Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Síða 20
þriðjudagur 6. janúar 200920 Fókus Mér hefur löngum fundist að kvik- myndagagnrýnendur setji sig oft í rangar stellingar þegar þeir dæma kvikmyndir. Auk þess búa fáir yfir þeirri víðsýni og nógu fjölbreyttum smekk til þess að geta dæmt allar myndir. Sem dæmi er vita vonlaust fyrir mig að gagnrýna af viti róm- antískar gamanmyndir, sem höfða lítið til mín, á meðan margar konur sem ég þekki gleyma stað og stund yfir mismunandi útgáfum af sömu sögunni. Ekkert að því. Skyldi það vera tilviljun að á sama tíma og yf- irgnæfandi meirihluti kvikmynda- gagnrýnenda eru karlkyns fá þessar „kvenna-myndir“ undantekninga- lítið dapra dóma? Ég myndi telja sjálfan mig mikinn og kröfuharðan kvikmyndaáhuga- mann. Aftur á móti get ég skemmt mér ágætlega yfir innihaldsrýru efni við og við alveg eins og ég get fílað 80´s metal við einstaka tæki- færi. Með þessu hugarfari horfði ég á hina evrópskættuðu Transporter 3, vitandi mæta vel að þar yrði ekki um verðlaunamynd að ræða. Bílar, slagsmál og töffaraskapur a la Jason Statham var á matseðlinum. Sem sagt meira djúsí þynnkumatur en nautasteik og rauðvín. Myndin rúllar af stað. Svartur urrandi BMW er hundeltur af lögg- unni og öllum. Ágætt. Bíllinn end- ar með því að fara í gegnum vegg og inn í stofuna hjá Transportern- um Jason Statham sem bregst við eins og ekkert sé eðlilegra í heimin- um. Bílstjóri Bimmans fuðrar upp í sjúkrabílnum vegna þess að hann er með armband sem springur ef það fjarlægist bílinn. Þegar allir eru farn- ir finnur flutningsmaðurinn konu í bílnum!? Hún er líka með arm- band frá vondu köllunum, Transinn fær líka armband, tvenn jakkaföt og sinn eigin bíl („I have one condition. I drive my own car“) til að rúnta um Evrópu, annars deyja allir og allt springur, eða svo gott sem. Söguþráður og öll framvinda er fáránleg. Á tímabili finnst manni eins og verið sé að gera manni lang- sóttan hrekk, sem hefði virkað sem slíkur, en svo er ekki. Enginn á von á gæðahandriti í svona mynd en það er lágmark að maður fari ekki hjá sér. Og talandi um það. Maður hefði haldið að hægt væri að finna sæmi- legan áhættuökumann í heimalandi rallý-meistarans Sebastians Loeb í stað þess að nota „fast-forward- takkann“ í klippingunni á ökuatrið- unum. Við erum að tala um atriði eins og úr þöglu myndunum, gott fólk. En ef það er eitthvað sem slær út brellurnar er það leikurinn í myndinni sem þætti tæpur í ódýrri klámmynd. Ég hef ekki fengið ann- an eins kjánahroll síðan djamm- þættirnir í árdaga Skjás eins og Sirkuss þóttu boðlegir í sjónvarpi. Aðalkvenhlutverkið er í höndum Natalyu Rudakovu og er mér stór- lega til efs að önnur eins hörm- ungarleikkona hafi birst á stóra tjaldinu undanfarna áratugi, enda hefur hún hvorki leikið fyrr né síð- ar í bíómynd. Þetta er leikkona sem lætur Madonnu líta út eins og Meryl Streep ( í öllu nema Mamma Mia!). Hasarhausinn Jason Statham leikur nokkurn veginn sama hlut- verkið í öllum myndum og gerir það yfirleitt ágætlega. Hann átti mjög góða spretti í myndum Guy Ritchie og nýverið í hinni stórgóðu „Bank Job“ en í þriðja skammti af Trans- porter er hann álíka sorglegur og restin. Ítrekað skutust spurningar upp í huga mér yfir þessum hamförum: Hvað er Statham að spá? Gerir hann engar kröfur? Hvernig gat hann haldið andlitinu gegn Rudakovu? Á hvaða eiturlyfjum var leikstjórinn? Hvernig í andskotanum fer ég að því að þola þessa mynd til enda? Og niðurstaðan er þessi. Aðeins tíu ára strákum sem svindla sér inn og fólki haldið kvalalosta mun finnast þessi mynd góð. Statham á kannski eina stjörnu skilið fyrir kúlið en allt annað er svo fádæma ömurlegt að það eyðir henni upp og gott betur. Versta mynd ársins