Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 16
HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sig- urðsson segir að íslenska landsliðið þurfi að vinna alla vega annan leikinn gegn Serbíu í undankeppni EM. Auk þess þurfi Ísland að vinna tvo síðustu leikina í júní til þess að komast í lokakeppnina í Póllandi í janúar. Ísland og Serbía mætast í Laug- ardalshöll í kvöld klukkan 19:30. „Við þurfum tvö stig. Það er klárt mál. Við verðum að vinna annan leikinn gegn Serbíu og komum alltaf til með að þurfa að vinna báða leikina í júní. Ef við verðum með jafn mörg stig og Svartfjallaland þá megum við ekki tapa fyrir þeim aftur á heimavelli út af vægi innbyrðis viður- eigna. Það er því ekki nóg fyrir okkur að vinna báða leikina gegn Serbíu. Við viljum byrja á því að vinna heimaleikinn og verja okkar vígi,“ sagði Guðjón þegar Morg- unblaðið tók hann tali á landsliðsæfingu í Höllinni. Undankeppnir sem þessar eru erfiðar og þar er lítið svigrúm til þess að misstíga sig ef liðið á að komast á stórmót. Það hef- ur íslenska liðinu þó tekist mjög oft frá aldamótum. „Já, og núna eru til dæmis teknir inn í hópinn ungir og sprækir strák- ar. Slíkt er gaman að sjá en það er gríð- arlega erfitt fyrir þá að komast í takt við landsliðið því við náum bara þremur æf- ingum og þá er komið að mikilvægum leik. Við tökum því bara eins og þetta er og Serbarnir sitja við sama borð,“ sagði Guð- jón og ítrekaði að hann væri ekki að kvarta undan undirbúningnum heldur ein- ungis að benda á stöðuna eins og hún er. Serbía með sterkar skyttur Guðjón hefur um árabil verið í fremstu röð í Evrópu með sínum félagsliðum. Hann þekkir því vel alla helstu leikmenn Serbíu og leik serbneska liðsins. „Af- skaplega skyttusterkt lið. Ef við göngum vel út í skytturnar þá eiga þeir frábæran línumann, Rastko Stojkovic. Hann er 110- 120 kg bolti sem erfitt er að stoppa. Serbía er gott lið sem er yfirleitt skemmtilegt að spila við. Leikmenn frá Balkanlöndunum eru yfirleitt mjög teknískir í boltagrein- unum, hvort sem það er blak, körfubolti, fótbolti eða handbolti. Með boltann eru þeir klárir og klókir en án boltans eru þeir ekki alltaf bestir. Það er gaman að eiga við þá,“ benti Guðjón á. Spurður um hvort hann sjái áberandi sóknarfæri gegn serb- neska liðinu þá sagði Guðjón svo vera en ekkert sem væri nýtt af nálinni. „Við þurfum að fara í klisjubókina til að svara þessu. Maður þarf að vera mjög skipulagður í vörninni á móti þessu liði. Við þurfum að koma þeim út í aðstæður sem þeir vilja síst vera í. Ef við ætlum að hleypa þeim inn á miðjuna þar sem línu- maðurinn getur „blokkað“ okkur þá stoppum við þá ekki. Þannig geta þeir skorað 20 mörk á okkur í einum hálfleik. Við þurfum að búa til gildrur fyrir þá og koma einnig í veg fyrir þeirra skiptingar í vörn og sókn með því að keyra á þá. Ef þeir ná að stilla upp sinni sterkustu vörn þá eru þeir með tvo turna í miðri vörninni. Við þurfum því að koma hreyfingu á vörn- ina og nota breidd vallarins. Þetta verður smá skák sem við þurfum að tefla vel,“ út- skýrði Guðjón sem hefur í mörg horn að líta á lokakafla keppnistímabilsins því lið hans, Barcelona, á möguleika á því að vinna fjórfalt. Liðið er taplaust í deildinni og á spænska meistaratitilinn vísan en er auk þess komið í fjögurra liða úrslit bæði í Meistaradeild Evrópu og spænska kon- ungsbikarnum. Fyrr í vetur vann liðið spænska deildabikarinn. Skák gegn Serbum sem þarf að tefla vel Guðjón Valur, fyrirliði íslenska landsliðsins, segir skemmtilegt að spila gegn Serbum Ísland þarf að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum í undankeppni EM Íslenska vörnin þarf að leggja gildrur fyrir Serbana Morgunblaðið/Golli Lykilleikur Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson ræða málin á æfingu. