Morgunblaðið - 29.04.2015, Síða 22

Morgunblaðið - 29.04.2015, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 22 MENNING Paul Blart: Mall Cop 2 L Eftir að hafa eytt sex árum í að vernda kringlur borgar- innar heldur Paul Blart til Las Vegas með dóttur sinni til að eyða með henni tíma áður en hún fer í háskóla. IMDB 4,0/10 Laugarásbíó 17.50, 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 17.45, 20.00, 22.50 Borgarbíó Akureyri 20.00 Run All Night 16 Gamall leigumorðingi þarf að takast á við grimman yfirmann sinn til þess að vernda son sinn og fjöl- skyldu hans. Metacritic 59/100 IMDB 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.50 Töfraríkið L Stórkostleg ferð um Móður Jörð, allt frá tindum hæstu fjalla til hafsbotna. IMDB 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 18.00 A Second Chance 14 Lögreglumennirnir Andreas og Simon sinna útkalli heim til pars sem er djúpt sokkið í neyslu og finna nokkurra mánaða gamlan son þeirra hjóna grátandi inni í skáp. IMDB 7,1/10 Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00 Austur 16 Ungur maður er tekinn í gíslingu af ofbeldisfullum glæpamanni sem er í mikilli neyslu. Háskólabíó 20.00, 22.40 Borgarbíó Akureyri 22.00 The Age of Adaline L Adaline Bowman hefur lifað í einveru stóran hluta af lífi sínu í ótta við að tengjast einhverjum of sterkum böndum og með áhyggjur af því að leyndarmál hennar spyrjist út. Metacritic 51/100 IMDB 7,5/10 Laugarásbíó 20.00 The Second Best Ex- otic Marigold Hotel L Hjónin Muriel og Sonny hyggjast opna hótelútibú á Indlandi og er tjáð af fjár- festi að fulltrúi hans muni skoða fyrirætlaðan stað. Metacritic 51/100 IMDB 6,8/10 Háskólabíó 17.30 Fast & Furious 7 12 Metacritic 66/100 IMDB 9,1/10 Laugarásbíó 22.00 Smárabíó 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 22.00 Get Hard 12 Metacritic 33/100 IMDB 6,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.40 Fúsi 10 Fúsi er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og fátt kemur á óvart. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 64/100 IMDB 7,7/10 Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.10 The Divergent Series: Insurgent 12 Eftir að hafa misst foreldra sína en bjargað mörgum af félögum sínum flýr Tris ásamt Caleb, Fjarka og fleir- um yfir á svæði hinna frið- sömu þar sem þau þurfa að ákveða næsta leik. Metacritic 43/100 Sambíóin Álfabakka 17.30 Loksins heim L Geimveran seinheppna Ó kemur til jarðar og hittir hina ráðagóðu Tátilju. Metacritic 48/100 IMDB 6,7/10 Laugarásbíó 17.50 Smárabíó 15.30, 17.45 Samba L IMDB 6,7/10 Háskólabíó 20.00, 22.10 Cavalleria Rusticana Sambíóin Kringlunni 18.00 Citizenfour Bíó Paradís 18.00 Wild Tales Bíó Paradís 18.00 Blind Bíó Paradís 18.00, 20.00 Black Coal, Thin Ice Morgunblaðið bbbmn IMDB 6,7/10 Bíó Paradís 20.20, 22.20 The Grump L Morgunblaðið bbmnn Metacritic 72/100 IMDB 7,5/10 Bíó Paradís 20.10 Stations of the Cross Bíó Paradís 22.00 Whiplash Morgunblaðið bbbbn Bíó Paradís 22.00 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Það er undir Hefnendunum komið að stöðva hræðilegar áætlanir hins illa Ultrons. IMDB 9,3/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.00 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 23.00 Sambíóin Kringlunni 17.