Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Blaðsíða 13
þriðjudagur 6. janúar 2009 13Fréttir Lán og ólán Donald Peters og eiginkona hans, Charlotte, höfðu ekki brugðið út af vana sínum í yfir tuttugu ár og keypt lottómiða. Ekki báru þau mikið úr býtum og aðeins einu sinni hafði tuttugu dala vinningur fallið þeim í skaut. En lánið var innan seilingar og í síðasta skipti sem þau keyptu lottó- miða unnu þau tíu milljónir dala. En Donald var ekki ætlað að njóta vinningsins, því þremur tímum fyr- ir útdráttinn fékk hann hjartaslag og dó. „Það er gott að maðurinn minn hafði kímnigáfu. Og ef hann sæi mig nú myndi hann segja „dæmi- gert“ og brosa,“ sagði Charlotte Peters. Staður til að læra á – ekki skóli Richard Caborn, þingmaður fyrir Sheffield á Englandi, er ekki sátt- ur við ákvörðun skólayfirvalda forskólans Watercliffe Meadow. Ákveðið hefur verið að fella niður orðið „skóli“ og verður Watercliffe Keadow „staður til að læra á“ í stað „forskóla“. Yfirkennari „staðarins til að læra á“, Linda Kingdon, sagði að orðið „skóli“ hefði „neikvæða merkingu“ og ákvörðunin væri hluti af nýrri nálgun til náms. Caborn sagðist ávallt hafa ver- ið hlynntur nýjum hugmyndum, en hefði ekki gert ráð fyrir að fella niður orðið „skóli“. „Ég veit ekki til hvers þau gerðu það,“ sagði Cab- orn. Kínversk stjórnvöld skera upp herör gegn „klúrum“ vefsíðum: DAUÐI, HUNGUR OG HATUR Varnarmálaráðherra Ísraels, Ehud Barak, sagði í gær að þrátt fyrir að Hamas-samtökin hefðu orðið fyr- ir „gríðarlegu áfalli“ myndi aðgerð- um ísraelska hersins fram haldið. „Við höfum ekki enn náð markmið- um okkar,“ sagði Barak. Ehud Bar- ak beindi orðum sínum til ísraelskra þingmanna og sagði að árásum hers- ins yrði ekki hætt fyrr en búið væri að tryggja „frið og ró“ fyrir ísraelska borgara og skírskotaði til þeirra ísra- elsku bæja sem sætt höfðu eldflauga- árásum vígamanna. Árásir Ísraelshers hafa staðið yfir linnulaust síðan 27. desember og hafa þarlend stjórnvöld skellt skolla- eyrum við ákalli alþjóðasamfélagsins um vopnahlé. Tölur látinna á Gaza hafa farið síhækkandi og að sögn pal- estínskra lækna hafa yfir fimm hundr- uð manns látið lífið og yfir tvö þúsund og fimm hundruð manns særst. Erfitt hefur reynst að fá þessar tölur stað- festar enda engum erlendum frétta- mönnum hleypt inn á átakasvæðið. Landhernaður Í kjölfar loftárásanna réðst land- her Ísraels inn á Gaza um helgina og samkvæmt ísraelskum heimildum voru um fjögur þúsund hermenn inn- an Gaza-svæðisins í gær og njóta þar stuðnings skriðdrekasveita. Að sögn fréttaritara BBC í Jerúsal- em, Mikes Sergeant, virtist sem land- hernaður ísraelska hersins beindist sérstaklega að svæðum á norðurhluta Gaza. Ísraelskir hermenn hafa barist við liðsmenn Hamas í grennd við Beit Hanoun og Jabaliya. Gaza, sem liggur aðeins sunnar, hefur verið umkringt. Samkvæmt fréttum er ekkert lát á straumi særðra á sjúkrahúsin sem nú þegar eru yfirfull, og heimildir herma að að minnsta kosti tuttugu og þrír óbreyttir borgarar hafi látið lífið í næt- urárásum í fyrrinótt, þar af nokkur börn. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði að öll sjúkrahús Gaza berðust við að sinna þeim hundruðum særðra Palestínumanna sem hefðu streymt að síðustu fimm daga og að sjúkra- húsin hefðu verið án landrafmagns og hefðu þurft að treysta á rafala sem væru við það að gefa sig. Í gærmorgun laust í fyrsta skipti saman hermönnum Ísraels og Ham- as-liðum í Gaza. Þá fóru Ísraelar hús úr húsi í leit að liðsmönnum Hamas. Bardagarnir hófust þegar Ísraelsher hafði náð stjórn á stórum hluta Gaza- ræmunnar, skipt svæðinu í tvennt og með því neytt þúsundir manna til að flýja heimili sín undir stöðugri stór- skotaliðsárás. Engan bilbug að finna hjá Hamas Mahmoud Zahhar, háttsettur leið- togi Hamas á Gaza-svæðinu, sagði að stefnt væri að „sigri“ gegn Ísrael. Í útsendingu al-Aqsa-sjónvarpsstöðv- arinnar, sem rekin er af Hamas, lof- aði Zahhar þá sem berjast fyrir Ham- as og gaf í skyn að samtökin íhuguðu að ráðast á ísraelsk skotmörk erlend- is. Zahhar hvatti Hamas-liða til að „mylja óvininn“. Hann telur að Ísrael- ar hafi „löghelgað dráp á fólki þeirra hvar sem er í heiminum þegar þeir drápu okkar fólk“. Það er því fátt sem bendir til þess að Ísrael og Hamas hyggi á vopnahlé. Reyndar hafa leiðtogar Hamas verið í felum síðan árásir Ísraels hófust í lok síðasta árs og ekki er vitað hvort ræða Mahmouds Zahhar hafi verið upp- taka eða bein útsending. Að sögn ísraelska hersins skutu Hamas-samtökin tuttugu eldflaug- um inn í suðurhluta Ísraels á mánu- daginn. Síversnandi ástand Fyrir íbúa Gaza fara aðstæður hríð- versnandi og sagði Christopher Gunness, talsmaður stofnunar Sam- einuðu þjóðanna um málefni Palest- ínu, að mikil þörf væri á matvælum og að fólk stæði frammi fyrir „alvar- legu hungri“. „Ein milljón manns er án raf- magns. Sjúkrahús Gaza eru knú- in með neyðarrafölum. Samkvæmt mínum bókum jafnast það á við neyðarástand,“ sagði Gunness í við- tali við BBC. Á sama tíma og tala látinna hækk- ar og aðstæðum á Gaza hrakar virðist sem alþjóðasamfélagið sé að vakna til meðvitundar og ráðamenn víða að úr heiminum huga að leiðum til að miðla málum og koma á vopnahléi. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti mun skjótast til Egyptalands til við- ræðna vegna átakanna, hann mun einnig fara til Jerúsalem þar sem hann ræðir við forsætisráðherra Ísr- aels, Ehud Olmert, og Ramallah á Vesturbakkanum og Sýrlands. Sendinefnd á vegum Evrópusam- bandsins hefur nú þegar verið í Ka- író í Egyptalandi, þar sem rætt var við forsætisráðherra Egyptalands og hvatti nefndin í kjölfarið bæði Ísra- elsher og Hamas-samtökin til að láta af árásum. Í gær ýttu kínversk stjórnvöld úr vör herferð gegn „klúrum“ vefsíðum, þeirra á meðal Google og fremstu leitarsíðu landsins, Baidu. Embættismenn tilgreindu nítján síður sem höfðu látið undir höfuð leggjast að ritskoða óviðeigandi efni þrátt fyrir viðvaranir um að gera slíkt eða höfðu ekki haft nægi- lega snör handtök. Sökum þeirr- ar handvammar hafði líkamleg og andleg heilsa ungs fólks „skaðast“. Í sjónvarpsumfjöllun hins op- inbera mátti sjá embættismenn leggja hald á tölvubúnað einhverr- ar skrifstofu og skýrt var frá því að ráðuneyti almannaöryggis, ásamt öðrum ríkisstofnunum, hefði til- kynnt um herferðina. Samkvæmt tilkynningu frá mið- stöð stjórnvalda, þar sem hægt er að tilkynna um