Morgunblaðið - 29.04.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.04.2015, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 ✝ Egill Pálssonfæddist að Álft- ártungu á Mýrum 30. september 1945. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 19. apríl 2015. For- eldrar hans voru Gróa Guðmunds- dóttir húsfreyja, f. 4. júní 1917, og Páll Þorsteinsson bóndi, f. 3. febrúar 1913. Systkini Egils eru Anna Þóra, f. 16. júní 1939, d. 31. ágúst 2011, Svanur, f. 29. apríl 1942, Erna, f. 22. október 1943, Birgir, f. 4. nóvember 1947, Steinunn, f. 26. febrúar 1950 og Ásgerður, f. 29. júní 1953. Eftirlifandi eiginkona Egils er Jónína Bára Ósk- Egill Örn, f. 24. september 1980. Barnsmóðir Egils er Hildur Ax- elsdóttir, f. 29. nóvember 1984. Sonur þeirra er Manúel Hrafn, f. 3. júlí 2014. Ungur byrjaði Egill að vinna hjá Ræktunarsambandi Mýra- manna á jarðýtu við rækt- unarstörf. Árið 1966 hóf hann störf við Vegagerðina í Borg- arnesi og starfaði þar óslitið í nær fimmtíu ár. Egill var farsæll í starfi en varð að hætta vinnu vegna veikinda. Egill bjó í for- eldrahúsum sín æskuár þar til þau hjónin festu kaup á íbúð við Þorsteinsgötu 5 í Borgarnesi. Ár- ið 2003 keyptu þau landspildu úr landi Arnarstapa á Mýrum og byggðu þar hús sem þau nefndu Lyngás. Þar bjó Egill til dán- ardags. Útförin fer fram frá Borg- arneskirkju í dag, 29. apríl 2015, kl. 14. arsdóttir, f. 7. maí 1949. Þau eignuðust fimm syni: Pétur Þór, f. 20. september 1966. Bergsteinn Óskar, f. 17. ágúst 1969, hans kona er Klara Berglind Gunnarsdóttir, f. 21. ágúst 1969. Þeirra börn eru Sóley Bára, f. 1. júní 1992, Haf- dís Mist, f. 12. maí 1995, og Pétur Vilberg, f. 26. október 2001. Sigmar Páll, f. 25. júní 1973. Barnsmóðir Sigmars er Halldóra Harpa Ómarsdóttir, f. 2. nóvember 1978. Sonur þeirra er Gabríel Örvar, f. 13. september 1998. Vilberg Örvar, f. 18. mars 1978, d. 2. apríl 1986. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hann Egill bróðir minn er dáinn. Þessi illvígi sjúkdómur kom og knúði dyra í Lyngási. Egill var alltaf í góðu skapi, þótt hann hafi gengið í gegn- um miklar raunir virtist hann alltaf geta staðið þær af sér. Nú þegar ég sit hér og skrifa og horfi á mynd af honum finnst mér hann segja: „Þetta verður allt í lagi.“ Það var alltaf notalegt að vera ná- lægt honum og oft sátum við Siggi hjá honum við eldhúsborðið á Lyng- ási og margt bar á góma. Við vorum þá að rifja upp góðu tímana í upp- vexti okkar í Álftártungu. Síðan tók Siggi við og þá var komið að bílun- um. Þeir vissu um allt sem viðkom bílum, aðallega þá gömlum bílum sem löngu eru orðnir ónýtir. Ég tala nú ekki um gömlu bílnúmerin sem þeir mundu og rifjuðu upp hver átti hvaða númer. Egill var mikill dýravinur, sam- anber trippin hans og eru þau algjör dekurdýr. Einnig var hann mikill skógræktarmaður. Furan hans, sem hann bjargaði í vegkanti, er nú vaxin á annan metra á hæð. Hann var í stjórn Þroskahjálpar á Vesturlandi um árabil og var ötull í uppbyggingu og viðhaldi á dvalar- og skammtíma- vistun í Holti fyrir ofan Borgarnes, auk gróðursetningar trjáa ásamt Ragnari Olgeirssyni. Aldrei skorti hann tíma þegar málefni fatlaðra bar á góma. Hann var mjög laginn og útsjónarsamur í viðgerðum á bílum og traktorum. Hann vann í Vegagerðinni hér í Borgarnesi í næstum 50 ár við ýms- ar vegabætur og á veturna í snjó- ruðningi víðsvegar á svæði Vega- gerðarinnar. Það er allt frá Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og suður í Hvalfjörð. Þekkti hann þessa staði