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10 Smárabíó 16.00, 17.00, 17.00, 19.00, 20.00, 20.00, 22.00 Avengers: Age of Ultron 12 Eftir að hafa svo oft mistekist með beinum árásum ákveður Júlíus Sesar að reisa glænýja borg til að umkringja Gaul- verjabæ. Morgunblaðið bbbmn IMDB 7,0/10 Laugarásbíó 17.50 Smárabíó 15.30 Háskólabíó 17.30 Borgarbíó Akureyri 18.00 Ástríkur á Goðabakka L Brottrekinn sovéskur herlögreglumaður rannsakar raðmorð á börnum. Morgunblaðið bmnnn IMDB 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.10, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.30 Child 44 16 Kvikmyndir bíóhúsanna Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Um þessar mundir eru liðin 40 ár frá því að hljómplötuútgáfan Steinar hf. var stofnuð og gaf út fyrstu plötuna, Sumar á Sýrlandi með Stuðmönnum. Af því til- efni gefur Sena út á morgun þriggja diska safnplötu, Með lögum skal land byggja, með 60 lögum sem komu út á vegum útgáfunnar. Steinar Berg Ísleifsson, stofnandi Steinars hf., segist hafa viljað gera kröft- ugri útgáfusögu fyrirtækisins, sem spannar 18 ár, góð skil með veglegri safnplötu. Við valið á lögunum 60 tók Steinar tillit til nokkurra þátta. ,,Bæði vildi ég hafa úrvalið nokkuð vítt og breitt þannig að það gæfi ákveðna heild- armynd. Svo vildum við vekja athygli á þeim hljómsveitum sem höfðu náð sér- stökum árangri á þessum tíma. Jafn- framt vildum við bæta við skemmtilegum viðbótum sem voru ekki augljósar fyrir alla en eru mér engu að síður kærar.“ Steinar hf. bryddaði upp á ýmsum nýj- undum á Íslandi á borð við innflutning á erlendum listamönnum, þ. á m. hljóm- sveitina Stranglers. ,,Við rákum einnig hljómplötuverslanir og vorum þannig í beinum tengslum við fólk. Okkar aðall var kraftmikil íslensk útgáfa og við vor- um í náinni samvinnu við fjöldann allan af íslenskum tónlistarmönnum.“ Mezzoforte ruddi brautina Spurður um upplifun sína af útgáfu- tímabilinu svarar Steinar: ,,Þetta var rússíbanareið yfir átján ár sem liðu alveg ótrúlega fljótt. Afar margt og mikið átti sér stað á tímabilinu og keyrslan var mikil. Á sama tíma snerist allt um tón- list. Allt sem við gerðum var gert í því augnamiði að koma íslenskri tónlist á framfæri við Íslendinga og útlendinga.“ Steinar hf. var fyrsta fyrirtækið til að kynna íslenska tónlistarmenn erlendis og koma þeim á vinsældalista úti í heimi. Steinar rifjar upp að Mezzoforte hafi komið laginu „Garden Party“ í 17. sæti breska vinsældalistans árið 1983. ,,Við höfum unnið með fjölmörgum íslenskum sveitum en engin hefur náð viðlíka ár- angri og Mezzoforte. Þeir náðu ein- stökum árangri og ruddu brautina fyrir aðra,“ segir hann. Steinar bendir á að ýmislegt hafi breyst frá árinu 1983. ,, Það var fjar- lægur möguleiki að koma íslenskri tón- list á framfæri erlendis á þessum tíma. Fólki þótti hreinlega skrýtið að bjóða Englendingum að hlusta á íslenska tón- list. Þetta hefur breyst algjörlega.“ Safnplötunni fylgir veglegur bækl- ingur þar sem farið er yfir sögu Steinars í máli og myndum. Jónatan Garðarsson, sem starfaði hjá útgáfunni á árunum 1977-1983, ritaði textann. Hann segir að hugmyndin að safnplötunni hafi kviknað í kjölfarið af útgáfu safnplötu í tilefni af 50 ára afmæli SG hljómplatna, sem kom út í fyrra. Steinar hafi komið að máli við hann og þeir ráðgast um hvernig væri best að minnast sögunnar í kringum Steinar hf. í tilefni tímamótanna. ,,Steinar hf. var að mínu viti öflugasta hljómplötufyrirtæki landsins. Lengi vel var Steinar hf. sú útgáfa sem gaf út lang- flestar íslenskar plötur á hverju ári. Út- gáfan bryddaði einnig upp á ýmsum nýj- ungum, eins og að gefa út safnplötur með erlendu og innlendu efni sem hafði ekki verið gert fram að því, halda útgáfu- tónleika, flytja inn erlenda tónlistar- menn og fleira. Þetta var mjög kröftugur og skemmtilegur tími,“ greinir Jónatan frá. Hann bendir á að hæglega hefði mátt gefa út sex plötur, hefði öllum vin- sælum lögum sem útgáfan gaf út verið gerð skil. ,,Markmiðið var að spanna ákveðna sögu og ákveðna breidd á þessu tímabili. Þó svo að þetta sé ekki langt tímabil, breyttist tónlistin töluvert á þessu tímabili og því er eðilegt að breiddin sé mikil. Platan kemur samt ótrúlega heildstætt út og það er merki- lega mikill heildarsvipur.