Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 9
DAGLEGT LÍF 9 Í dag kl 16.30 verður í húsi Kvenréttindafélags Ís- lands, Túngötu 14 í Reykjavík, kynning á bókinni Kúgun kvenna, sem og á þýðanda hennar Sigurði Jón- assyni frá Eyj- ólfsstöðum í Vatnsdal. Bókin „On the Subjection of Women“ eft- ir enska heim- spekinginn John Stuart Mill kom fyrst út árið 1869 og er grundvallarrit í vestrænni kvennabaráttu. Rit- ið fékk heitið „Kúg- un kvenna“ á ís- lensku. Hið íslenska kvenfélag gekkst fyrir út- gáfu ritsins árið 1900. Löngu seinna var ritið, að frumkvæði nemenda og kennara í kvennafélagsfræði við Háskóla Íslands, gefið út á ný árin 1997 og 2003 hjá Hinu íslenska bók- menntafélagi. Innan tveggja ára má búast við þriðju útgáfu hjá bókmenntafélaginu. Þýðandinn, Sigurður Jónasson, fædd- ist árið 1863 en lést á 24. aldursári, drukknaði af skipi er hann var á leið í framhaldsnám í Kaupmannahöfn. Hann var öllum harmdauði. Þýðingarafrek hins unga manns er enn í minnum haft. Fjölskyldan á Eyjólfsstöðum var ekki stór. Að Sigurði látnum voru þar, auk foreldra hans, hjónanna Jónasar Guð- mundssonar Ólafssonar á Kirkjubæ í Norður- árdal í Austur- Húnavatnssýslu og Steinunnar Steins- dóttur frá Eyjólfs- stöðum, dóttir þeirra Margrét Oddný og tveir uppeldissynir, Magnús Jónsson, síðar bókbindari, og Sigurður Nor- dal, síðar prófess- or. Sigurður Nor- dal, sem fæddist á Eyjólfsstöðum, var bróðursonur Jónasar Guðmundssonar og ólst upp hjá þeim Steinunni. Á kynningunni munu m.a nokkrir afkomenda Mar- grétar Oddnýjar Jónasdóttur lesa upp úr bókinni. Lauslega verður sagt frá dagbókum Jónasar Guðmunds- sonar bónda á Eyjólfsstöðum. Lesið úr Kaupmannahafnarbréfi Sig- urðar til vinar heima í Vatnsdal, og ótal margt fleira verður á dagskránni. Fjármögnun til að kosta gerð og frá- gang minnismerkis um Sigurð Jónasson og Kúgun kvenna fer nú fram. Þeir sem vilja og treysta sér til að leggjast á sveif, geta lagt inn á bankareikning: 515-14-121857 Kt. 051036-3449 Heiti reiknings: „Kúgun kvenna“ Kynning á merkri bók og þýðandanum Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöð- um í Vatnsdal og „Kúgun kvenna“ Teiknaði sín eigin Tarotspil Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ egar ég var lítil stelpa átti mamma Tarotspil sem ég mátti helst ekki fikta í og fyr- ir vikið urðu þau mjög spenn- andi, ég tengdi þau síðar við dulúð,“ segir Rakel Erna Skarphéðins- dóttir þegar hún er spurð að því hvaðan áhugi hennar á Tarotspilum komi, en Rakel er ein þeirra sem útskrifast í vor frá Listaháskóla Íslands í grafískri hönn- un. Lokaverkefni hennar var rannsókn á Tarotspilum og að teikna slík íslensk spil. „Ég lét duga að teikna trompspilin eða „Major Arcana“, sem eru 22, enda samanstóðu Tarotspilin upphaflega af þeim. Seinna bættust við lágspilin, bikar- arnir, sverðin, stafirnir og peningarnir, en með þeim eru 78 spil í Tarotstokknum. Kannski teikna ég seinna lágspilin, hver veit.“ Rakel segist hafa fengið hugmynd- ina að því að teikna íslensk Tarotspil strax á fyrsta árinu í náminu. „Það var sennilega eftir að ég horfði á kvikmyndina Holy Mountain eftir Jodo- rowsky, en þar birtast Tarotspilin hans. Þetta kraumaði alltaf undir niðri hjá mér en braust ekki fram fyrr en ég þurfti að velja mér útskriftarverkefni .