eins og handarbakið á sér. Hann á mörg handtök við vega- bætur á landinu, svo sem að reka niður vegstikur frá Reykjavík til Siglufjarðar og til baka! Eignaðist hann marga kunningja á ferðum sínum fyrir Vegagerðina um landið. Það er tómlegt að koma í Lyngás þegar sæti húsbóndans er autt. Elsku mamma, Jónína, strák- arnir mínir fjórir og þeirra fjöl- skyldur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Steinunn og Sigurður. Egill Pálsson Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Teg. 171 Mjúkar og þægilegar dömu-mokkasínur úr leðri og skinnfóðraðar. Litir: hvítt, beige, grátt, rautt og svart. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685. Teg. 83 Mjúkar og þægilegar dömu- mokkasínur úr leðri, fóðraðar. Litir: svart og rautt. Stærðir: 36-42 Verð: 14.685. . Teg. 55 Mjúkar og þægilegar dömu- mokkasínur úr leðri, skinnfóðraðar. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. Sendum um allt land www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Tilbúin karton og rammar Lokað 5.-8. maí 20% afsláttur í maí Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Matador framleitt af Continental Slóvakíu. 295/80 R 22.5 kr. 79.000 Tilboð Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði Dalvegi 16b, 201 Kópavogi. S. 544-4333. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Húsviðhald smidur.com Sími 897 9933 Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373. brbygg@simnet.is Kerrur Humbaur gæða álkerrur Bjóðum þessar léttu og sterku álkerrur frá Humbaur Þýskalandi á kr. 149.900. Gerð1380. Stærð 201 x 102 cm, burður 750 kg brúttó og 628 kg nettó. Skoðið heimasíðu okkar. www.Topplausnir.is Upplýsingar í síma 5177718. Smiðjuvegur 40, gul gata. Kópavogi. GJAFAHALDARAR Á TILBOÐI : stakar stærðir skál C-G kr. 4.500,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Foldahraun 42, 218-3486, þingl. eig. Freydís Fannbergsdóttir, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur og Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf., miðvikudaginn 6. maí 2015 kl. 10.00. Vestmannabraut 57, 218-5024, þingl. eig. Ebba Guðlaug Gunnars- dóttir, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 6. maí 2015 kl. 11.00. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 28. apríl 2015. Tilboð/útboð Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015. Aðveitustöð – Aðalskipulagsbreyting Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 20. mars 2015 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015 samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meginmarkmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu með færslu tengivirkis í aðveitustöð og lagningu jarðstrengja, auk þess að færa aðveitustöðina fjær íbúðarbyggð. Markmiðið er einnig að breytingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma. Aðalskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér aðalskipulagsbreytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður eða á netfangið bygg@grundarfjordur.is í síðasta lagi 11. júní 2015. Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði. Auglýsing um nýtt deiliskipulag vestan Kvernár - Aðveitustöð. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 20.mars 2015 að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillaga er auglýst samhliða breytingu á aðal- skipulagi 2003-2015. Skipulagssvæðið er áætlað fyrir eina iðnaðarlóð og aðkomu að henni. Á lóðinni sem er 4.900m² að stærð, er heimilt að reisa allt að 620m² byggingu. Hámarkshæð húss er 8.25m frá gólfi jarðhæðar. Skipulagssvæðið sem er rúmir 7.6ha er suðaustan þéttbýlisins og liggur á milli ánna Gilóss og Kvernár. Sjá nánar í deiliskipulagstillögu og greinagerð. Deiliskipulagstillagan og greinagerðin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér deiliskipulagstillöguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður, í síðasta lagi 11. Júní 2015. Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 9-16. Opin handavinnu- stofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Heilsugæsla kl. 10-11.30. Stóladans með Þóreyju kl. 10-10.40. Opið hús, m.a. vist og brids kl. 13-16. Ljósbrotið prjónaklúbbur með Guðnýju kl. 13-16. Boðaþing 9 Vatnsleikfimi kl. 9.30, handverk kl. 9-16, Bónusrúta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Spiladagur, leikfimi kl. 10.40, handavinna og glerlist kl. 13. Bústaðakirkja Heimildarmynd kl. 13 um lífið í Hæðargarði. Helga Margrét Guðmundsdóttir verður með stutt erindi á undan sýningunni. Kaffi, handavinna og spil. Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.40. Furugerði 1 Botsía kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Framhalds- saga og skák kl. 14. Nánari upplýsingar í síma 411-2740. Garðabær Stólaleikfimi fyrir konur og karla í Sjálandi kl. 9.10, kvennaleikfimi í Sjálandi kl kl. 10 og í Ásgarði kl. 11, vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.30, bútasaumur og brids í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Söngur, dans kl. 10, leikfimi kl. 10.40. Pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Steinamálun með leiðbeinanda kl. 13-15. Félagsvist kl. 13. Gjábakki Handavinnustofan opin, botsía kl. 9.10, glerlist kl. 9.30, félagsvist og gler- og postulínsmálun kl. 13, almennur söngur kl. 15, Ingvar Hólmgeirsson spilar undir á harmoniku. Grensáskirkja Vorfagnaður kl. 17.30-19. Helgistund í umsjá sóknarprests. Sr. Hjálmar Jónsson flytur gamanmál og fer með kveðskap. Stofukórinn syngur nokkur lög. Kvöldverður kostar 1.000 kr. Skráning í mat var á mánudag. Upplýsingar í síma 528-4410. Gullsmári 13 Lokadansleikur laugardaginn 2. maí. Haukur Ingibergsson leikur fyrir dansi. Hátúni 12 Félagsvist kl. 18.30. Hraunbær 105 Kl. 8.30 frítt kaffi á könnunni og spjall, kl. 9 opin handavinna leiðbeinandi, kl. 9-11 hjúkrunarfræðingur, kl. 9.45 leikfimi, kl. 11.30 hádegismatur, kl. 13 frjálst spil, kl. 14.30 kaffi. Hraunsel Ganga Kaplakrika kl. 10-12. Pútt Hraunkoti kl. 10-11.30. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Saumar kl. 13. Gler kl. 13. Bútasaumur Hjallabraut kl. 13. Boltaleikfimi kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16, molasopi til kl. 10.30 og blöð liggja frammi, opin vinnustofa, jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30, hádegismatur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Línudans kl. 13.30, kaffi kl. 14.30, púsluspilin liggja frammi. Hæðargarður 31 Qi gong kl. 6.45, við hringborðið kl. 8.50, silfur- smíði í Réttó kl. 9, leikfimi á RÚV kl. 9.45, framsagnarhópur kl. 10, ganga kl. 10, „Að liðka málbeinið“ kl. 13, hláturjóga kl. 13.30, tálgun í ferskan við kl. 14.30, spilabingó með Sólbúum kl. 15, nánar í s. 411- 2790. Íþróttafélagið Glóð Keðjudansar í Kópavogsskóla kl. 15.30. Línudans í Gullsmára kl. 17, kl. 18 byrjendur. Uppl. í síma 554-3774 og á www.glod.is Korpúlfar Glerlistanámskeið kl. 9 til 13 í Borgum. Gönguhópar kl. 10 frá Borgum og í Egilshöll. Félagsfundur Korpúlfa kl. 13.30 í Borgum, fjölbreytt tónlistarveisl, myndasýning, upplestur og fleira. Neskirkja Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor fjallar kl. 13.30 um Steinunni Jóhannesdóttur Hayes, sem var fyrsta konan sem vígðist til prests á Íslandi. Hún var einnig læknismenntuð og starfaði í Kína. Kaffi og kruðerí. Sr. Skúli S. Ólafsson veitir nánari upplýsingar. Norðurbrún Kaffi kl. 8.30. Útskurður kl. 9. Leikfimi kl. 9.45. Ganga kl. 10. Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12. Bókmenntahópur kl. 11. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Félagsvist kl. 14. Bónusbíll kl. 14.40. Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Listasmiðja á Skólabraut kl. 9. Botsía í Gróttusal kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Handavinna í salnum á Skólabraut kl. 13.Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.Til þeirra sem skráðir eru á vorfagnaðinn á morgun 30. apríl: húsið opnað kl. 19.15. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Stangar- hyl 4 kl. 10. Söngvaka kl. 14, umsjón Sigurður Jónsson og Baldur Óskarsson. Vesturgata 7 Setustofa, kaffi kl. 9. Vinnustofa opin (án leiðbeinanda) kl. 9. Fótaaðgerð kl. 9. Hárgreiðsla kl. 9. Spænska kl. 9.15 (framhald). Spænska kl. 10.45 (byrjendur). Hádegisverður kl. 11.30. Verslunarferð í Bónus kl. 12.10.Tréútskurður kl. 13. Myndmennt kl. 13. Kaffi kl. 14.30. Fimmtudaginn 21. maí kl. 19 verður farið í Borgarleikhúsið að sjá söngleikinn Billy Elliot, farið frá Vesturgötu 7 kl. 18.15, upplýsingar og skráning í síma 535-2740. Vitatorg Bókband og handavinna kl. 9, ferð í Bónus kl. 12.20, rúta við Skúlagötu. Framhaldssaga kl. 12.30. Dansað við undirleik Vitatorgs- bandsins kl. 14. Félagslíf GLITNIR 6015042919 I Lf. HELGAFELL 6015042919 IV/V Lf. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58–60 Samkoma í kvöld kl. 20 í Kristniboðssalnum. Ragnar Gunnarsson segir frá verkefnum í Keníu. Ræðumaður er Ólafur Jóhannsson. Allir velkomnir. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Blómsturvellir 14, 740 Fjarðabyggð, fastanr. 216-8963, þingl. eig. Guðni JóhannTraustason og Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, gerðar- beiðandi Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 5. maí 2015 kl. 15.00. Ljósárbrekka 1, 735 Fjarðabyggð, fastanr. 228-3623, þingl. eig. Jóhann Bjarki Ólason, gerðarbeiðandiTollstjóri, þriðjudaginn 5. maí 2015 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Austurlandi, 28. apríl 2015. fasteignir Dagskrá 1. Setning fundar og bæn 2. Kosning fundarstjóra og fundarritara 3. Skýrsla um starfsemi Garðasóknar 4. Reikningar Garðasóknar og Garðakirkjugarðs 2014 og áætlun 2015 5. Skýrsla um starfsemi Styrktarsjóðs Garðasóknar og afgreiðsla reikninga 6. Staða Garðakirkjugarðs 7. Kosningar í sóknarnefnd 8. Önnur mál Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar verður haldinn í safnaðarheimili Vídalínskirkju miðvikudaginn 6. maí 2015 kl. 17.30 Fundir/Mannfagnaðir ✝ Jónína Árna-dóttir fæddist 6. nóvember 1946 í Reykjavík. