Ægir - 01.07.2014, Blaðsíða 59
59
Afli á strandveiðitímabilinu
2014 nam 8.693 tonnum en
veiðunum lauk þann 28. ágúst.
Þetta var sjötta árið sem
strandveiðikerfið er í gildi fyrir
smábáta og hefur þorskafli bát-
anna aldrei verið meiri, eða
7700 tonn. Fjöldi róðra í sumar
var 16.039.
Fram kemur í samantekt á
vef Landssambands smábáta-
eigenda að meðalsafli í róðri
hafi verið 542 kíló en 483 kg að
meðaltali af þorski. Þorskaflinn
var 11% meiri en í fyrra.
Bátunum fækkaði um 26 frá
árinu 2013 en flestir voru þeir á
strandveiðitímabilinu 2012
þegar 759 bátar stunduðu
veiðarnar. Veiðisvæðin voru
sem fyrr fjögur talsins og á einu
þeirra kom aldrei til stöðvunar
veiða en á hinum þremur svæð-
unum tók frá 29 upp í 55 daga
að ná leyfilegum afla á svæðis-
ins.
Eins og vænta má þá var
mest um þorsk í afla strand-
veiðibátanna eða rétt tæp
7.500 tonn. Þetta eru rúmlega
89% heildaraflans. Næst kemur
ufsi, 746 tonn eða 8,9%, og ýsu-
aflinn var 34 tonn sem gera
0,4% af heildaraflanum.
Fiskast best á A-svæðinu
Samkvæmt upplýsingum Fiski-
stofu voru flestir bátar skráðir á
svæði A eða eða 238 bátar
(37%) en fæstir á svæði D eða
124 (19%) talsins. Raunar hafa
bátarnir alltaf verið flestir á
þessu svæði enda mest veiði-
von á svæðinu. Meðalafli í róðri
á svæði A var 586 kg, á svæði B
voru þau 551 kg en á svæði C
547 kg og 452 kg á svæði D.
Aflahæsti bátur strandveið-
anna á þessari vertíð er Hulda
SF-197 sem gerður er út frá
Höfn í Hornafirði með rúm 43,3
tonn. Lundey ÞH-350 kom næst
með 37,8 tonn og Birta SU-36
fylgdi þar fast á eftir með 37
tonn.
Kerfið verði þróað áfram
Á vef Landssambands smábáta-
eigenda segir að mikill hugur sé
í smábátasjómönnum að festa
strandveiðikerfið enn frekar í
sessi og þróa áfram. Vilji þeirra
er að stjórnvöld afnemi heildar-
aflaviðmiðun þannig að ekki
komi til stöðvunar veiða á
tímabilinu maí - ágúst. Verði
það samþykkt yrðu veiðidagar
jafnmargir á hverju svæði 64
miðað við strandveiðar í ár. Aðr-
ar takmarkandi reglur yrðu
óbreyttar.
Aldrei
meiri
þorskafli
í strand-
veiðinni
Rúmlega 16 þúsund
róðrar voru farnir í
strandveiðinni í ár og
gáfu þeir í heild tæp
8700 tonn.
S
tra
n
d
v
eiða
r