“ Í BA-ritgerð sinni skrifaði Rakel um myndmálið í Tarot, hverju það miðlar og hversu veigamikið það er. Hún kannaði líka baksögu Tarotspilanna og undirliggj- andi kerfi þeirra. „Goddur var leiðbeinandinn minn og það var virkilega gaman að sökkva sér of- an í þetta. Ég grúskaði í mörgum mis- munandi stokkum og þessar myndir eru mjög gildishlaðnar. Ég fór í dulspekilegar áttir, því mystíkin á bak við þetta allt saman heillaði mig. Dulspekingarnir sem tóku þetta upp á sínum tíma, þeir tengdu Tarotkerfið við hermetískt kabbala, þeir notuðu það sem kortlagningu á andlegri heimsmynd mannsins með tré lífsins, þar sem hvert og eitt spil á sér sinn stað. Trompspilin standa fyrir ákveðnar erki- týpur, hvert og eitt spil segir mikið. Mér fannst skemmtileg þessi tenging Tarot- spila við undirmeðvitundina og við hin Jung-ísku fræði. Þessar erkitýpur standa fyrir allskonar hluti sem hafa áhrif á okk- ur þó við vitum ekki af því. En allt er þetta leið í átt að uppljómun, ekki ósvipað og alkemistarnir fást við. Það er mjög gaman að horfa á Tarot úr þeirri átt,“ segir Rakel og bætir við að Tarotspil og fræðin á bak við þau séu forn, þau hafi borist til Evrópu á 14. öld, en uppruni þeirra er ýmist rakinn til Arabíuskagans, Indlands eða Kína. Strögglaði lengi við flónið Eins og þeir vita sem séð hafa Tarot- spil, þá eru þau gjarnan mjög litrík og fí- gúratíf, yfirleitt er persóna á hverju ein- asta trompspili. En hvers vegna valdi Rakel að hafa spilin svarthvít með fín- legum línum? „Ég vildi losa mig við fígúrurnar, ég nota frekar hendur eða hauskúpur. Eina spilið hjá mér sem er með mynd af mann- eskju er hengdi maðurinn. Ég ákvað að fara öðruvísi leið í myndmálinu, ég vildi búa til minn eigin stíl sem væri ólíkur því sem fólk hefði séð áður. Ég strípaði því myndmálið eins mikið niður og ég gat, án þess þó að missa tenginguna við merk- ingu hvers spils og allt það sem þau eiga að miðla. Það var mjög ögrandi verkefni. Ég lagði upp með línur og geometrísk form,“ segir Rakel og bætir við að það hafi gengið misvel að finna út hvernig spilin ættu að vera. „Ég var til dæmis mjög lengi að finna út úr því hvernig ég vildi hafa flónið, The Fool. Ég var búin að ströggla rosalega mikið og lengi þeg- ar ég komst að nið- urstöðu. Þetta er upp- hafsspilið og Tarot táknar á vissan hátt leið flónsins í átt að uppljómun, flónsspilið er oft með mynd af manni sem er klæddur eins og hirðfífl. En ég datt að lokum niður á þessa úrlausn, sem er mynd af tröppum, sem tákna leiðina sem flónið fetar upp í átt að hinu heilaga fjalli, í gegnum ákveðnar lífshindranir.“ Tengir saman rúnirnar og Tarotspilin Þegar spilin eru skoðuð vekur at- hygli að það spil sem heitir The Devil, eða djöfullinn, skartar hauskúpu af geithafri og um hornin vefjast snákar. „Á mörgum Tarotspilum er mynd af geit með tvo þræla á spili djöfulsins, og þeir eru yfirleitt hlekkjaðir en þó eru hlekkirnir lausir. Þeir geta farið ef þeir vilja. Ég læt snákana standa fyrir þessa þræla, og þó hornin séu vafin um þá, þá eiga þeir útgönguleið,“ segir Rakel og bætir við að það hafi farið gríðarlegur tími í að teikna spilin og margar skissur fengið að fjúka. „Þetta eru mjög fíngerðar teikn- ingar og ef ég var ekki ánægð þá varð ég að henda. Ég teiknaði spilin ekki í tölvu, heldur á gamla mátann með höndunum.