“ Margir þekktustu og kærustu tónlistarmenn þjóðarinnar flytja sígild lög á disk- unum þremur og flestir ættu því að kannast við mörg þeirra. Meðal laga á plötunum eru „Disco frisco“ með Ljósunum í bænum af plötunni Disco frisco (1979), „This is the Night“ með Mezzoforte og Noel McCalla af 12“ plötunni: This Is The Night (1985), „Fjöllin hafa vakað“ með Egó af plötunni Í mynd (1982), „Týnda kynslóðin“ með Bjartmari Guðlaugssyni, af plötunni Í fylgd með fullorðnum (1987), „Stúlkan“ með Todmobile, af plötunni Todmodbile - Spillt (1993), „Vertu ekki að plata mig“ með HLH flokknum og Siggu Beinteins af plötunni HLH flokkurinn - í rokkbuxum og strigaskóm (1984), „Danska lagið“ með Bítlavinafélaginu af safnplötunni Bandalög (1989), „Í bláum skugga“ með Stuðmönnum af plötunni Sumar á Sýrlandi (1975) og „Nei sko“ með Spilverki þjóðanna af plötunni Sturla (1977). Sextíu sígild lög af mikilli breidd SÖGULEG YFIRFERÐ 1975-1993 Minnast átján ára rússíbanareiðar Morgunblaðið/Bragi Þór Jósefsson Mezzoforte Varð fyrst íslenskra hljómsveita til að komast á erlendan vinsældalista, þann breska árið 1983. Hljómplötuútgáfan Steinar hf. hefði orðið fertug í ár Þriggja diska safnplata Steinar Berg Ísleifs- son árið 1981 Jónatan Garðarsson Óp-hópurinn, í samstarfi við Vonar- strætisleikhúsið, mun í kvöld halda upp á 150 ára afmæli tónskáldsins Richards Strauss í fyrra með sýningunni Ég heiti Richard Strauss! Sýningin fer fram í Salnum í Kópavogi kl. 20 og samdi Sveinn Einarsson handritið að henni og leikstýrir einnig. Arnar Jónsson leikari mun leika Strauss og verða bæði flutt söngljóð og óperutónlist. Óp-hópurinn er félagsskapur nokkurra óperusöngv- ara og hefur sett upp fjölda sýninga og óperur. Sveinn hefur áður unnið með hópn- um, gerði í fyrra með honum sýninguna Verdi og aftur Verdi. „Verdi er vinsæll og nú langaði okkur að kynna höfund sem er minna þekktur á Íslandi,“ segir Sveinn. Strauss sé aðallega þekktur fyr- ir sönglög en sé þó sennilega þekktasta óperutónskáld 20. aldar. Því hafi hóp- urinn viljað kynna hans verk með þess- ari sýningu. „Við bara bjóðum honum í afmæl- isveisluna,“ segir Sveinn, spurður út í hlutverk Arnars í sýningunni. „Hann er bara Strauss, kemur og heilsar áhorf- endum og svo talar hann við söngv- arana líka,“ bætir hann við. Arnar og hópurinn verði í búningum og í seinni hluta sýningarinnar verði fluttur stutt- ur útdráttur úr vinsælasta verki Strauss, óperunni Rósariddarinn. „Þetta er voldugt og ákaflega metn- aðarfullt hjá þessum ungu söngvurum. Þetta er ákaflega efnilegur hópur,“ segir Sveinn að lokum um Óp-hópinn. helgisnaer@mbl.is Arnar Jónsson leikur Strauss Morgunblaðið/Árni Sæberg Strauss-veisla Óp-hópurinn með Arnari Jónssyni og Sveini Einarssyni. Ég heiti Richard Strauss! í Salnum Út er kominn hjá þýska útgáfufyrirtækinu Gruenrekorder disk- urinn Sounds of Iceland /Íslandshljóð sem hefur að geyma hljóð- upptökur úr íslenskri náttúru sem tónskáldið Hafdís Bjarnadótt- ir tónskáld hefur safnað víða um land sl. fimm ár. Upptökurnar eru af náttúrufyrirbrigðum eins og jöklum, fossum, hverum, hellum og fuglum. Í tilefni af útgáfunni verður boðið upp á opið hús í Fræðasetrinu í Gróttu á Seltjarnarnesi í kvöld kl. 21-23 en þá er fjara og hægt að ganga út í eyjuna og til baka. Hægt verður að hlusta á geisladiskinn í heyrnartólum á staðnum auk þess sem hann verður til sölu og heit súpa og brauð í boði fyrir