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 19. apríl 2015. Foreldrar hennar voru Árni Gestsson forstjóri, f. 14. júní í Reykjavík, d. 28. desember 2002, og Ásta Jónsdóttir hús- móðir, f. 18. desember 1920, d. 26. maí 2000. Systkini Jónínu eru Gestur Árnason, f. 1948, í sambúð með Judith Önnu Hampshire, Börkur Árnason, f. 1955, giftur Lisu-Lottu Reynis Anderssen og Ásta Árnadóttir, f. 1960, gift Jóni Grétari Margeirssyni. Jónína var gift Kristjáni Þórð- arsyni en þau skildu árið 1986. Björn Jónínu og Kristjáns eru: 1. an í maí 1963. Að lokinni útskrift hóf Jónína nám við L.T.C. Ladies College of English í Eastbourne í Englandi. Hún lauk námi þaðan vorið 1964 í ensku fyrir útlend- inga. Árið 1966 fór Jónína í hús- mæðraskóla í Kolding í Danmörku í fimm mánuði. Hún var í hús- mæðraskólanum með æsku- vinkonum sínum. Jónína stundaði einnig nám við kvöldskólann í Fjölbraut í Breiðholti árin 1984- 1986 en lauk ekki námi sökum veikinda. Jónína starfaði allan sinn starfs- aldur í fyrirtæki föður síns, Globus ehf., sem gjaldkeri. Jónína sinnti ýmsum félagsstörfum og gekk m.a. í Soroptimistaklúbb Árbæjar í maí 1983 og í Oddfellowregluna árið 2001 og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum þar. Jónína bjó að Markarvegi í Fossvoginum sl. 27 ár og leið mjög vel þar. Útför Jónínu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 29. apríl 2015, og hefst athöfnin kl. 11. Arna, f. 17. nóvember 1970, gift Ívari Trausta Jósafatssyni, f. 12. júní 1961. Börn þeirra eru Ólafur Ingi, f. 7. ágúst 1999, Kjartan Kári, f. 7. jan- úar 2004 og Unnur Erla, f. 20. júlí 2005. 2. Þórður Ingimar, f. 15. október 1974, giftur Ann Kristínu Hrólfs- dóttur, f. 24. apríl 1976. Börn þeirra eru Sara Björk, f. 10. febrúar 2006, og Kristjana Kara, f. 17. febrúar 2009. Fyrir átti Þórður Elísabetu Örnu, f. 25. maí 1996. Jónína ólst upp á heimili for- eldra sinna á Langholtsvegi 153. Hún lauk barnaprófi frá Lang- holtsskóla vorið 1959 og hóf nám við Kvennaskólann í Reykjavík sama haust. Hún útskrifaðist það- Það er sárt að kveðja þig, elsku mamma, en það var enn sárara að fylgjast með þér síðustu vikurnar í veikindunum, hvernig heilsu þinni hrakaði og lífsvonin hvarf. Þú varst svo dugleg og ákveðin í að ná bata, talaðir um að vilja fara með okkur í ferðalög til útlanda, jafnvel kaupa sumarbústað svo við gætum öll átt saman athvarf. Þú varst bjartsýn og vongóð til að byrja með en svo kom hvert áfallið eftir annað og ég skil að það hafi verið erfitt að halda í vonina í þeirri veg- ferð. Þó svo að tímabilið sem þú varst á spítalanum hafi verið erfitt þá færði það okkur hvora nær ann- arri og fyrir það verð ég ætíð þakklát. Ég á góðar minningar um þig, minningar sem ylja við fráfall þitt, minningar úr æskunni, úr ferðalögum okkar og sérstaklega síðustu ferð okkar til London í september 2013. Þú varst svo ánægð með hvað þú gast áorkað miklu, hvað við gátum skoðað mik- ið, ferðast um í neðanjarðarlestun- um og ekki síst hvað við áttum góðan tíma tvær saman. Ég veit að þú varst stolt af okk- ur systkinunum og veit að þú elsk- aðir okkur og börnin okkar. Þú hafðir gaman af því að heyra sögur af ömmubörnunum, afrekum þeirra og öllu þessu daglega. Við erum öll að missa mikið, ekki síst börnin okkar Þórðar sem nú missa ömmu sína sem þeim þótti svo vænt um. Þú hafðir gaman af mannamótum og áttir margar vin- konur, æskuvinkonur og góðar konur sem þú kynntist á lífsleið- inni. Þú ræktaðir þær vel og þér þótti mjög vænt um þær. Okkur Þórð langar að þakka þeim fjöl- mörgu vinkonum mömmu sem hafa heimsótt, aðstoðað og hjálpað mömmu í gegnum sín veikindi í gegnum tíðina og þá sérstaklega undir lokin, þegar hún þurfti mest á því að halda. Elsku mamma mín, hvíl í friði og í faðmi foreldra þinna sem þú elskaðir svo mikið. Megi Guð og englarnir vaka yfir þér. Þín Arna. Jónína Árnadóttir ✝ Sigríður Svan-hildur Magnús- dóttir Snæland fæddist í Reykjavík 7. júlí 1943. Hún lést á Landspít- alanum 16. apríl 2015. Sigríður