Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Qupperneq 8
miðvikudagur 6. janúar 20098 Fréttir Atli Már GylfAson blaðamaður skrifar: atli@dv.is Skammbyssan sem hinn sextán ára drengur gekk með síðastliðið föstudagskvöld var í ólæstri hirslu á heimili föður hans. Þetta staðfesti Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- maður rannsóknardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri skotvopn eru skráð á föð- urinn sem er fyrrverandi lögreglu- maður í Reykjavík en rannsókn málsins er á lokastigi. Málið er síð- ur en svo einsdæmi hér á landi því svo virðist sem fjölmargir Íslend- ingar virði ekki lög um geymslu skotvopna sem eru talin vera á bil- inu sextíu til sjötíu þúsund. Má telja mildi að enginn skaði hlaust þegar drengurinn komst yfir skot- vopn föður síns en ekki eru allir svo lánsamir. Aðeins fjögur ár eru síð- an tólf ára drengur lést á Selfossi eftir slysaskot úr óskráðri Ruger- skammbyssu sem hann og vinur hans komust í. skaut á leikskóla Sextán ára byssumaðurinn, sem allt tiltækt lögreglulið og sérsveit ríkislögreglustjóra leitaði að á föstudagskvöldið, hleypti af einu skoti áður en hann var handtek- inn. Kúlan hæfði leikskólann Jörfa í Hæðargarði en þar fann lögreglan byssukúluna í leikfangakassa barn- anna. Kúlan fór í gegnum vegg leik- skólans svo mikill var krafturinn í skammbyssunni sem nú er á borði lögreglu. Samkvæmt heimildum DV er þetta mikill harmleikur og áfall fyrir fjölskyldu piltsins en að sögn aðstandanda var hann kom- inn á ystu nöf. Pilturinn er þó kom- inn í réttar hendur en hann gaf sig fram við lögreglu og var handtekinn mótþróalaust og án nokkurra vand- ræða. Alvarlegt mál „Það sem er alvarlegast í þessu leiðindaatviki um helgina er að þetta er fyrrverandi lögreglumaður sem á byssuna og því hlýtur mað- ur að gera meiri kröfur til hans um að læsa skotvopnin inni á góðum stað,“ segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiði- félags Íslands – Landssamtaka um skynsamlega skotveiði. „Við hjá Skotveiðifélagi Íslands höfum svar á reiðum höndum við þessu. Allir sem eiga skotvopn eiga að geyma það í læstri hirslu, þó svo þú eigir bara eitt,“ segir Sigmar og vísar til laga um meðferð skotvopna en í þeim lögum er kveðið á um að þeim sem eiga þrjú skotvopn eða fleiri er skylt að læsa þau inni í þar til gerðum byssuskáp. Ef þú átt eitt eða tvö skotvopn er læst „hirsla“ nóg. „Það er bara út í hróa hött. Ef þú átt eina byssu áttu að eiga læst- an byssuskáp. Ein byssa er alveg jafnhættuleg og þrjár,“ segir Sigmar sem vill hert lög um geymslu skot- vopna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru yfir fimmtíu þúsund skotvopn á skrá en þar af eru 2.312 skammbyssur. Rétt er að taka það mjög skýrt fram að þarna er um að ræða allar skráðar skammbyssur hvort sem þær eru til nota vegna vinnu, eins og til dæmis fjárbyssur bænda og dýralækna, eða iðkunar á skotfimi. Börn í hættu „Það er alvarlegt mál hvernig frá- gangi skotvopna er háttað hér á landi,“ segir Margrét María Sigurð- ardóttir, umboðsmaður barna. „Ég varð vör við það í mínu fyrra starfi sem fulltrúi sýslumanns. Oft var ábótavant hvernig skotvopnin voru geymd,“ segir Margrét María sem hefur af þessu áhyggjur. Börn eru í hættu og þá sérstaklega ung- ir drengir sem oftar en ekki dreym- ir um að halda á skotvopni eins og í bíómyndunum. „Það þarf að brýna ábyrgð- ina sem fylgir því að eiga skotvopn, það er alveg ljóst,“ segir Margrét. „Strákar hafa óendanleg- an áhuga á byssum, rakettum og sprengingum, það er bara í gen- um stráka,“ segir Sigmar sem sjálf- ur hefur brýnt það fyrir börnum að skotvopn eru ekki neitt til að leika sér með. „Þetta er náttúrlega rosalega freistandi og kannski eðlilegt að þeir freisti þess að fara með vopnið og skjóta af því. Langhættulegasta vopnið í því sambandi er skamm- byssa,“ segir Sigmar. Þúsundir óskráðra skotvopna Fréttaskýringarþátturinn Komp- ás fjallaði um óskráð skotvopn hér á landi í kjölfar voðaskotsins á Sel- fossi en í þeirri umfjöllun kom í ljós að fjöldi slíkra vopna er í þús- undum talinn. Kompás hvatti Ís- lendinga með óskráðar byssur að skila þeim inn og til að gera langa sögu stutta voru þær ekki margar sem skiluðu sér. Sigmar segir þá fé- laga hjá Skotvís hafa gert óformlega könnun á óskráðum skotvopnum meðal landsmanna fyrir nokkrum árum og töldu þeir þá að eitthvað á bilinu tíu til tuttugu þúsund skot- vopn væru óskráð hér á landi. Hvar þær byssur eru niðurkomnar er ómögulegt að segja en aftur á móti er hægt að útskýra að einhverju leyti af hverju svo margar byssur eru ekki til á neinum pappír. „Fyrir svona fimmtán árum var verð á skotvopnum hér á landi mjög hátt vegna til dæmis vörugjalda. Á sama tíma var að hefjast mikill innflutningur á bílum frá Ameríku og þá var talsverðu af skotvopn- um smyglað til landsins. Eitthvað af þeim skotvopnum hefur verið skráð,“ segir Sigmar. „Núorðið er litlu smyglað af skot- vopnum hingað til lands því þau eru tiltölulega ódýr á Íslandi miðað við annars staðar í heiminum. Þetta eru þá aðallega skammbyssur sem í flestum tilvikum er smyglað með skipum sem hingað koma.“ svartur markaður Samkvæmt heimildum DV er töluvert um svartamark- aðsbrask með skotvopn en þau viðskipti eru þó í lang- flestum tilvikum tengd undirheimum og fíkni- efnum. Skammbyssur, af- sagaðar haglabyssur, rifflar, skotfæri og aukahlutir eins og hljóðdeyfar ganga því ,,Ef þú átt eina byssu áttu að eiga læstan byssuskáp. Ein byssa er alveg jafnhættuleg og þrjár.“ Talið er að 70 þúsund skráð og óskráð skotvopn séu til í land- inu. Það þýðir að hægt væri að vopna þriðja hvern landsmann sem náð hefur 20 ára aldri. sigmar B. Hauksson, formaður Skotvís, vill hertari reglur um geymslu skotvopna og segir skammbyssumálið um helgina grafalvarlegt. BYSSA Á ÞRIÐJA HVERN ÍSLENDING Hættuleg vopn Skammbyssur eru stórhættulegar en slík vopn á ávallt að geyma í læstri hirslu eða þar til gerðum byssuskáp. Umboðsmaður barna margrét maría Sigurðardóttir vill brýna ábyrgðina fyrir eigendum skotvopna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.