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 16 ÍÞRÓTTIR urelding þá næstu 25:22 og HK þá þriðju með sama mun, 22:25. Fjórða hrinan var í járnum en HK komst undir lok hennar í 22:24 og allt útlit fyrir að Kópavogsliðið væri að tryggja sér sigurinn. En seiglan skilaði Aftureldingu síðustu fjórum stig- unum og liðið vann 26:24, þannig að leika þurfti oddahrinu. Alveg nákvæmlega eins og úrslitaleikir eiga að vera. HK var miklu sterkara í oddinum og vann 5:15. Það sást strax í upphitun að HK- konur ætluðu að hafa gaman af því að spila blak. Þær mættu brosandi til leiks og héldu brosinu jafnvel þegar illa gekk hjá liðinu. Þessi ánægja og gleði skilaði þeim fjölmörgum stigum í gær. Hjá HK átti fyrirliðinn Laufey Björk Sigmundsdóttir fínan leik sem og hin leikreynda Natalia Ravva og þær El- ísabet Einarsdóttir og Steinunn Helga Björgólfsdóttir frelsingi voru flottar. Edda Björk Ásgeirsdóttir kom tvívegis inná til að gefa upp og ekki að ástæðu- lausu, flottar uppgjafir hjá henni sem og Guðnýju Rut Guðnadóttur. Hjá Aftureldingu stóð Rósborg Hall- dórsdóttir sig vel í uppspilinu og Auður Anna Jónsdóttir átti fínan leik. Morgunblaðið/Eva Björk Meistarar Nýkrýndir Íslandsmeistarar HK fagna með stæl í sturtuklefanum í Mosfellsbænum í gærkvöld eftir sigurinn á Aftureldingu. HK stöðvaði Aftureldingu Í MOSFELLSBÆ Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is HK úr Kópavogi varð í gærkvöldi Ís- landsmeistari kvenna í blaki þegar liðið lagði Aftureldingu 2:3 í æsispennandi úrslitaleik, en fyrir leikinn hafði hvort lið sigrað tvívegis í úrslitarimmunni. Það má segja að með þessu hafi HK stöðvað sigurgöngu Aftureldingar sem varð bæði bikar- og deildameistari fyrr í vet- ur. Fyrstu fjórar hrinurnar í gærkvöldi voru allar æsispennandi, þó svo liðin hafi ekki boðið upp á besta blak sem sést hef- ur hér á landi, enda mikið undir og leik- menn vildu frekar leika af öryggi en dirfsku og reyndu að gera eins lítið af mistökum og kostur var. Fyrir vikið komu oft langar skorpur þar sem boltinn gekk varla helminga á milli án þess að liðin næðu sínum bestu sóknum. Varnir liðanna voru góðar, sérstaklega lágvörn- in hjá HK og eins sáust fallegar háv- arnir beggja vegna netsins. HK vann fyrstu hrinuna 23:25 en Aft- Heimir Guð-jónsson mun stýra FH til Íslands- meistaratitils karla í knattspyrnu í ár, ef marka má hina árlegu spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna deildarinnar sem var birt í gær. ÍBV og Leiknir R. falla hinsvegar. FH fékk 416 stig, Stjarnan 373, KR 348, Breiðablik 331, Valur 257, Víkingur 242, Fylkir 228, Keflavík 189, Fjölnir 116, ÍA 108, ÍBV 107 og Leiknir 93 stig. Ítarlega er fjallað um spána á mbl.is/sport. Þórður RafnGissurarson, úr Golfklúbbi Reykjavík- ur, missti flugið á Opna Madaef-mótinu í Marokkó. Þórður hafnaði í 10. sæti á mótinu en hann var í forystu eftir fyrsta hring. Þórður lék fyrsta hringinn frábærlega á 68 höggum en lék hina tvo á 75 og 77 sem gerir fjög- ur högg yfir pari vallarins. Mótið var hluti af Pro Golf mótaröðinni, er einnig þekkt undir nafninu EPD mótaröðin, en frá árinu 2001 hefur mótaröðin verið í flokki mótaraða sem teljast til þriðju deildar í Evrópu. Enski framherjinn Gary Martin hefurskrifað undir nýjan samning við bikarmeistara KR í knattspyrnu. Samn- ingurinn gildir til ársins 2017 en Martin kom til liðsins frá Skagamönnum árið 2013. Framherjinn hefur átt góðu gengi að fagna