gesti. Íslandshljóð og opið hús í Fræðasetrinu Hafdís Bjarnadóttir Leikritið Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr í upp- færslu Vesturports verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 12. september nk. í leik- stjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Selmu Björnsdóttur og mun Þórir Sæ- mundsson fara með hlutverk Hróa. Varð hann fyrir valinu eftir langar og strangar leikprufur, skv. tilkynningu. Verkið heitir á frummálinu The Heart of Robin Hood, var frumsýnt hjá The Royal Shakespeare Company árið 2011 og hefur hlotið mikið lof beggja vegna Atlantshafsins. Það var m.a. tilnefnt sem besta sýning ársins í Boston í fyrra og hlaut verðlaun fyrir leikstjórn, leik- myndahönnun, ljósahönnun og búninga. Í hjarta Hróa hattar sýnt í Þjóðleikhúsinu Þórir Sæmundsson Eigendur minni kvik- myndahúsa í Þýska- landi eru ósáttir við fyrirætlanir stórfyr- irtækisins Disney um að hækka gjald fyrir sýningarétt á þeim kvikmyndum sem það framleiðir. Kvik- myndahús í 193 bæj- um og borgum Þýskalands tóku þá ákvörðun um liðna helgi að sýna ekki ofurhetjumyndina Avengers: Age of Ultron sem Disney framleiðir og hefur notið gríðarmikillar aðsóknar víða um heim. Verður svo áfram mæti Disney ekki kröfum kvik- myndahúsaeigenda, skv. frétt á vef kvikmyndatímaritsins Hollywood Re- porter. Og ekki nóg með að ofur- hetjumyndin verði ekki sýnd heldur gildir það sama um allar Disney- myndir, þ. á m. teiknimynd um Skelli- bjöllu, Tinkerbell: Legend of the Never- beast, sem frumsýnd verður 30. apríl. Sýna ekki Disney ef gjaldið hækkar Skellibjalla Spuna- og þjóðlaga- sveitin Vikivaki leik- ur á tónleikum í tón- leikaröð Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl. 21. Tónlist Vikivaka byggist á íslensku þjóðlagahefðinni en í hana blandast áhrif frá spunatónlist djassins og Austur- landa í forvitnilegum útsetningum. Erla Stefánsdóttir er söngkona hljómsveit- arinnar. Vikivaki á tón- leikum Múlans Erla Stefánsdóttir Billy Elliot (Stóra sviðið) Mið 29/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Fim 30/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Sun 3/5 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00 Þri 5/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00 Mið 6/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00 Fim 7/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fös 5/6 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl 13 Sun 7/6 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 3/5 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00 Síðustu sýningar leikársins Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Fim 21/5 kl. 20:00 Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Fös 22/5 kl. 20:00 Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fim 28/5 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Sýningum fer fækkandi Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið) Fim 30/4 kl. 20:00 4.k. Lau 9/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00 Sun 3/5 kl. 20:00 5.k. Sun 10/5 kl. 20:00 Fim 7/5 kl. 20:00 6.k. Sun 17/5 kl. 20:00 Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu Hystory (Litla sviðið) Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka. Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00 Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið) Mið 29/4 kl. 10:00 Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í. Beint í æð! –HHHH , S.J. F.bl. Fjórar góðar Í fylgd með fullorðnum, This is the Night, Disco frisco og Í mynd sem Steinar hf. gaf út. ÍSLENSKT TAL ÍSLENSKT TAL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.