal erlendra ferðamanna en áður var. Undirbýr byggingu 75 herbergja ráðstefnuhótels í Borgarnesi SÉR MIKIL TÆKIFÆRI Í FERÐAÞJÓNUSTU Ljósmynd/Sigursteinn Sigurðsson arkitekt/Birt með leyfi Lóðin Borgarbraut 57-59 Húsið í neðra hægra horninu með gula þakinu hefur verið rifið. Verkfræðistofan Mannvit flutti í júlí síðastliðnum alla starfsemi sína í Urðarhvarf 6 í Kópavogi. Fram kom í frétt Morgunblaðsins að um væri að ræða átta hæða skrif- stofuhús og að Mannvit leigði allar hæðirnar, að frátalinni þeirri efstu og hálfri næstefstu hæðinni. Verktakarnir sem rætt er við hér til hliðar segja flutninginn hafa reynst hverfinu mikil lyftistöng. Mannvit færði líf í rólegt hverfið FLUTNINGAR Í FYRRASUMAR Breiðsíða í dag Í dag er Morgunblaðið í nokkru stærra broti en lesendur þess eiga að venjast. Blaðið er nú í breið- síðubroti, líkt og mörg erlend stór- blöð. Morgunblaðið kom reyndar út í stóru broti um nokkurra mánaða skeið frá því síðla árs 1919 og fram á árið 1920. Þessi breyting á broti blaðsins mun einungis standa yfir í einn dag og á morgun geta lesendur vænst þess að fá Morgunblaðið sitt í venjulegri stærð. Tekin voru 5.111 blóðsýni vegna gruns um ölvun við akstur eða akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna 2013 og 2014. Áætlaður kostnaður við töku sýnanna og greiningu var 271,5 milljónir kr. Þetta kom fram í svari innanrík- isráðherra við fyrirspurn Birgittu Jóns- dóttur alþingismanns um blóðprufur vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Árið 2013 voru tekin 1.074 blóðsýni vegna gruns um akstur undir áhrifum á- vana- og fíkniefna og 1.410 sýni vegna gruns um ölvunarakstur. Árið 2014 voru tekin 1.233 blóðsýni vegna gruns um akst- ur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en 1.394 vegna gruns um ölvunarakstur. Í brotum vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna var neysla staðfest með blóðprufu í 84% mála 2013 og 88% mála árið 2014. Áætlaður kostn- aður af greiningu blóðsýna vegna ölvunar við akstur var 24,4 milljónir árin 2013 og 2014 og 182 milljónir vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Kostnaður við töku blóðsýna fyrir þessi ár er 65,2 milljónir. gudni@mbl.is 5.111 sýni vegna vímu Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rekstur samstæðu Reykjavíkurborg- ar var jákvæður um 11 milljarða 2014. Gert hafði verið ráð fyrir jákvæðri nið- urstöðu um ríflega 8,1 milljarð. Betri niðurstaða er rakin til lækkandi vaxta- gjalda OR vegna lækkunar skulda og hækkandi eignaverðs hjá Félagsbústöð- um, samkvæmt tilkynningu frá borg- inni. Rekstrarniðurstaða A-hluta var nei- kvæð um 2,8 milljarða. Launakostnaður jókst um tæpan milljarð á árinu, gjald- færsla vegna lífeyrisskuldbindinga fór rúmlega milljarð fram úr áætlun og tekjur af sölu á byggingarétti voru rúm- um milljarði lægri en áætlað var. Skuldsetningarhlutfall borgarinnar er 104% en lögboðið viðmið eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga er 150%. Eig- infjárhlutfall samstæðunnar styrktist úr 40% í 43% á milli ára. Skuldsetning- arhlutfall A-hluta samkvæmt sveitar- stjórnarlögum var 77% og óbreytt milli ára. „Ársreikningur ársins 2014 sýnir mik- ið tap á A-hluta Reykjavíkurborgar eða sem nemur 2,8 milljörðum króna, þrátt fyrir að rekstrartekjur A-hluta vaxi um 2,3 milljarða króna milli 2013 og 2014. Tap aðalsjóðs er 7,1 milljarður króna og er bætt upp með jákvæðri afkomu Eignasjóðs og Bílastæðasjóðs þannig að niðurstaðan verður 2,8 milljarðar króna í tap,“ sagði í bókun Sjálfstæðisflokks- ins. Halldór Halldórsson, oddviti sjálf- stæðismanna í Reykjavík, sagði í ræðu í borgarstjórn í gær að tapið á aðalsjóði Reykjavíkurborgar jafnaðist á við heild- artekjur Mosfellsbæjar. Í bókun Sjálfstæðisflokks var einnig bent á að þegar rekstur A-hluta væri skoðaður frá árinu 2002 hefði verið tap- rekstur í tíð vinstri meirihlutans 2002- 06 en jákvæð afkoma á árunum 2007-10 þegar Sjálfstæðisflokkur var í meiri- hluta. Taprekstur hefði verið frá því vinstri meirihluti tók við 2010 að frá- töldu árinu 2013 þrátt fyrir að útsvar væri í hæstu hæðum. Rekstur samstæðu Reykjavíkur í plús Morgunblaðið/Styrmir Kári Borgarstjórn Ársreikningur A- og B- hluta 2014 var lagður fram í gær. Tap á rekstri A-hluta hjá vinstri stjórnum VÍKKAÐU HRINGINN Morgunblaðinu er það mikilvægt að sýna lesendum hlutina í víðara samhengi. Fram undan er spennandi sumar fyrir áskrifendur Morgunblaðsins vítt og breitt um landið. Í dag sýnum við hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir einn af áskrifendum okkar. Allir áskrifendur Morgunblaðsins eru með í áskriftarleiknum. Fylgstu með þegar við drögum út vinningshafann þann 17. júlí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.