“ Nýbreytnin í teikningum Rakelar frá hefðbundnum Tarotspilum byggist ekki aðeins á hinu geometríska formi, heldur einnig á því að hún hefur teiknað eina rún á hvert spil, úr dulspekilegu rúnakerfi sem kallast Uthark. „Ég hef lengi haft áhuga á rúnum, þær eru mörg hundruð ára gamlar og heillandi. Fyrst voru þær notaðar sem tákn, bæði fyrir galdra og fleira, en seinna þróuðust þær yfir í ritmál. Hver og ein rún merkir eitthvað, segir okkur eitthvað, rétt eins og Tarotspilin gera. Mín tilgáta er sú að það geti verið tenging á milli rúna og Tarotspila. Og þess vegna hef ég eina rún á hverju spili,“ segir hún og sýnir blaðamanni spilið sem heitir The Death, eða dauðinn, en þar er rúnin Feh á enni hauskúpunnar. „Þetta er fallegt spil, því það táknar ekki bókstaflegan dauða, heldur stendur það fyrir nýtt upphaf, vatnaskil í lífinu.“ Þrátt fyrir mikinn áhuga á Tarot- spilum og að hafa lagst í þetta mikla verk- efni að hanna og teikna nýja útgáfu af þeim, þá hefur Rakel aldrei látið leggja fyrir sig Tarotspá. „Ég þyrfti að komast í tæri við manneskju sem er flink í því að leggja spilin og lesa úr þeim,“ segir Rakel sem hefur fengið jákvæð viðbrögð við Tarot- spilunum sínum. „Sumir eru vissulega skeptískir, af því þeir þekkja þetta ekki og finnst valið mitt svolítið skrýtið, en þeir hinir sömu eru fljótir að verða spenntir þegar ég set þá inn í málið. Það kom mér á óvart hvað mín kynslóð er almennt farin að fjarlægj- ast myndmál, hún er ekki læs á allskonar gömul tákn. Ég held að myndlæsi hafi verið miklu meira fyrr á öldum. Við mannfólkið erum kannski ekki eins tengd myndmáli og við vorum. Og þetta er ein- mitt ein af ástæðum þess að ég fór út í þetta, ég vil efla tengingu fólks við tákn og myndir.“ Salvador Dalí teiknaði Tarot Rakel segist hafa hitt unga konu á opnun útskriftarsýningarinnar sem sagði henni að hún hefði líka teiknað Tarotspil í sínu útskriftarverkefni fyrir margt löngu. „Það var frábært, hún var mjög spennt og ég hefði sannarlega viljað vita af henni, ég hefði viljað skoða hennar spil í rannsóknarferlinu. Það er ekkert nýtt að listamenn teikni sín eigin spil, til dæm- is teiknaði Salvador Dalí sín eigin Tarot- spil.“ 65 nemendur sýna verk sín á útskriftarsýningu Listaháskólans sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. „Þetta hefur verið ótrú- lega skemmtilegt ferli, að setja þetta upp með sýningar- stjórunum, þeim Guð- finnu Mjöll Magnúsdóttur og Hugin Þór Arasyni, Og við sem erum með eitthvað sem hægt er að selja sem varn- ing, fáum að hafa vörurnar okkar til sölu í anddyrinu í Listasafninu, þar fást spilastokkarnir mínir og stærri eftirprentanir af einstökum spilamyndum.