í Vesturbænum og á síðustu leiktíð varð hann markakóngur Pepsi- deildarinnar. Barcelona bauð upp á flugeldasýninguá Camp Nou í gærkvöld þegar liðið burstaði Getafe, 6:0, og náði þar með fimm stiga forskoti á toppi deildarinnar. Lionel Messi og Luis Suárez skoruðu tvö mörk hvor og þeir Neymar og Xavi skor- uðu sitt markið hvor. Fólk sport@mbl.is SPÁNN Kristján Jónsson kris@mbl.is Íþróttamaður ársins, Jón Arnór Stef- ánsson, er ásamt samherjum sínum í Uni- caja Málaga í mikilli baráttu um efsta sæt- ið í spænsku deildakeppninni í körfubolta og þar af leiðandi heimaleikjaréttinn í úr- slitakeppninni. Málaga og stórveldið Real Madrid eru jöfn á toppi deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir og mætast annað kvöld í Madrid. Yfirgnæfandi líkur eru á að annað hvort þessara liða nái toppsætinu en annað stórveldi, Barcelona, er í þriðja sæti. Allt þyrfti að ganga á afturfótunum hjá toppliðunum og Barca að vinna rest til að Barcelona geti komist upp í fyrsta eða annað því liðið er átta stigum á eftir. Hjálagt eru leikir Málaga og Real í síð- ustu fimm umferðunum. Bæði eiga þau sitt hvorn leikinn eftir sem teljast verulega erfiðir fyrir utan viðureignina annað kvöld. Málaga fær Barcelona í heimsókn og Real mætir Laboral á útivelli en liðið rétt missti af 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, Euroleague. Rétt er þó að geta þess varðandi aðra leiki að deildin er býsna jöfn og nánast allir útileikir erfiðir fyrir bestu liðin. Meðal annars þess vegna er hún talin vera sú sterkasta í Evrópu. Málaga vann heimaleikinn gegn Real 99:92 og Real þarf því að vinna með meira en sjö stiga mun til þess að standa betur að vígi í innbyrðis viðureignum liðanna ef þau skyldu verða jöfn. Jón gæti mætt Zaragoza Úrslitakeppnin í spænsku ACB- deildinni er með svipuðu sniði og hér heima. Að 34 umferðum loknum í deilda- keppninni komast átta efstu liðin í úr- slitakeppnina. Lið nr. 1 leikur gegn liði nr. 8, lið nr. 2 gegn liði nr. 7, 3 gegn 6 og 4. sætið gegn 5. sætinu. Baráttan um að komast í úrslitakeppnina er mjög jöfn eins og oft áður á Spáni. Því er nokkuð erfitt að spá um hverjir verða andstæðingar Jóns Arnórs. Hann gæti þess vegna mætt CAI Zaragoza sem hann yfirgaf síðasta sumar eftir þrjú keppnistímabil. Zaragoza er sem stendur í 9. sæti. Önnur lið sem gætu lent á móti Málaga eru Tenerife, Gran Canaria, Joventut og Laboral sem er nú með Hauk Helga Páls- son til skoðunar. Málaga og Laboral voru einmitt saman í riðli í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hafa því oft mæst í vetur. Ef lið Málaga verður ekki fyrir skakka- föllum þá ætti liðið alla vega að komast í gegnum 8 liða úrslitin. Slíkum spádómum er auðvelt að kasta fram í ljósi þess að lið- ið hefur einungis tapað fimm deilda- leikjum en unnið tuttugu og fjóra. Ef liðið kemst í undanúrslit þá er erfiðara að spá um gang mála enda gæti andstæðing- urinn þá þess vegna orðið Barcelona. Katalónarnir geta nú einbeitt sér að deild- inni eftir að hafa dottið út í 8 liða úrslitum Euroleague á flautukörfu gegn Olympia- cos. Real Madrid er hins vegar í undan- úrslitum í Euroleague. Takist Málaga að komast alla leið í úr- slitarimmuna yrði það í annað skiptið á ferlinum sem Jón leikur um meistaratitil utan Íslands. Árið 2008 komst Lotto- matica Roma í úrslitarimmuna um ítalska meistaratitilinn með Jón innanborðs en tapaði þar fyrir Siena. Hér heima varð Jón tvívegis Íslandsmeistari með KR, árin 2000 og 2009. Toppliðin eigast við í Madrid Ljósmynd/Unicaja B. Fotopress Toppslagur Jón Arnór Stefánsson í leik með Unicaja Málaga í vetur.. Jón