var dóttir hjónanna Magnúsar G. Mar- ionsonar mál- arameistara, f 22. ágúst 1911, d. 17. desember 1993, og Drafnar P. Snæland saumakonu, f. 10. september 1915, d. 10 mars 1999. Systkini Sigríðar eru: Sigurður Eggert, f. 27. janúar 1937, d. 3. apríl 2005, Kristjana, f. 10. maí 1940, Magn- ús Guðbergur, f. 5. desember 1944, d. 8. mars 1969, og Jóhann Marion, f. 13. júlí 1947. Sigríður giftist hinn 14. apríl 1968 Kristófer Þorleifssyni lækni, f. 15. júlí 1946. Þeirra börn eru: 1) Dröfn Snæland, verslunarmaður, f. 28. september 1960, og maki hennar er Jón Ari Eyþórsson símsmíðameistari og f. 11. febrúar 2002, og Tómas, f. 1. nóvember 2007. 4) Jóhanna, hjúkrunarfræðingur, f. 19. sept- ember 1975, maki hennar er Pálmi Vilhjálmsson kennari, f. 15. mars 1975. Þeirra dætur eru Hrefna Lind, f. 13. apríl 2002, og Sara Lind, 25. september 2006. Sigríður ólst upp í Mjóstræti og síðar á Bústaðaveginum í Reykjavík. Hún nam snyrtifræði en starfaði aldrei við það fag. Hún sinnti ýmsum umönn- unarstörfum á sjúkrahúsum í Reykjavík þar til þau hjónin fluttu til Ólafsvíkur 1974 þar sem Kristófer var héraðslæknir til 1988. Þar starfaði hún sem ritari á heilsugæslustöðinni í Ólafsvík. Eftir að þau fluttu frá Ólafsvík var Sigríður gjaldkeri hjá ÁTVR fram til ársins 2005 þegar hún lét af störfum. Hún var virkur félagi í golfklúbbi Garðabæjar og Kópavogs í tvo áratugi og einnig í Golfklúbbi Úthlíðar. Útför Sigríðar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, 29. apríl 2015, og hefst athöfnin kl. 15. þeirra börn eru Svan- hildur Snæland, f. 26. júlí 1985, maki henn- ar er Sigurður Jóns- son, rafvirki og börn þeirra eru Viktor Berg, f. 6. október 2011, og Soffía Krist- ey, f. 3. nóvember 2014, Eyþór Snæland, f. 1. ágúst 1992, og Eygló Snæland, f. 22. nóvember 1996. 2) Guðfinna, hjúkrunarfræðingur, f. 8. ágúst 1968, fyrrverandi maki Úlfar Helgason, f. 5. sept- ember 1968. Þeirra synir eru: Veturliði, f. 13. febrúar 1996, Þorleifur, f. 26. desember 2000, og Þorbergur, f. 4. nóvember 2004. 3) Eggert Þór, viðskipta- fræðingur, f. 29. desember 1970, maki hans er Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir, leikskólakenn- ari, f. 5. nóvember 1972, þeirra börn eru Eva Ósk viðskiptafræð- ingur, f. 16. október 1988, henn- ar maki er Valur Ægisson verk- fræðingur, f. 28. september 1984, Kristófer, f. 25. júlí 1995, Hekla, Hugrekki og hugulsemi og huggun þegar hún er brýn. Þrautseigja og þolinmæði – kostir sem að prýða þig. Bjölluhlátur, birtuljómi, barlóm lætur eiga sig. Trygglynd, trú, já algjört æði. Takk fyrir að eiga mig. (Kvæði eftir Önnu Þóru 1963) Jóhanna. Elsku besta mamma mín, það er svo óraunverulegt að sitja hér og skrifa minningargrein um þig. Þú varst tekin frá mér allt of fljótt og ég óska þess að við hefðum fengið lengri tíma saman. Eftir situr stórt tóm í hjarta mínu og yfirþyrmandi söknuður. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig með þinni umvefjandi hlýju og ástúð. Ég geymi allar þær fallegu minningar sem ég á um þig í hjarta mínu, þær eru dýrmætari en gull. Í dag kveð ég þig elsku mamma með trega í hjarta en er jafnframt þakklát fyrir allar ynd- islegu stundirnar sem við höfum átt saman í gegnum tíðina. Ég mun ávallt elska þig, mamma mín. Knús og kossar. Þú ert gull og gersemi, góða besta mamma mín. Dyggðir þínar dásami eilíflega dóttir þín. Vandvirkni og vinnusemi væntumþykja úr augum skín. Sigríður Svanhildur Magnúsdóttir Snæland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.