ólöglegt netefni, fundust of margar tengingar á Google og Baidu við dónalegar eða klámfengnar síður. Google og Baidu berjast um hit- una í Kína og hefur Baidu vinning- inn, með um tvo þriðju hluta not- enda stærsta samfélags netnotenda heims. Google er í öðru sæti. Á meðal þeirra vefsíðna sem kín- versk stjórnvöld beina spjótum sín- um að eru nokkrar vinsælustu vef- síður landsins; Sina, Sohu, Netease og Tianya. Herferð af þessum toga er ekki nýtt fyrirbæri í Kína því oft og tíðum beita stjórnvöld ritskoðun til að ráðast gegn klámi, netsvindli og gagnrýni á stjórnvöld. Að þessu sinni heita stjórnvöld því að hinir brotlegu hljóti „harða refsingu“. Klám er bannað með lögum í Kína en ku vera aðgengilegt víða í landinu, engu að síður. Google á svörtum lista Verndar dóttur sína Ísraelsk móðir hlífir dóttur sinni undir borði á veitingastað við samyrkjubú í Ísrael. Ísraelskur skriðdreki Á eftirlitsferð við landamæri Ísraels og gaza. © GRAPHIC NEWSHeimild: fréttaþjónustur, Sameinuðu þjóðirnar Með stuðningi 150 skriðdreka hafa þúsundir ísraelskra hermanna - þeirra á meðal Golani- og Givati-stórfylkin, fallhlífahermenn og Sayeret Matkal-sérsveitirnar – umkringt stærstu borg Gaza í sérstakri aðgerð sem miðaði að því að einangra liðsstyrk Hamas frá suðri. Sufa Kissum Karni Nahal Oz Erez Rafah- landam.st. Khan Yunis Fórnarlömb Palestínu: Fórnarlömb Ísrael: Fjórir borgarar og tveir hermenn látnir, 32 slasaðir Yr 500 látnir, um 2.500 slasaðir Gaza-borg: Umkringd af fótgönguliði Ísraels Skriðdrekar sækja fram til að umkringja Khan Yunis 220 eldaugum skotið inn í Ísrael í síðustu viku Göng sem notuð eru til að smygla vopnum frá Egyptalandi Tugir þúsunda varaliðsmanna og hundruð skriðdreka safnaðist saman við landamærin reiðubúin til landhernaðar Einangrun sjóhers útvíkkuð í 37 km 50 km 30 mílur Vestur- bakkinn Gaza- strönd Jerúsalem ÍSRAEL Í S R A E L GAZA- SVÆÐIÐEGYPTALAND SÝRLAND Hamas: Talin hafa um 15.000 þjálfaða vopnfæra menn 8km MIÐJARÐARHAFIÐ 5 mílur ÍSRAELAR REYNA AÐ NÁ LYKILSVÆÐUM Á GAZA UMSAGNIR VEGNA ÁtAKANNA n Shimon Peres, forseti Ísraels: „Við ætlum okkur hvorki að hernema gaza né mylja Hamas, heldur mylja ógn. Og Hamas þarfnast lexíunnar. nú fá þau hana.“ n Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels: „Við leitum friðar. Við höfum hamið okkur í langan tíma, en nú er tími kominn til að gera það sem þarf að gera.“ n Ismail Radwan, yfirmaður í Hamas: „gaza verður engin lautarferð. gaza verður grafreitur ykkar.“ n Benedikt XVI páfi: „Stríð og hatur eru engin lausn á vandamálum.“ n Utanríkisráðuneyti Frakklands: „Frakkland fordæmir landhernað Ísraelshers á gaza líkt og það fordæmir áframhaldandi eldflaugaárásir.“ n Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands: „Ég get skilið vandamál Palestínumanna á gaza – að þeir þurfi neyðarað- stoð – en Ísraelar verða að hafa tryggingu fyrir því að Ísrael verði ekki fyrir eldflaugaárásum.“ n Talsmaður Baracks Obama, verðandi Bandaríkjaforseta: „Verðandi forseti fylgist grannt með alþjóðlegum málum, þar með talið ástandinu á gaza.“ Google í Kína Ekki með öllu þóknanleg kínverskum stjórnvöldum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.