Arnór Stefánsson og samherjar hans í liði Unicaja Málaga berjast við Real Madrid um efsta sætið á Spáni og þar með heimaleikjarétt í úrslitakeppninni um spænska meistaratitilinn Spænska ACB-deildin » Toppliðin eiga eftir að mæta eft- irfarandi liðum: » Málaga: Real Madrid (Ú), CAI Zaragoza (H), Rio Natura Monbus (Ú), Barcelona (H), Dominion Bilbao Basket (Ú) » Real Madrid: Unicaja Málaga (H), Rio Natura Monbus (Ú), MoraBanc Andorra (H), Laboral Kutza Bas- konia (Ú), Bruixa d’Or Manresa (H) leit á klukkuna og sá að það voru sjö sek- úndur eftir. Þá tók ég bara á sprett og lét boltann vaða á markið með von um að skora,“ sagði Kristján Örn í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn um þessar æsi- legu lokasekúndur. „Boltinn hafði við- komu í Magga markverði Víkings en slapp inn,“ sagði Kristján Örn glaður í bragði og mátti svo sannarlega vera það. Kristján Örn var markahæsti leikmaður Fjölnis með sjö mörk. Fyrrgreindur Ingvar Krist- inn var vel áverði í markinu og varði 17 skot. „Við ætlum bara að fara í Víkina til þess að vinna,“ sagði Kristján Örn ákveðinn og greinilegt er að eftir tvo sigurleiki í röð þá kemur hið unga lið Fjölnis, sem er nær eingöngu skipað leikmönnum úr öðrum og þriðja aldursflokki, fullt sjálfstrausts í Vík- ina annað kvöld. Fjölnismenn byrjuðu leikinn illa og voru 4:1 undir eftir um fimm mínútna leik. Menn hristu af sér stressið og komust smátt og smátt inn í leikinn. Vörn Fjölnis var öflug og liðið fékk nokkur hraðaupp- hlaup og var lengst af tveimur mörkum yf- ir í fyrri hálfleik. Eftir tvö leikhlé með skömmu millibili undir lok fyrri hálfleiks vöknuðu Víkingar. Þeir skoruðu fjögur síð- ustu mörk hálfleiksins og voru marki yfir að honum loknum, 13:12. Fjölnir náði mest fjögurra marka for- skoti, 19:15, í síðari hálfleik en Víkingar gáfu ekkert eftir og jöfnuðu metin, 22:22. Framlengingin var æsileg en markalítil og endaði með verðskulduðum sigri Fjölnis. Leit bara á klukkuna Kristján Örn Kristjánsson, 17 ára, tryggði Fjölni oddaleik í framlengingu Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Gríðarlegur fögnuður braust úr meðal leikmanna og stuðningsmanna Fjölnis eftir ævintýralegan sigur á Víkingum. Í GRAFARVOGI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Ævintýri Fjölnis úr Grafarvogi í umspils- keppninni við Víking um sæti í Olís-deild karla í handknattleik heldur áfram. Í gær- kvöldi tryggði liðið sér oddaleik um keppn- isréttinn með því að vinna nauman sigur, 24:23, í Dalhúsum í rafmögnuðum spennu- leik sem varð að framlengja til þess að knýja fram úrslitin. Kristján Örn Krist- jánsson, 17 ára, skoraði sigurmarkið á síð- ustu sekúndu. Hann hafði þá hlaupið með boltann upp völlinn eftir að félagi hans Ingvar Kristinn Guðmundsson hafði varið skot frá Arnari Theodórssyni. „Ég bara England Hull City – Liverpool ........................................ 1:0 Staða efstu liða: Chelsea 33 23 8 2 65:26 77 Manch.City 34 20 7 7 70:36 67 Arsenal 33 20 7 6 63:32 67 Manch.Utd 34 19 8 7 59:34 65 Liverpool 34 17 7 10 47:37 58 Tottenham 34 17 7 10 55:49 58 B-deild: Rotherham – Reading...................................... 1:0 Kári Árnason lék allan tímann fyrir Rother- ham. Staða neðstu liða: Brighton 45 10 16 19 44:54 46 Rotherham 45 11 15 19 46:67 45 Millwall 45 9 14 22 40:72 41 Wigan 45 9 12 24 39:61 39 Blackpool 45 4 13 28 36:91 25 Ítalía Udinese – Inter Mílanó..................................... 1:2 B-deild: Pescara – Pro Vercelli..................................... 