kom snemma í ár. Paris Hilton get- ur andað rólega. Sveinn Waage á þ r i ð j u d e g i Óbreytt á toppnum Engin breyting varð á fjórum efstu sætum aðsóknarlista kvikmyndahúsanna um helgina sem leið. jim Carrey myndin Yes Man er á toppnum aðra helgina í röð en tæplega tuttugu og sjö þúsund manns hafa séð hana það sem af er. Teiknimynd- in Bolt fylgir fast á eftir og í þriðja sæti er svo australia með þeim nicole Kidman og Hugh jackman. nýjar á lista eru transporter 3 sem er í fimmta sæti og the spirit tveimur sætum neðar. dubbeldusch aftur í sýningar Sýningar á Dubbeldusch eftir Björn Hlyn Haraldsson, sem sýnt var fyrir fullu húsi hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta leikári, eru að hefjast að nýju. Að þessu sinni fara sýning- ar fram í Hafnarfjarðarleikhúsinu, sú fyrsta 10. janúar. Einkasonurinn kemur í sumarbústað fjölskyldunnar og kynnir nýja unnustu fyrir foreldr- um sínum. Smátt og smátt rennur upp fyrir föðurnum að með komu stúlkunnar knýr fortíðin dyra, þrjátíu ára gamalt leyndarmál sem hann hefur reynt að gleyma. Björn Hlynur er einnig leikstjóri verksins en með aðalhlutverk fara Hilmar Jónsson, Harpa Arnardóttir og Davíð Guð- brandsson. jÓlin kvödd Jólunum lýkur í dag, á þrettándan- um, og alvaran tekur við þó segja megi að hún hafi ekkert tekið sér frí þessi jólin. Ætla má að jólin verði kvödd með miklum mynd- ugleika víða um bæi og borg. Á Ásvöllum í Hafnarfirði verða þau að minnsta kosti kvödd með álfa- dansi og söng á glæsilegri hátíð. Dagskráin hefst klukkan 18.30 og heyrst hefur að álfar, púkar og jólasveinar verði á svæðinu og taki þátt í gleðinni. Dagskránni lýkur klukkutíma síðar með glæsilegri flugeldasýningu. kristín sýnir í artÓteki Í Artóteki stendur nú yfir sýning á verkum Kristínar Geirsdóttur. Lista- konan hefur aðallega unnið með málverk og á sýningunni eru olíu- málverk unnin á masónít og pappír. Kristín lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1985 til ´89, var bæjarlistamaður Kópavogs árið 1995 og staðarlistamaður í Skálholti árið 2002. Artótekið er á Reykjavíkur- torgi á 1. hæð Borgarbókasafnsins við Tryggvagötu og stendur sýningin til 31. janúar. Ekki halda að þú sért að fara að kaupa boxleik þegar þú fjárfest- ir í FaceBreaker. K.O. Party á Nin- tendo Wii. Þetta er einfaldlega slagsmálaleikur. Menn eru kannski með boxhanska en það sem gerist inni í hringnum á fátt skylt við box. Leikurinn fékk hræðilega dóma á X360 og PS3 en hann er öllu skárri á Wii. Í X360- og PS3-útgáfunum var kvartað mikið undan stýrikerf- inu og var það sá sem gat ham- ast meira á tökkunum sem vann. Þetta er aðeins öðruvísi á Wii. Þar er maður að sveifla Wii-fjarstýr- ingunum til þess að lumbra á and- stæðingnum. Þetta er skemmtileg- ur kostur þegar verið er að keppa við félagana. Það er fínt stuð í því að hittast nokkrir vinir, lumbra að- eins á hver öðrum og svitna smá í leiðinni. Vissulega verður helvíti þreytt að standa einn og sveifla út í loftið og þessi leikur er kannski ekki al- veg málið ef þú ætlar bara að spila hann einn. Ef þú vilt flókna leiki og miklar pælingar er FaceBreaker ekki málið. En ef þú vilt bara berja einhvern og upplifa smá hasar er um að gera að prófa. Ásgeir Jónsson Brothögg í grímuna tölvuleikir FaceBreaker. k.O. Party Tegund: Slagsmálaleikur Spilast á: nintendo Wii kvikmyndir transPOrter 3 Leikstjóri: Olivier Megaton Aðalhlutverk: jason Statham, Francois Berleand, natalya rudakova, robert Knepper Brjóttu andlit það er lítið mál í FaceBreaker. sú versta kom snemma í ár Ekki góð „aðeins tíu ára strákum sem svindla sér inn og fólki haldið kvalalosta mun finnast þessi mynd góð.“ MYND CoMiNgSooN.NET

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.