Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 2
þriðjudagur 6. janúar 20092 Fréttir Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðs- ins, var rekið með um 570 milljóna króna halla á nýliðnu ári en það jafn- gildir um 48 milljónum króna á mán- uði. Félagið rær lífróður og hefur það ásamt Glitni, viðskiptabanka sínum, kynnt áhugasömum fjárfestum tillög- ur um 270 milljóna króna rekstraraf- gang á þessu ári. Þetta jafngildir 840 milljóna króna umskiptum frá tap- inu í fyrra sem er það mesta sem orð- ið hefur í sögu félagsins á síðari árum. Félagið þarfnast 1.000 milljóna króna í nýtt hlutafé sem Glitnir reynir nú að selja fjárfestum. Auk þess er lausafjár- staða útgáfunnar afar þröng og tal- in brýn þörf á 450 milljónum króna í lausafé nú þegar. Beggja vegna borðs Samkvæmt trúnaðargögnum, sem DV hefur undir höndum, nema skuldir Árvakurs nú hartnær 4,5 milljörðum króna. Þar af nema skuldir útgáfunn- ar við Glitni liðlega 3,5 milljörðum króna. Athygli vekur að Landsbank- inn hefur veitt Árvakri tæplega 900 milljóna króna fjárfestinga- og rekstr- arlán án veðtrygginga en með ábyrgð eignarhaldsfélaga í eigu hluthafanna. Lánið var veitt meðan Björgólfur Guðmundsson var í senn aðaleigandi Landsbankans og Árvakurs en hlutafé hans í báðum félögunum hefur verið þurrkað út. Stærst eru lánin hjá Glitni vegna prentsmiðju Morgunblaðsins í Há- degismóum, nærri 2,8 milljarðar króna, en það hefur verið veitt með veði í prentsmiðjunni sjálfri. Harðnar í ári Áætlanir Árvakurs fyrir nýliðið ár gerðu ráð fyrir því að rekstrarafgang- ur útgáfunnar yrði 340 milljónir króna fyrir skatta, afskriftir og vaxtagjöld. Þessar áætlanir stóðust engan veginn. Niðurstaðan var 570 milljóna króna halli eins og áður segir sem er því um 900 milljónum króna lakari afkoma en áætlunin gerði upphaflega ráð fyrir. Í gögnunum, sem lögð eru til grund- vallar í viðleitni forráðamanna Ár- vakurs til að endurfjármagna félagið, er tapið rakið til hruns á auglýsinga- markaði sem var mikið og hastarlegt í fyrra. Af gögnum Árvakurs má ráða að í góðærinu hafi auglýsingatekjur félagsins numið allt að 2 milljörðum króna á ári en hafi skyndilega lækk- að um að minnsta kosti 600 milljónir króna á ári. Þá bar Árvakur launakostnað og annan kostnað af fríblaðinu 24 stundum allt árið í fyrra en út- gáfu þess var hætt í október. Forsvarsmenn Árvak- urs telja að tekjur félagsins geti orðið liðlega 4,3 milljarð- ar króna á þessu ári en þær námu aðeins 3,7 milljörðum króna á nýliðnu ári. Lagt er til grundvallar að auglýsinga- markaðurinn nái sér aftur á strik og að tekjur vefmiðilsins mbl.is haldi áfram að vaxa. Fyrirheit eru um að stjórnunarkostnaður verði lækkað- ur enn meira á þessu ári og næsta. 5 milljarða tekjur árið 2013 Mögulegir fjárfestar í Árvakri á þreng- ingartímum eru upplýstir um að miðlar þess nái til 85 prósenta lands- manna í hverri viku. Morgunblaðið sé virtasta dagblað landsins og lang- stærsta áskriftarblaðið. Áskrifendur eru sagðir 43 þúsund talsins og standi undir 60 prósentum af tekjum félags- ins. Veikustu þættir útgáfunnar hafi verið lagðir niður og starfsmönnum hafi verið fækkað um 80 eða 28 pró- sent af starfsmannafjölda. Fríblaða- reksturinn hafi verið blaðinu þungur í skauti en hann hafi nú verið lagður af. Með samningum við útgefendur Fréttablaðsins um prentun og dreif- ingu megi afla frekari tekna, en gert er ráð fyrir því að 60 prósent tekna prent- smiðjunnar verði aflað með prent- un annarra prentmiðla en Morgun- blaðsins. Að þessu samanlögðu megi gera ráð fyrir snöggum umskiptum á þessu ári og því næsta í rekstri Morg- unblaðsins og mbl.is. Þannig er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur blaðsins verði 330 milljónir króna fyrir skatta, afskriftir og önnur gjöld. Reynd- ar er gert ráð fyrir að tekj- ur félagsins hækki úr 3,7 milljörðum króna á síðasta ári í nærri 5 milljarða króna árið 2013, en það ár áætla forsvars- menn félagsins að rekstrarafgangur verði ekki minni en 800 milljónir króna. Lausafjárþurrð Árvakurs Í yfirlýsingu frá Árvakri hf. í lok nóvember síðastliðnum var upplýst að Árvakur og Nýi Glitnir hefðu sammælst um að vinna að framtíðar- lausn á fjár- málum Ár- Landsbankinn lánaði Árvakri, útgáfufé- lagi Morgunblaðsins, 900 milljónir króna án veðtrygginga meðan Björgólfur Guð- mundsson var ráðandi eigandi bankans og útgáfunnar. Í trúnaðargögnum segja Árvakursmenn við mögulega fjárfesta að unnt sé að snúa við 570 milljóna króna rekstrartapi í fyrra í 270 milljóna króna rekstrarafgang á þessu ári. Tafist hefur að safna einum milljarði króna í nýtt hlutafé, sem talið er að þurfi til að tryggja áfram- haldandi rekstur. Björgólfur lánaði Mogga 900 Milljónir Beggja vegna borðs Eitt fé- lag Björgólfs lánaði öðru félagi í hans eigu án veðtrygginga. Þór Sigfússon Forsvarsmenn Árvakurs töldu fyrir fimm vikum að unnt yrði að leysa vanda útgáfunnar á einni viku. JóHann HaukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.