1:0 Birkir Bjarnason lék allan tímann fyrir Pesc- ara. Spánn Athletic Bilbao – Real Sociedad .....................1:1 Alfreð Finnbogason var ónotaður varamaður hjá Real Sociedad. Barcelona – Getafe............................................ 6:0 Levante – Córdoba............................................ 1:0 Þýskaland Bikarkeppnin, undanúrslit: Bayern München – Dortmund......................... 1:1 Dortmund hafði betur í vítakeppni, 2:0. 1. deild karla Umspil, úrslit, fjórði leikur: Fjölnir – Víkingur ........................... 24:23 e.framl. Staðan er 2:2 og liðin mætast í oddaleik í Vík- inni annað kvöld kl. 19.30. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, 1. umferð, 4. leikur: Brooklyn – Atlanta ........................... (frl.) 120.115 Staðan er 2:2. Austurdeild, 1. umferð, 5. leikur: Chicago – Milwaukee.................................... 88:94 Staðan er 3:2 fyrir Chicago. Vesturdeild, 1. umferð, 4. leikur: Portland – Memphis ..................................... 99:92 Staðan er 3:1 fyrir Memphis. HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM karla: Laugardalshöll: Ísland – Serbía .................. 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrslit karla, fjórði leikur: Sauðárkrókur: Tindastóll – KR (1:2)........... 19.15 Í KVÖLD! Mikið var dansað, sungið og trall- að íþróttahúsinu að Varmá í Mos- fellsbæ á sunnudaginn og jafnvel víð- ar um bæinn eftir sigur Aftureldingar á ÍR í oddaleik í undanúrslitum úr- valsdeildar karla í handknattleik. Gleðin var rík yfir að Afturelding- arliðið var komið í úrslit Íslandsmóts- ins í annað sinn í sögu félagsins og í fyrsta sinn á öldinni. Ekki var jafnt glatt á hjalla í her- búðum Aftureldingarliðsins um líkt leyti fyrir tveimur árum. Þá urðu Aft- ureldingarmenn að bíta í það eldsúra epli að falla úr úrvalsdeildinni. Bjart- sýni hafði ríkt við upphaf keppn- istímabilsins um haustið en von- brigðin voru þeim mun meiri um vorið. Margir leikir töpuðust naum- lega. Segja má að saga Aftureldingar- liðsins þennan vetur hafi um margt minnt á gengi Stjörnuliðsins í úrvals- deildinni á nýliðnum vetri. Efnilegur hópur handknattleiksmanna var fyrir hendi sem skorti herslumuninn í mörgum leikjum. Eftir að Mosfellingar höfðu sleikt sár sín var blásið til sóknar við dag- renningu. Leikmenn liðsins, sem flestir voru uppaldir hjá félaginu, samþykktu að taka slaginn áfram í stað þess að róa á önnur ný mið við sólarupprás. Blásið var til sóknar árið eftir og 1. deild unnin með trompi og úrvals- deildin tekin með áhlaupi í vetur. Eng- inn þeirra leikmanna sem veltu fyrir sér að söðla um fyrir tveimur árum sér eftir í dag að hafa ákveðið að láta ekki freistast. Tíu af 14 leikmönnum liðsins sem vann ÍR í oddaleiknum eru uppaldir hjá félaginu. Gott væri ef leikmenn Stjörn- unnar, sem nú sleikja sár sín, tækju sama pól í hæðina og kollegar þeirra í Aftureldingu gerðu þegar þeir vökn- uðu af martröð sinni við dagrenningu fyrir tveimur árum. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is Jón Sigurðsson tryggði Íslandi 96:95 sigur á Skotum í 120. og síðasta landsleik sínum í C-riðli Evrópumóts karla í körfu- bolta 29. apríl 1984. Jón fæddist 1951 og ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum þar sem hann lærði margt um körfuboltaíþróttina. Jón varð Íslands- meistari bæði með Ármanni og KR en það þótti stórfrétt í íslensku íþróttalífi þegar hann gekk í KR. Er hann af mörgum talinn snjallasti körfuboltamaður sinnar kyn- slóðar á Íslandi og var tekinn inn í lands- liðið aðeins 17 ára gamall. Jón hafnaði í 4. sæti í kjöri Íþróttamanns ársins 1978. ÍÞRÓTTA- MAÐUR- DAGSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.