Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Blaðsíða 19
þriðjudagur 6. janúar 2009 19Sviðsljós Ótrúlegasta fólk í Hollywood eyðir tíma saman. Það vita all- ir að Jennifer Aniston er mikil stórvinkona hjónanna Courtn- ey Cox-Arquette og Davids Arquette, en þau flugu til Cabo San Luc­as til þess að eyða áramótunum saman. Með í för var kær- asti Jennifer, John Mayer. Söngkonan Sheryl Crow flaug einnig til Mexíkó til að hitta Jennifer og Courtney en allar eru þær miklar vinkonur. Síðan bættust hjónin Laura Dern og Ben Harper í hópinn. Pörin létu fara vel um sig á ströndinni. Strákarnir voru þó fljótir að láta sig hverfa úr sólinni á meðan stúlkurnar spókuðu sig undir regnbogalitum sólhlífum. Jennifer Aniston, Courtney Cox og Sheryl Crow í Mexíkó: Stjörnuvinir í Sólbaði Ber á sig sólarvörn Leikkonan Laura dern ber á sig sólarvörn. Á ströndinni liggja jennifer aniston, Courtney Cox- arquette og Sheryl Crow. Leikaraparið Reese Witherspoon og Jake Gyllenhaal skemmti sér vel saman á leik í NBA-deildinni á sunnudagskvöldið. Kærustuparið sat við leikvöllinn á leik Portland Trail Blazers á móti Los Angeles Lakers en Jake er mikill Lakers-aðdáandi. Hingað til hefur hann farið á Lak- ers-leiki með besta vini sínum, leikaranum Austin Nic­holos, en er nú farinn að bjóða kærustunni með í staðinn og var ekki annað að sjá en að skötuhjúin væru hæstánægð og skellihlæjandi saman á leiknum enda fór þeirra lið með sigur af hólmi. Kát á Körfu- boltaaleiK Sólarsæla jennifer aniston eyddi áramótunum í Mexíkó. Góðir vinir Hér sjást jennifer aniston, Courtney Cox-arquette, david arquette og dóttir þeirra Coco. Skvísa Söngkonan Sheryl Crow naut sín í Mexíkó. Góður matur á ströndinni Vinahópurinn fékk flotta þjónustu á ströndinni. Flott mamma Courtney Cox- arquette í fjólubláu bikiníi. Það er álíka líklegt að sjá fljúgandi fönix og að sjá Ditu Von Teese ósnyrtilega til fara. Hér er daman á leiðinni í ræktina og glæsileg að vanda. Meðan flestar konur hefðu látið sér nægja íþróttabuxur og þægilega peysu klæðist Dita aðsniðinni svartri ullarkápu með hlébarðaklút. Í fullum herklæðum eins og ein- hverjir myndu kalla það og stífmáluð. Undir kápunni var Dita ekki síður glæsileg og flestar konur myndu prísa sig sælar að vera svo fínt klæddar úti á lífinu. Dita var á leiðinni í pílates þegar þessar myndir náðust af henni. Dita starfar sem burlesque-dansari og þarf að vera í sína besta formi enda yfirleitt fáklædd á sviði. Dita Von Teese er alltaf glæsileg til fara: Það eru eflaust ekki allir jafnánægðir með að Amy Winehouse sé fá- klædd á ströndinni eins og hún sjálf virðist vera. Amy lítur yfirleitt út fyrir að vera grannur maður með hárkollu en hún virðist þó vera farin að taka sig á. Söngkonan með röddina fallegu hefur bætt að- eins á sig og virðist ekki vera að reykja krakk í augnablikinu. Amy sást daðra við karlmann á ströndinni í St. Luc­ia í Karíbahafinu en það er spurning hvort það hafi reynst henni gott að hætta með Blake Wood. Hamingja á Ströndinni glerfín í ræKtina Dita Von Teese Fer í því sem margir myndu kalla „sparifötun- um“ í ræktina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.