“ Ætlaði reyndar aldrei í grafík Lífið blasir við Rakel, hún fer til Gautaborgar í haust og vonast til að kom- ast þar í starfsnám í grafískri hönnun. „Slík reynsla á stofu er í raun skóli og þá kemst maður líka að því hvernig þetta virkar og hvað maður vill. Ég ætlaði reyndar aldrei í grafík, ég ætlaði alltaf í ljósmyndun og ætlaði utan í ljósmynda- nám. En ég datt inn á kynningu um graf- íska hönnun í Háskólanum og komst að því að það gæti hentað mér mjög vel, enda var ég alltaf teiknandi hér áður. Ég sá fyrir mér að geta sameinað þennan áhuga minn á teikningu og ljósmyndun í grafísku hönnuninni. Svo ég skellti mér í þetta frábæra nám og sé ekki eftir því, þessi þrjú ár hafa flogið.“ www.rakelerna.com Hún vildi búa til sinn eigin stíl sem væri ólíkur því sem fólk hafði áður séð í Tarotspilum. Hún ákvað því að losa sig við fígúrurnar og lagði upp með línur og geometrísk form. Hún handteiknaði hvert einasta spil og var lengi að því. Rakel Erna er nýútskrifuð úr grafískri hönnun við Listaháskólann. Morgunblaðið/Golli Rakel með spilin sín Hér glittir í húðflúr á úlnlið með rúnaletri, hvað annað! Dauðinn, flónið og djöf- ullinn með snákana. Páfi Elskendurnir Styrkurinn Keisarinn Hengdi maðurinn MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 Í dag kl 12.15 verður bókakynn- ing á Reykjavíkurtorgi Borg- arbókasafnsins í Tryggvagötu. Kynntar verða tvær bækur af ólíkum toga: Lífríki Íslands, vist- kerfi lands og sjávar eftir Snorra Baldursson og Ofbeldi á heimili – Með augum barna eftir Guð- rúnu Kristinsdóttur. Bók Snorra er fyrsta heild- stæða yfirlitið um lífríki lands- ins frá fjallsbrún niður í haf- djúpið og þar með einstætt fræðslu- og fræðirit. Hún bygg- ist á hundruðum vandaðra rann- sókna íslenskra og erlendra vís- indamanna á lífríki, líffræðilegri fjölbreytni og vistkerfum ein- stakra svæða. Náttúra Íslands skipar stóran sess í hugum og hjörtum landsmanna. Hún er mærð í skáldskap, lofsungin við landkynningu, menn sækja til hennar hugarró og innblástur og nýta hana sér til viðurværis. En hvað býr að baki því sem fyrir augu ber? Hvers konar líf þrífst við ólík skilyrði um allt land? Og hvað gerist ef áföll dynja yfir líf- ríkið hér á norðurhjara? Í bókinni er leit- ast við að svara ofangreindum spurn- ingum með því að rýna í vistkerfi lands og sjávar. Viðhorf kynja ekki eins Í bókinni Ofbeldi á heimili – Með aug- um barna kemur í ljós að börn hafa margt að segja um heimilisofbeldi. Þau hafa skoðanir á því og vilja fræðast um það. Þau sem hafa eigin reynslu af því gefa öðrum börnum í sömu stöðu ýmsar ráð- leggingar um hjálpleg viðbrögð við þess- ari hættu. Guðrún hlaut viðurkenningu Hagþenkis 2014 fyrir bók sína sem er framlag til rannsókna á heimilisofbeldi, vanrækslu og misbeitingu gagnvart börn- um og mæðrum og er jafnframt innlegg í baráttuna gegn þessu alvarlega þjóð- félagsmeini. Í rannsókninni var leitað til barnanna sjálfra til að athuga hvaða hug- myndir þau hefðu um heimilisofbeldi. Niðurstöðurnar leiddu m.a í ljós að við- horf drengja og stúlkna eru nokkuð ólík og að vitneskja þeirra er oft meiri en for- eldrar halda. Ókeypis aðgangur. Endilega... ...kynnið ykkur tvær ólíkar bækur Lífríki Íslands Merkileg og fögur bók. Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað Hágæða postulín - með innblæstri frá náttúrunni Verið velkomin í verslun RV og sjáið úrval af glæsilegum hágæða borðbúnaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.